Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Blaðsíða 29

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Blaðsíða 29
29 I 3 Videre op gennem Rádhusstræde krydser man Parallelvej med holde- plads for bybussen - formet som et butikstorv. Der etableres ha- stighedsdaanpning i belægningen, sáledes at fodgængere kan færdes i sikkerhed. Pá skitsen ses trappe og rampeanlæg, som ferer frem til Rádhustorvet. Rádhuset ses i baggrunden. Gár man ind i Rádhuset og op pá den averste etage, kan man opleve .udsigten mod bycenteret. I forgrunden ses trappe og ramp«anlæg ^ mellem Rádhustorvet*og Parallelvej, hvorfra man kan forrsætte ^ til Danmarksgade acUHadhusstræde. Bybussen holder og vgfHer pá, at fodgamgere kryiiser Parallelvej. l* . V* Umræðutillaga að miðbæ í Frederikshavn Einnig var það athyglisvert hve mikil og almenn samstaða virðist ríkja um gildi þessara mála og hvað Danir byggja þar á gamalli menningarhefð. Erindin sem flutt voru á ráðstefnunni og fleiri gögn liggja frammi á Skipulagsstofunni fyrir þá sem vilja kynna sér þetta mál frekar. Hugmyndasamkeppni um skipulag i Sogamýri Síðastliðið vor efndi Reykjavíkurborg til hugmyndasamkeppni um skipulag í Sogamýri með það að markmiði að kanna byggingarmöguleika svæðisins. 1 aðal- skipulagi frá 1965 er svæðið ætlað til útivistar. Ekki lá fyrir ákvörðun um að breyta nýtingu þess, heldur var samkeppninni ætlað að "kveða nánar á um mörk hugsanlegrar byggðar og húsagerð. Einnig að fá nokkuð glögga hugmynd um, hvernig hugsanleg byggð kynni að falla að svipmóti borgarinnar séð frá hinni gamalgrónu innkomuleið í Reykjavík/ Ártúnsbrekkunni". 1 hugmyndasamkeppninni, sem var opin almenningi til þátttöku, komu fram 20 tillögur flest allar frá arkitektum eða nemum í arkitektúr. Dómnefnd, (Hrafnkell Thorlacius, arkitekt, formaður, Hilmar Ólafsson, arkitekt, Sigurður Harðarson, arkitekt, Sturla Sighvatsson, arkitekt og Haukur Morthens, söngvari) setti fram keppnislýsingu um eftirfarandi aðalatriði sem leggja bæri áherslu á við mat úrlausna: • • Heildaryfirbragð nýrrar byggðar og innra samræmi. • • Lega nýrrar byggðar gagnvart umferðarskarkala. • • Aðkoma að svæðinu og innra gatnakerfi. • • Göngu og reiðhjólastígar um svæðið, umhverfi þeirra og tenging við Laugardal og Elliðaardal. • • Útivistarsvæði til almennra nota, mótun þeirra og lega gagnvart umferðarskarkala og tengsl við aðliggjandi gönguleiðir. • • Aðkoma að Steinahlíð og hvernig það svæði tengist byggð, göngu- leiðum, og almennum útivistarsvæðum. • • Hvernig tillit er tekið til stofnlagna á svæðinu. • • Hvort tillagan felur í sér að mati nefndarinnar verulega mögu- leika til frekari úrvinnslu. Niðurstaða dómnefndar varð sú að fyrstu verðlaun hlaut tillaga eftir arki- tektana Ormar Þór Guðmundsson og Örnólf Hall. í dómnefndaráliti segir m.a. að markmið höfundar sé að ljúka við byggðina við Gnoðarvog og skapa byggð borgarhúsa sem er í samræmi við núverandi byggð. Auk þess að leggja eftir sem

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.