Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Page 17
Lítið sem ekkert er um merktar gönguleiðir hér á svæðinu. En
þær yrðu bæði til hagræðingar svo og til að hvetja fólk til
gönguferða. Mjög víða erlendis hafa þannig merkingar verið
settar upp (sjá mynd), ekki aðeins á útivistarsvæðum með mikla
náttúrufegurð, heldur einnig inni í þéttbýlinu.
VEGVÍSIR í KALDÁRSELI ER SÝNDI LEIÐINA AÐ BdRFELLSGJÁ.
Þannig er komið upp vegvísi með heiti gönguleiðar eða heiti
endastaðar, ásamt því hve löng leiðin er og hve langan tíma
gangan tekur.
FLUG.
Flug sem frítímaiðja höfuðborgarbúa hefur færst mjög í vöxt
síðustu árin. Fjöldi gildandi einkaflugmanns- og flugnema-
skírteina bera því vitni. (Til glöggvunar þá hafa einkaflug-
menn leyfi til að fljúga með farþega án endurgjalds en flug-
nemar hafa ekki leyfi til að fljúga með farþega).
ÁR EINKAFLUGMANNS- SKÍRTEINI FLUGNEMA- SKÍRTEINI ALLS
1977 175 45 220
1978 215 125 340
1979 123 29 152
1980 262 180 442
ÚTGEFIN EINKAFLUGMANNS- OG FLUGNEMASKlRTEINI Á ÖLLU LANDINU
FRÁ 1977 - 1980.
Aðstaða tengd flugi á höfuðborgarsvæðinu er nær eingöngu á
Reykjavíkurflugvelli. Þó er t.d. starfandi félag flugáhuga-
manna í Mosfellssveit er hafa yfir tveimur vélum að ráða og
lendingaraðstöðu við Leiruvog.
Svifflugmenn hafa aðstöðu á Sandskeiði en u.þ.b. 10 svifflugur
eru nú í eigu Svifflugfélags íslands auk fárra einkaaðila.
Módelflug fer sömuleiðis ört vaxandi. Stofnað hefur verið Flug-
módelfélagið Þytur en félagatal þess er nú um 30 manns. Aðstaða
þessa félags er sem stendur á Sandskeiði.