Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Side 43

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Side 43
Jón Haraldsson arkitekt lést hinn 28. maí síðastliðinn Hann fœddist í Reykjavík 17. október driö 1930, sonur hjónanna Haralds Björnssonar leikara og konu hans, Júlíönu Friðriksdóttur hjúkrunarkonu. Hann lauk stúdentsprófi frd Menntaskólanum í Reykjavík áriðl950og prófiítannlœkningumfrá Háskólaíslands áriö 1956. Að pví loknu hélt hann til náms í því fagi, sem hugur hans hafði lengst af staðið til, húsagerðarlist, við Tœkniháskólann 1 Þránd- heimi, og lauk þaðan prófi árið 1960. Eftir það var hann við nám og störf í skipulagsfrceðum í Finnlandi í eitt ár, vann á teiknistofu Haldor Gunnlaugsson og Jörn Nielsen í Kaupmannahöfn 1961- 1962, en hélt síðan heim til íslands og rak eigin teiknistofu í Reykjavík frá árinu 1962. Á tœplega þrjátíu ára starfsferli teiknaði Jón Haraldsson fjölda bygginga, bœði á höfuðborgarsvceðinu og úti á landi. Má þar m.a, nefna: Félagsheimili stúdenta við Hringþraut, Krýsuvíkurskólann, skrifstofu- og verslunarhús Smith og Norland hf. í Reykjavík og kirkju í Stykkishólmi, auk heilsugœslustöðva, félagsheimila, embcettisbústaða og fjölda annarra bygginga, t.d. mörg mjög athyglisverð einbýlishús, en slík verkefni eru oft mun meira krefjandi en þau sem stcerri eru að rúmmáli. Byggingar hans bera allar mjög sterkt persónulegt svipmót, og skera sig úr vegna ákveðinnar og sterkrar formuppbyggingar, sem oft minnir ekki síður á höggmynda- en húsagerðarlist. Myndirnar af kirkjunni 1 Stykkishólmi sýna þetta vel. Oft er heildarformið fyrst mótað í leir, hinn hefðbundna tjáningarmiðil myndhöggvara, eftir grófu rissi, en síðan útfcert nánar í pappa eða balsa, jafnhliða þvi, sem teiknivinna fer fram. Jón vann einnig að ýmsum skipulagsverk- efnum, m.a. við skipu- lag miðbcejar Hafnar- fjarðar, en hann fékk fyrstu verðlaun 1 samkeppni um það verkefni árið 1962, auk skipulags Dalvíkur og íbúðarbyggða á Sel- tjarnarnesi og við Meist- aravelli í Reykjavík. Hann var vel máli farinn og ritfcer, en það kom sér oft vel, ef verja þurfti heiður og hag húsagerðar- listarinnar, er honum ofbauð niðurlceging hennar í landi bókmenntanna, landi þar sem unnt er að fara gegnum öil skólastig, allt frá barnaskóla upp í háskóla, án þess að heyra nokkurn tíma minnst á arkitektúr, landi þar sem það er jafnvel talin dyggð, sem verðlauna þurfi sérstaklega, að koma próflaus ARKITEKTÚR OG SKIPULAG 41

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.