Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Síða 13
9.
AÐSTAÐA FYRIR SKAUTA- OG SKÍÐAÍÞRÓTTIR.
13
Á höfuðborgarsvæðinu eru um 15 fastar skíðalyftur auk fjögurra
skíðagöngubrauta. Flestar eru lyfturnar í Bláfjallafólkvangi,
alls 7. Á síðasta ári var ferðafjöldinn í Bláfjallalyftunum
rúmlega 830 þúsund. í fólkvanginum eru auk skíðasvæðis Blá-
fjallanefndar, skíðasvæði Fram, Ármanns og Breiðabliks.
Auk Bláfjallasvæðisins eru ein 4 önnur skíðasvæði í nágrenni
höfuðborgarinnar; skíðasvæði KR í Skálafelli, VÍkings og ÍR í
Sleggjubeinsskarði og auk þess skíðasvæðið í Hveradölum. Áætlað
er að samanlagður ferðafjöldi í öllum föstvun skíðalyftum á höfuð-
borgarsvæðinu hafi verið rúmar 2 milljónir á árinu 1980.
Varla er hægt að tala um sérstaka skíðaaðstöðu á svæðinu aðra
en þá sem hér var talin að ofan. Þó má geta lítilla skíðasvæða
sem komið hefur verið upp í byggð. Hér má nefna Ártúnsbrekkuna
sem er upplýst á veturnar og þó engin lyfta hafi verið þar má
segja að brekkan njóti mikilla vinsælda meðal yngri íbúa Reykja-
víkur. í Reykjavík var á síðasta vetri gerð skíðabrekka í vestan-
verðri Vatnsendahæð í Breiðholti. Þar var lítil draglyfta. í
framhaldi þessa má geta, að nú er fyrirhugað að koma upp skíða-
brekkum í norðanverðri Valhúsahæð á Seltjarnarnesi og austan við
Kjarrhólma í Kópavogi.
Tjörnin í Reykjavík er vinsælasta skautasvæðið á höfuðborgar-
svæðinu, en Rauðavatn, Hafravatn og Bessastaðatjörn eru það engu
síður þó í minna mæli sé. Áð auki eru gerð skautasvell við
nokkra skóla á svæðinu, þegar þannig viðrar svo og á íþrótta-
völltim eins og t.d. Melavelli. Aðeins er starfandi eitt skauta-
félag á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík, með 360 félagsmenn,
þar af 130 konur.
10. FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR.
Á höfuðborgarsvæðinu eru starfandi 12 félagsmiðstöðvar (félags-
heimili), 5 í Reykjaví, 3 í Hafnarfirði og eitt á Kjalarnesi,
Mosfellssveit, Seltjarnarnesi og KÓpavogi. Hlutverk þeirra er,
eins og raunar nafnið gefur til kynna, að skapa íbúum svæðisins
og auk þess félögum, samtökum og stofnunum þess, aðstöðu til
ýmiss konar félagsstarfa. Nefna má hér fundi, leiksýningar dans-
leiki, fönduraðstöðu, margbreytileg leiktæki, kvikmyndasýningar,
ýmiss námskeið, sem dæmi um þetta starf.
Erfitt er að gera sér grein fyrir nákvæmum fjölda þeirra sem
sækja félagsmiðstöðvarnar og tómstmdastarf í grunnskólum, enda
tölur yfir slíkt ekki tiltækar allsstaðar. Líklega er ekki orðum
aukið þó sagt sé að hátt í 200 þúsund manns hafi nýtt sér þessa
aðstöðu á síðasta ári hér á svæðinu.