Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Blaðsíða 11

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Blaðsíða 11
11 7. 8. 1. 2. 3. 4-5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. fremur er til 9- holu völlur í Leirvogstungutúni í Mosfellssveit. Alls er taliá að á bilinu 900 - 1.000 manns á höfuðborgarsvæðinu iðki golf. AÐSTAÐA FYRIR SKOTFÉLÖG. Samkvæmt upplýsingum frá Skotveiðifélagi islands þá er talið að um 10 þúsund manns stundi skotveiðar að einhverju marki hér á landi. Á höfuðborgarsvæðinu eru starfandi tvö skotfélög þ.e. Skotveiði- félag íslands með um 200 félagsmenn og Skotfélag Reykjavíkur með nm 500. Aðstöðu til skotæfinga hafa félagsmenn við Reynisvatn og í Leirdal. Þessi aðstaða er sögð ófullnægjandi. Á veturna eru skotæfingar í iþróttaleikvanginum í Laugardal. Um aðra aðstöðu fyrir skotmenn er vart hægt að tala þó má benda á "skothús" lögreglunar á Seltjarnarnesi enn fremur er kjallari í húsi við Strandgötu í Hafnarfirði nýttur til inniæfinga. AÐSTAÐA FYRIR SIGL. OG HRAÐBÁTA. Það hefur færst mjög í vöxt að íbúar höfuðborgarsvæðisins stundi siglingar sér til ánægju og heilsubótar. Fjöldi námskeiða eru haldin ár hvert af siglingarklúbbum sem eru nú 5 að tölu á öllu svæðinu. Hér er bæði um að ræða námskeið byrjenda svo og þeirra er lengra eru komnir, framhaldsnámskeið. Á byrjendanámskeiðunum er m.a. kennd meðferð og sigling seglbáta, siglingareglur, varúð og viðbrögð ef óhapp ber að á sjó og umhirða alls búnaðar. Reikna má með að fjöldi þeirra er sóttu námskeið siglingaklúbba á svæðinu hafi verið á árinu 1980 á bilinu 1.400-1.500. Öll aðstaða, önnur en til að sigla bátunxjm, er litil sem engin og stendur þessari grein útivistar og frítímamálum fyrir þrifum að sögn þeirra er vel til þekkja. ÞÓ munu nú vera hátt í 500 smábátar á svæðinu, trillur, siglarar og hraðbátar en fjöldi hraðbáta er sagður mestur. Bryggjur með landfestum. Hafnargarður sem mögulegt bíl eftir. "Snúningshaus" þar sem hægt bílum við. Vetrarstæði fyrir báta og sömuleiðis bílastæði. Bílastæði og stæði fyrir aftan-í-vagna ("trailera"). Garður. Viðlega fyrir "jullur". Segluppsetningarbryggja fyrir jullur. Sjósetning Geymslustaður fyrir seglmöstur. Bátalyfta Krani fyrir seglmöstur. Aðstaða til að losa salerni. Bryggjukantur Hafnarbakki. Bauja þar sem vinda má seglin. Bílastæði Klúbbhús Bj örgunarútbúnaður Leigubílar. Strætisvagna- biðstöð. Sími hugmynd)

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.