Arkitektúr og skipulag - 01.12.1989, Qupperneq 53
GARÐAR AÐ VETRI
Það skýtur kannski skökku við að fara að skrifa um garða að
vetrarlagi. Ef við hugsum um garða nú sér maður fyrir sér grænar
grundir og gróinn völl og fer ósjálfrátt að leiða hugann að næsta
sumri.
Vettvangur þessara skrifa er ekki garðurinn að sumarlagi heldur
garðurinn nú í dag, á miðjum vetri.
Hvemig lítum við á garðinn og umhverfi okkar í tieild að vetri til?
Svæðiídvala, ánlífs. Kannski á fyrsta augnabliki. Viðerum vönþví
að tímabilið frá september fram í apríl sé tímabil sem við gefum
garðinum lítinn gaum, annað en að við lítum út um gluggann og
hugsum með okkur hvað það sé hráslagalegt úti.
Það efast þó enginn um það að garðurinn hefur margar hliðar jafnvel
á vetuma. Frosnar greinar eftir dimma vetramótt sem að morgni
þiðna upp og ljóma í vetrarsólinni, eða vetramótt í heiðskíru veðri og
fullt tungl, skuggaspil greina á frosinni grund.
Ég ætla þó ekki að gleyma gráköldum hverdagsleikanum með 6
vindstigum að norðan og 8 stiga frosti en málið er að fá tilfinninguna
og upplifa umhverfið...
í GARÐINUM ALLT ÁRIÐ
Gerum við okkur grein fyrir því að þegar garðurinn er skipulagður
þá emm við alltaf að hugsa um hvemig við ætlum að nota hann í
sumar, til sólbaða, hvemig sprettan verði o.s.frv. En það kostar lítið
að leiða hugann að því hvemig hann kemur okkur betur að notum allt
árið. Hvað varðar umfjöllun um garða þá getum við lesið okkur til
um þá víða í greinarskrifum allt frá því að laukamir fara að stinga upp
kollinum að vori fram að því að síðasta laufblað er fallið til jarðar, en
u.þ.b. 6 mánuðir þar á milli era sem lokuð bók.
Það er samt ekki auðvelt að skipuleggja garð með þetta í huga. Við
höfum ekki úr svo miklu að spila miðað við úrval iðgrænna
sumarplantna.
Því ber að vinna úr því sem við höfum og hugsa til þess að það þarf
ekki svo mikið til í öllum tilfellum.
ARKITEKTUR OG SKIPULAG
Gróðurinn og þá sérstaklega tré og runnar era meginuppistaðan í
þessu samhengi. Þegar við veljum tré og ranna í garðinn er það
sérstaklega sumarútlitið sem við lítum til.
Runnamuran (Petentilla fruticosa) blómstrar allt sumarið. Geisla-
sópurinn (Cytisus decumbens) skartar sínu fegursta um vorið. Fáir
hugsa um það hvemig útlit gróðursins er á vetuma.
Mörg tré og rannar hafa útlit sem er sérstakt og ættum við að notfæra
okkur það meira en við geram. Sumar tegundir hafa meira skraut-
gildi en aðrar, má þar nefna vaxtarlag eða vaxtarform, en einmitt
vaxtarlag og bygging trjáa og ranna sést mun betur á vetuma þegar
laufblöðin hylja ekki greinar.
Litur stofna og greina og áferð eru mjög mismunandi eftir tegundum
og aldri, allt frá vanalegum brúnum og gráum tónum í rauða og græna
tóna.
Tré og rannar bera oft ávexti sem standa langt fram eftir vetri, eða
hafa laufblöð sem detta ekki af fyrr en ný spretta fram að vori.
Þá hefur ekki verið minnst á þær fjölmörgu tegundir barrtrjáa sem oft
eru meginuppistaða í vetrarskrúða garðsins.
AÐKOMAN MIKILVÆG
Huga þarf vandlega að staðsetningu trjáa og ranna í garðinum. Á
vetuma getur snjór takmarkað svo umferð okkar, að einungis vissar
gönguleiðir eru opnar, s.s. aðkoman að bflskúr, að innganginum og
að sorpinu. Þetta eru því þau svæði sem við förum mest um. Einnig
þarf að huga að því hvaða svæði það era sem við sjáum best frá
gluggum hússins og út í garðinn. Þetta eru einmitt svæðin þar sem
gera á ráð fyrir meiri fjölbreytni í plöntuvali og leggja áherslu á
vetrarútlitið.
Aðkomugarðinn sjá allir, bæði við sem föram þar um daglega en
einnig nágrannar og gestir. Er hægt að gera eitthvað til að bæta þar
um? Við getum hugsað um þann stað sem er mest áberandi þegar við
komum að húsinu eða förum frá húsinu. Hvemig væri að koma fyrir
aðkomutré við innganginn og gróðursetja fjallafura sem undirgróður
eða koparreyni við póstkassann?
VETURINN ER LANGUR OG DIMMUR. VIÐ BÍÐUM
SUMARS MEÐ SÓL OG BIRTU EN ÞEGAR BETUR ER AÐ
GÁÐ NJÓTUM VIÐ EKKI VETURSINS Á VISSAN HÁTT?
LJÓS í SKAMMDEGINU
í skammdeginu er það oft svo að farið er að heiman í myrkri og komið
heim í myrkri. Þetta gefur svo sannarlega tilefni til þess að við ættum
að vinna meir að garðlýsingu en við gerum. Það er nauðsynlegt að
lýsa upp aðkomuna að húsinu en einnig má ná fram skemmtilegu
skugga- og ljósaspili með því að koma fyrir lýsingu víðar við
aðkomuna, t.d. innan um rannaþyrpingu. Lýsing ígarðinum á réttum
áherslustöðum getur haft þauáhrif að litið er frá glugga innandyra
virðist rýmið eitt. Gæta verður þó að ofhlaða garðinn ekki með
lýsingu, því ekki er ætlunin að eyða fegurð myrkursins.
■■■■ ARKITEKTÚR OG SKIPULAG ■
HEITT VATN
Sérstaða okkar með heitt vatn hefur komið æ sterkar að notum og eru
flestar innkeyrslur sem nú era gerðar á hitaveitusvæðum með
snjóbræðslukerfi. Hvað varðar garða að vetrarlagi þá býður heitt vatn
upp á marga möguleika aðra en þá að hita upp stéttir. Möguleikamir
liggja í upphitun jarðvegs til þess að lengja vaxtartíma gróðurs en
þetta hefur ekki verið mikið athugað með skrautgróður. Heitt vatn má
hafa í tjöm sem opin er allt árið, að ekki sé talað um heita potta og
laugar, er nú orðið algengt. Allt þetta má nota við að auka fjölbreytni
og nýtingu garðsins á vetuma.
Auðvitað má fjalla frekar um notkun garðsins til vetrarleikja, eða
hvemig við aukum líf í garðinum með því t.d. að gefa fuglum að vetri
til. Utlitið eða fagurfræðin hafa verið vettvangurinn að þessu sinni
enda gegnir hún því hlutverki að vera rammi um myndina. ■
Pétur Jónsson
51