Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Page 13
FORTIÐINIHUSUM
Kiji. i b
*L l fX
*• 1 X *•- «" il _4¥
. .y .W-
*. w...... .. ..t'1* .... .
Steinbærinn við Elliðavatn. Þetta mun vera húsið sem Sverrir Runólfsson byggði.
EF við göngum um höfuðstað eins og Reykjavík og gefum okkur
tíma eins og slæpingjar til að glápa á hús, lítum upp á húsþökin í
Austurstræti, inn í skuggaleg port og húsasund, sjáum við hvemig
gömlu húsin ýja að sögu. Fólkið sem forðum bjó í þessum húsum er
horfið með öll sín efnaskipti, eins og fötin sem það klæddist og dótið
sem það handfjatlaði milli vöggu og grafar. Einungis húsin standa
eftir eins og beinagrindur menningar.
Gömul hús sjá til þess að við höfum hið liðna daglega fyrir augunum.
Gamlar byggingar minna okkur, sem þjótum um borgir, bæi og
sveitir, stöðugt á fortíðina. Á eyðibýli í íslenskum afdal má sjá
rifrildi úr gamalli svuntu með blómamunstri, blaðsíður úr bók og
beyglaðan bláan pott gægjast útúr hústótt. Svuntan, potturinn, bókin
og húsið ríma saman og bera svipmót horfinna áratuga. Gömul hús
sem standa enn í borg og bæ kalla fram í hugann mynd af dauðu fólki,
fötum þess búshlutum og bókum - gömul hús kalla fram mynd af
horfinni menningu.
í Reykjavík glittir í mestalla grind íslenskrar húsasögu. Bak við
Viðeyjarstofu hafa fomleifafræðingar gert þversnið sem nær aftur til
miðalda. í kringum nítjándu aldar torfbæinn Árbæ hefur verið komið
upp húsasafni þar sem sjá má ýmis eldri hús. Fulltrúar elstu stein- og
timburhúsa á landinu hafa staðið sinn vörð í Reykjavík frá því um
miðja átjándu öld. Viðeyjarstofa og Stjómarráðshúsið em í hópi
elstu steinhúsanna, og í Aðalstræti 10 er eitt af húsum Innréttinganna
í Reykjavík. Síðan taka við hús sem varða byggingasöguna fram á
þennan dag. Sá sem fer um borgir og bæi með opin augu getur
skynjað frá húsum sem þessum mikla sögu.
Fom mannvirki standa út um allan heim eins og magnaðir bergrisar
og segja á sinn þögla hátt þúsunda ára sögu. Elstu hús á íslandi eru
aftur á móti aðeins tveggja og hálfrar aldar gömul. Líkt og kofar
Afríkubúa og snjóhús Eskimóa entust fomu íslensku húsin illa. Svo
frumstæð smáhýsi úr torfi, grjóti og timbri em næstum holdgróin
hylki utan um fólk, búin til úr efniviði beint úr náttúrunni umhverfis.
Landnámsmenn byggðu hér hús svipuð því sem þá þekktust í
grannlöndunum, en í þúsund ára einangmn náði tregðulögmálið
yfirhöndinni.
Eftir landnámsöld fóm nágrannaþjóðimar að gefa sér tíma til að
byggja hús úr timbri eingöngu, og síðar úr steini. Þó þekktist lengi á
stöku stað í sveitum Evrópu að aumir fátæklingar byggðu hús úr torfi,
í Flollandi vom til dæmis til hús í sveitum úr lyngtorfi allt fram á
byrjun nítjándu aldar. En hér á eylandinu vom hús úr torfi og grjóti
einu híbýli þjóðarinnar fram á nítjándu öld. Hús segja mikið um
menningarsöguna, enda varðveittust inni í okkar fomu íslensku
húsum menningarþættir sem hurfu á meginlandinu, svo sem tun-
gumálið, fomar sögur, rfmur - og holdsveiki.
fslenskt grjót var ekki hentugt til bygginga og menn fluttu ekki inn
múrstein og kalk, svo einu byggingarefnin hér á landi fram á átjándu
öld vom torf, grjót og timbur. Vegna skorts á timbri og eldiviði
minnkuðu torfhúsin eftir landnámsöld.
Mörg smáhýsi þóttu þá hentugri en stórir skálar. Torfbæimir
mynduðu því eins konar kofakrans og innangengt var á milli. Á
átjándu öld var húsum raðað sitt hvomm megin við langan gang og á
nítjándu öld kom fram burstabærinn sem skólaböm af minni kynslóð
hömuðust við að teikna. Við teiknuðum burstabæ undir fjalli og sól,
mynd sem er táknræn fyrir trega fyrstu kynslóða á mölinni. Oft er talað
um vandræði húsbyggjenda nú á tímum, en vandræði húsbyggjenda
fyrri alda voru ekki minni því húsin entust svo illa. Náttúra staðarins,
11
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG