Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 20222
Jólablað í
næstu viku
VESTURLAND: Jóla-
blað Skessuhorns kemur út
næstkomandi þriðjudag, 20.
desem ber. Vinnsla blaðsins er
nú vel á veg komin og verður
blaðinu lokað um næstu helgi.
Þeir sem vilja koma á framfæri
efni eða auglýsingum í Jóla-
blaðið er bent á að tryggja sér
pláss í þessari viku, eða eigi
síðar en fyrir hádegi nk. föstu-
dag. Efni sendist á: skessu-
horn@skessuhorn.is en aug-
lýsingar á netfangið auglys-
ingar@skessuhorn.is Fyrsta
blað á nýju ári kemur út mið-
vikudaginn 4. janúar. -mm
Leiðrétt
Í myndatexta sem fylgdi
með frétt um uppskeru hátíð
Markaðs setningu ábyrgra
matvæla af Snæfellsnesi
(MÁMS) í síðasta blaði mis-
ritaðist eitt nafn. Hún Olga
Sædís, einn af eigendum
Bjargarsteins Mathúss,
er Einarsdóttir. Leiðrétt-
ist það hér með og beðist er
velvirðingar. -mm
Hver er
Vestlendingur
ársins?
VESTURLAND: Skessu-
horn stendur nú í 25. skipti
fyrir vali á Vestlendingi ársins,
þeim íbúa landshlutans sem
hefur á einhvern hátt skarað
fram úr á árinu og verðskuldar
sæmdarheitið Vestlendingur
ársins 2022. Skilyrði er að við-
komandi hafi búsetu á Vestur-
landi. Íbúar landshlutans geta
sent tilnefningar á ritstjórn
Skessuhorns um Vestlending
ársins á netfangið: skessu-
horn@skessuhorn.is eigi síðar
en 19. desember nk. Ritstjórn
mun vinna úr ábendingum
en tilkynnt verður 4. janúar
2023 um niðurstöðuna. Gott
er ef ábendingunum fylgi rök-
stuðningur í einni setningu
eða svo. -mm
Dvalargjöld
fyrir skólahóp
DALIR: Á fundi sveitar-
stjórnar Dalabyggðar á
morgun, fimmtudaginn 15.
desember, verður borin fram
tillaga um að fella niður
vistunargjald elsta árgangs-
ins í leikskóla, svokallaðs
skólahóps. Sveitarstjórn barst
tillaga þess efnis 27. nóvem-
ber sl. frá Ragnheiði Páls-
dóttur, íbúa í Dalabyggð og
samþykkti byggðarráð á fundi
sínum 12. desember að tekjur
vegna dvalargjalds á leikskóla
í fjögurra ára fjárhagsáætlun,
2023-2026, yrðu lægri vegna
þessa. Í samtali við Skessuhorn
segir Björn Bjarki Þorsteins-
son sveitarstjóri að sveitar-
stjórn taki málið til form-
legrar afgreiðslu á morgun en
hann á ekki von á öðru en að
samstaða náist um að ráðast í
niðurfellinguna. -gbþ
Til minnis
Fram undan eru frosthörkur víða
um land og um að gera að klæða
sig afar vel ef farið er út. Á svona
dögum eru innidagar vinsælir og
alveg upplagt að fá sér heitt kakó
með rjóma og kannski smákökur
með. Þá er tilvalið að njóta með
fjölskyldunni hvort sem um er
að ræða sjónvarpsgláp, spila-
mennsku eða bara gott spjall.
Veðurhorfur
Á fimmtudag er gert ráð fyrir
norðlægri átt 5-13 m/s og éljum
á norðanverðu landinu, en létt-
skýjað verður syðra. Frost 5 til 14
stig. Á föstudag eru líkur á fremur
hægri, breytilegri átt og lítils-
háttar éljum um landið norðan-
vert, annars víða bjart, en austan
8-15 m/s og snjókoma syðst.
Frost 4 til 20 stig, mest í lægðum
í landslagi. Á laugardag má
búast við allhvassri eða hvassri
norðaustlægri átt og snjókomu
víða, einkum á Austurlandi, en
þurrt suðvestan til. Frost 1 til
7 stig seinni partinn. Á sunnu-
dag og mánudag er útlit fyrir
norðan hvassviðri eða -storm
með snjókomu eða skafrenningi,
en úrkomulítið sunnan- og suð-
vestan til. Herðir aftur á frosti.
Vestlendingur
vikunnar
Sigvaldi Arason er stofnandi
Borgar verks í Borgarnesi og fagnar
á sunnudaginn 85 ára afmæli sínu.
Af því tilefni býður hann til veislu
og samtímis verður opnuð ljós-
myndasýning á myndum Silla
sem sýnir framkvæmdir og þróun
í Borgarnesi og nærsveitum.
Sigvaldi er Vestlendingur vikunnar
að þessu sinni.
Í tilefni 80 ára afmælis Akranes-
kaupstaðar á þessu ári munu Guðni
Th. Jóhannesson forseti Íslands og
frú Eliza Reid eiginkona hans koma
í opinbera heimsókn á Akranes á
morgun, fimmtudaginn 15. desem-
ber. Tekið verður á móti forseta-
hjónunum við Hvalfjarðargöng og
þeim fylgt í bæinn. Fyrsti áfanga-
staður verður aðsetur bæjarskrif-
stofunnar að Dalbraut 4 þar sem
bæjarstjóri og bæjarfulltrúar munu
taka á móti þeim ásamt fleirum.
Fram kemur á vef Akraneskaup-
staðar að dagurinn verði þétt-
skipaður og munu forsetahjónin
meðal annars fara í sjósund, heim-
sækja Skagann 3X, Hjúkrunar- og
dvalarheimilið Höfða, líta inn í
nýja leikskólann á Garðaseli og
hitta þar elstu árganga leikskóla-
barna á Akranesi. Heimsókn í Þekj-
una, frístundaheimili Brekkubæjar-
skóla, er einnig á dagskrá, skoðuð
verður aðstaðan í nýja fimleikahús-
inu og einnig er áætlað að heim-
sækja Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands og Nýsköpunarmiðstöðina
á Breið. Heimsókninni lýkur svo
með hátíðardagskrá í tengslum við
80 ára afmæli Akraneskaupstaðar í
Nýsköpunarmiðstöðinni Breið þar
sem bæjarbúum er boðið að hitta
forsetahjónin og þiggja veitingar
með þeim í tilefni afmælis ins og
heimsóknarinnar. Hátíðardag-
skráin hefst klukkan 16.30 og
stendur til klukkan 18.
Akraneskaupstaður hvetur fólk
og fyrirtæki til að skreyta og flagga
íslenska fánanum og fjölmenna svo
í Nýsköpunarmiðstöðina klukkan
16.30.
vaks
Útlit er fyrir að langbylgju-
sendingum frá Gufuskálum á Snæ-
fellsnesi og Eiðum á Austurlandi
verði brátt hætt og þar með verði
ekki lengur þörf á langbylgju-
möstrum á þessum stöðum, en
þau hafa í áratugi tryggt útvarps-
sendingar í gegnum FM dreifi-
kerfið. Þetta kom fram í svari Stef-
áns Eiríkssonar útvarpsstjóra við
fyrirspurn Austurfréttar.
RÚV hefur rekið tvö langbylgju-
möstur, annars vegar á Gufu-
skálum og hins vegar á Eiðum.
Um útvarpsöryggissendingar er
fjallað í þjónustusamningi ráð-
herra og RÚV en að sögn Stef-
áns hafa þær verið til skoðunar í
þó nokkurn tíma. Á undanförnum
árum hafi orðið margvíslegar
tæknibreytingar, einna stærstar þær
að Íslendingar eigi almennt ekki
lengur viðtæki sem taka við lang-
bylgjusendingum, hvorki útvarps-
tæki á heimilum né ökutækjum. Þá
séu bæði möstrin og útsendinga-
kerfið komið á aldur og fyrirséð að
endurnýjun verði dýr. Þess vegna
hafi RÚV í samvinnu við almanna-
varnadeild ríkis lögreglustjóra,
Neyðarlínuna og Isavia greint
framtíð útvarps öryggissendinga.
Niðurstaðan hafi verið sú að FM
kerfið taki við öryggishlutverkinu á
næstu árum.
Þessi uppbygging er hafin því
síðustu misseri hefur verið unnið
að því að þétta FM dreifikerfið
og byggja upp varaafl þannig það
geti gegnt öryggishlutverki sínu
um allt land. Stefán segir í samtali
við Austurfrétt að þessi vinna sé
langt komin á Austurlandi og því
svæði sem langbylgjunni á Eiðum
sé ætlað að ná til. Staðan verði
nánar kynnt þegar framkvæmdum
sé lokið. Nánari dagsetningar liggi
ekki fyrir en þetta sé fyrirhugað í
vetur. Aðgerðir á Gufuskálasvæð-
inu komi síðar.
mm
Langbylgjusendingar frá Gufuskálum
og Eiðum heyra brátt sögunni til
Forsetahjónin væntanleg í heimsókn á Akranes
Forsetahjónin Guðni og frú Eliza Reid. Ljósm. af akranes.is
Í gær var undirrituð viljayfir lýsing
á milli Dalabyggðar, f.h. Silfur-
túns, og Heilbrigðisstofnunar
Vestur lands, sem byggir á að kann-
aður verði grundvöllur þess að
hefja undirbúning að samþættingu
þjónustu við aldraða í Dalabyggð.
Þau Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir
forstjóri HVE og Björn Bjarki
Þorsteinsson sveitarstjóri Dala-
byggðar undirrituðu svohljóðandi
viljayfirlýsinguna:
Á grundvelli neðan greinds gera
Dalabyggð, kt. 510694-2019, og
Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
hér eftir kallað HVE, kt. 630909-
0740, með sér viljayfirlýsingu um
að kanna grundvöll þess að hefja
undirbúning að samþættingu þjón-
ustu við aldraða í Dalabyggð.
Aðilar tilnefna hvor um sig tvo aðila
til þess að vera í undir búnings-
hóp sem hefja mun störf um ára-
mót og skila skal af sér tillögu að
frekara skipulagi þessa samstarfs-
verkefnis fyrir lok apríl 2023. Um
verði að ræða tilraunaverkefni sem
kynnt verði heilbrigðisráðherra og
heilbrigðisráðuneyti og jafnframt
leitað stuðnings frá fagráðuneytinu
þessum áformum til stuðnings.
Þjónusta við aldraða á Íslandi er
á höndum bæði ríkis og sveitar-
félaga. Ríkið sér öldruðum
fyrir heilsugæslu og sinnir
heimahjúkrun. Sveitar félög sjá
fólki fyrir félagslegri heima-
þjónustu og reka mörg hver hjúkr-
unar- og dvalarheimili líkt og Dala-
byggð gerir með rekstri Silfurtúns.
Rekstur hjúkrunar- og dvalarheim-
ila er þannig uppbyggður að ríkis-
sjóður greiðir daggjöld til stofnana
sem reka hjúkrunar- og dvalarrými,
óháð rekstrarformi, samkvæmt
metinni þörf fyrir rýmafjölda í
hverju heilbrigðisumdæmi.
Þær kannanir sem gerðar hafa
verið á viðhorfi aldraðra sýna að
þeir óska í flestum tilfellum að
dvelja á eigin heimili til æviloka ef
heilsa leyfir. Umræðan um sjálfræði
aldraðra og einstaklingsmiðaða
þjónustu við þennan þjóðfélags-
hóp verður sífellt meiri. Ljóst er að
á næstu árum mun öldruðum fjölga
hlutfallslega hraðar en öðrum
þjóðfélagshópum vegna hækkandi
lífaldurs og lækkandi fæðingar-
tíðni. Markmið þessarar viljayfir-
lýsingar er fyrst og fremst að skapa
grundvöll að sem skilvirkastri sem
og hagkvæmastri öldrunarþjónustu
í Dalabyggð og nærsveitum árið
um kring, alla daga ársins. Einnig
að brúa bil milli þjónustuaðila því
nánari samvinna mun stuðla að
heildstæðari þjónustu sem ætti að
fækka „gráum svæðum“ og mögu-
legum hindrunum í kerfinu.“
mm
Viljayfirlýsing um samþættingu
þjónustu við aldraða í Dalabyggð
Eftir að viljayfirlýsingin var undirrituð.
F.v. Þura Björk Hreinsdóttir, Þórunn B.
Einarsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir,
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir og
Björn Bjarki Þorsteinsson.
Ljósm. aðsend.