Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202220
Starfsmannafélag Slökkviliðs
Grundarfjarðar hefur um árabil
staðið fyrir fjáröflun með sölu daga-
tala í Grundarfirði. Í ár er engin
breyting þar á en fjármunirnir sem
safnast hafa nær eingöngu farið í
uppbyggingu á tækjum og búnaði
slökkviliðsins og öðrum tengdum
málefnum. Til að mynda gaf starfs-
mannafélagið reykskynjara til allra
eldri borgara Grundarfjarðar-
bæjar í samstarfi við bæjaryfir-
völd sem sáu um kostnað við upp-
setningu. Svo á dögunum keypti
starfsmannafélagið eldvarnar-
kerfi á Dvalarheimilið Fellaskjól í
Grundarfirði en kominn var tími
á að endurnýja brunakerfið í hús-
inu. Af þessu tilefni færði Hildur
Sæmundsdóttir formaður stjórnar
Fellaskjóls slökkviliðinu þakkarbréf
fyrir ómetanlegan stuðning.
tfk
Í þriðja bekk Brekkubæjarskóla á
Akranesi er alltaf unnið með gamla
tímann, en þá læra börnin til dæmis
um hvernig fólk fór að áður en það
hafði þá tækni sem við njótum í dag
og um ýmsar hefðir og siði sem ein-
kenna menningu okkar enn í dag.
Í þriðja bekk er einnig unnið með
barnasáttmálann og mikil áhersla
lögð á að nemendur læri um
réttindi barna og geri sér grein fyrir
að því miður búa ekki öll börn við
það að hægt sé að tryggja réttindi
þeirra og velferð.
Nú á haustmánuðum höfum við
unnið mikið með barnasáttmál-
ann og börnin hafa verið svo flott
og rökföst í þessari vinnu. Í des-
ember ákváðum við svo að byrja
að vinna með gamla tímann, því
hvað sýnir betur gamlar hefðir
og siði en einmitt sjálf jólahá-
tíðin okkar? Við ákváðum þó að
tengja þetta tvennt svolítið saman,
gamla tímann og barnasáttmálann.
Við fjöllum um gamla tímann frá
sjónar hóli barna og setjum svolítið
á okkur barnasáttmálagleraugun og
skoðum hvað var gott við það að
alast upp í gamla daga og hvað var
ekki gott fyrir börn.
Þótti þeim ekki
vænt um börnin sín?
Þessir krakkar eru ótrúlega skýrir
og ein fyrsta spurningin sem kom
upp í hópnum var að ef það er
svona slæmt fyrir börn að vinna
og geta ekki farið í skóla t.d., af
hverju létu foreldrar þeirra þau þá
gera það? Þótti þeim ekki vænt um
börnin sín? Svörin voru að í gamla
daga vissum við hreinlega ekki jafn
mikið um það hvað væri gott fyrir
börn og við gerum í dag og þar að
auki var lífið mun erfiðara í gamla
daga því fólk þurfti að vinna flest
verk með eigin aflsmunum því það
voru ekki til vélar til að auðvelda
þeim verkin eins og er í dag. Þess
vegna þurftu börn að hjálpa mun
meira til svo allir hefðu í sig og á.
Þetta skildu þau vel og voru sam-
mála um það að þau hefðu það
mjög gott í dag að þurfa ekki að
vinna.
Hér á Akranesi erum við svo
einstaklega heppin að hafa aðgang
að okkar frábæra byggðasafni svo
við höfðum samband við starfs-
fólkið þar og spurðum hvort þau
gætu aðstoðað okkur með þessa
vinnu í tengslum við gamla tím-
ann. Við áttum góðan fund saman,
kennsluteymið og starfsfólkið á
byggðasafninu og úr varð ljóm-
andi gott samstarfsplan fyrir næstu
mánuði. Við ætlum að vinna með
kennsluáætlun um gamla tímann
meðfram öðrum áætlunum alveg
fram á vor. Einu sinni í mánuði
förum við í heimsókn upp í Garða
og vinnum með ákveðið þema
tengt gamla tímanum, þar sem við
kennararnir ásamt starfsmönnum
safnsins verðum með alls konar
fræðslu og áþreifanleg verkefni
sem tengjast aðstöðu barna í gamla
daga. Þar sem árstíðirnar stjórnuðu
sannarlega lífinu hér á Íslandi fyrr
á öldum þá er þema hvers mánaðar
tengt árstíðinni sem er í gangi á
hverjum tíma.
Fengu fræðslu
um ýmsar hefðir
Fimmtudaginn 8. desember fórum
við í fyrstu heimsóknina þar sem
þemað var „jólin í gamla daga.“ Við
tókum strætó upp eftir og börnin
sungu fallega alla leiðina. Þegar við
vorum komin var krökkunum boðið
að setjast inn í baðstofuna í stóra
safnhúsinu og fengu þar fræðslu
hjá Tinnu Royal um ýmsar hefðir
og siði sem fylgdu jólunum í gamla
daga og gera jafnvel enn í dag.
Einnig fengu nemendur að kíkja í
heimsókn inn á Sanda, fallegt hús
sem eitt sinn stóð við Krókatún,
en er nú í nánast sinni uppruna-
legu mynd á safnasvæðinu. Inni á
Söndum var spjallað um hvað börn
gerðu í gamla daga þegar ekki var
rafmagn og of kalt og dimmt úti til
þess að fara út að leika. Við fórum
í innileiki eins og t.d. „Fagur fiskur
í sjó“ og „Hún Þyrnirós var besta
barn“ og skemmtu krakkarnir sér
konunglega við þetta. Þessa leiki
tengdum við svo líka inn í íslensku-
áætlunina okkar því þar erum við
að vinna með rím þessa dagana.
Krakkarnir eru sammála um það að
svona vísur og kvæði í leikjum rími
vegna þess að það hjálpaði börnum
að muna þau í gamla daga þegar
ekki voru endilega til bækur til þess
að fletta þeim upp í eða eins og við
gerum í dag, „gúgla“ texta og allt
annað sem við viljum vita.
Skelltu sér á
jólaball árið 1959
Að jólafræðslunni lokinni þá fengu
krakkarnir óvæntan glaðning, en
þeim var boðið í tímavél inni í
stúkuhúsinu og skelltu sér á jólaball
árið 1959. Starfsfólkið var búið að
skreyta svo fallega og alveg í tíðar-
andanum og á miðju gólfi stóð fal-
legt jólatré. Gunnhildur Vilhjálms-
dóttir kennari og foreldri hjá okkur
í bekknum var svo elskuleg að koma
til okkar sem sérlegur leynigestur
og spila fyrir dansi á harmonikku.
Við sungum öll klassísku jólaballa-
lögin og þessi lög kunnu börnin
vel. Þau óku hraustlega undir á
meðan við gengum í kringum jóla-
tréð og gerðum allar gömlu góðu
hreyfingarnar og hnerruðum eins
og tóbakskallar.
Að dansi loknum borðuðum við
hádegisnesti í stúkuhúsinu sem
dásemdirnar í eldhúsinu í Brekkó
höfðu útbúið fyrir okkur og svo
fengu börnin jólasíríuslengju í eftir-
rétt. Hádegisfrímínúturnar tókum
við svo á safnasvæðinu og fórum
í alls konar leiki og skemmtum
okkur konunglega þar til það var
komið að því að taka strætó aftur
til baka upp í skóla. Algjörlega frá-
bær dagur með litla fólkinu okkar
sem fékk þarna tækifæri til að
tengja reynsluheiminn sinn við líf
barna fyrr á tímum og við öll ald-
eilis fróðari um jólin í gamla daga.
Við hlökkum mikið til næstu heim-
sóknar en þá ætlum við að vinna
með Þorrann og myrkrið.
Tinna Steindórsdóttir, kennari í
Brekkubæjarskóla
Ljósm. vaks
Þriðji bekkur í Brekkó hélt jólaball í Stúkuhúsinu
Það var gaman hjá krökkunum á jólaballinu.
Starfsmannafélag slökkviliðsins
gaf eldvarnarkerfi
Guðmundur Reynisson varðstjóri og Óskar Sigurðsson varaslökkviliðsstjóri taka
hér við þakkarbréfinu frá Hildi Sæmundsdóttur síðasta miðvikudag.
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn blaðsins
aðeins verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem geyma myndir fyrir og í kringum
síðustu aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu 2005 og er tekin í Borgarnesi af vinningshöfum
í smásagna- og ljóðasamkeppni Grunnskólans í Borgarnesi í tilefni af degi íslenskrar tungu.
Krakkar á Garðaseli komu við og fengu sér kakó
og piparkökur í kuldanum.
Á leið á jólaballið í stúkuhúsinu. Þessar voru ánægðar með hressinguna eftir jólaballið.
Gunnhildur spilaði og söng fyrir dansi á harmonikkuna.