Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202222
Síðastliðinn sunnudag blésu Íbúa-
samtökin á Hvanneyri til jólagleði
í þorpinu sínu. Gamla bæjartorfan
var ljósum prýdd og fjölmenni sem
mætti til að fanga hinn eina og sanna
jólaanda. Í hlöðu Halldórsfjóss var
handverk og matur úr héraði boðið
til sölu. Þar söng einnig Kirkjukór
Borgarness jólalög og jólasveinar
komu og vöktu mikla kátínu. Utan
dyra var hægt að kaupa jólatré frá
Oddsstöðum. Á Hvanneyri Pub
og í Skemmunni voru veitingar
á boðstólnum og Eyjólfur Krist-
jánsson spilaði og söng fyrir gesti
í Skemmunni. Í íþróttahöllinni tók
Gunnhildur Lind ljósmyndari fjöl-
skyldumyndir. Landbúnaðarsafnið
var opið, sem og Ullarselið. Í kirkj-
unni hélt Sr. Hildur Björk jóla-
hugvekju og var mikið sungið.
Slökkvilið Borgarfjarðar var með
opið hús þar sem slökkviliðsmenn
kenndu m.a. hvernig slökkva á eld
með eldvarnarteppi.
mm
Jólagleði á Hvanneyri
Stekkjastaur og Gluggagægir mættu í Halldórsfjós og vöktu mikla gleði.
Það var margt um manninn í Kaup-
félagi Borgfirðinga við Egilsholt
síðastliðið fimmtudagskvöld, en
þá var boðið upp á jólakvöld. Inni
voru lifandi tónar þar sem Þóra
Sif Svansdóttir söng við undir-
leik Halldórs Hólm. Starfsfólk í
verslun inni bauð upp á ilmandi
vöfflur og heitt súkkulaði og ýmis
jólatilboð voru um búðina. Slökkvi-
lið Borgarbyggðar kom á svæðið
á bílum sínum, hélt m.a. sýni-
kennslu í notkun eldvarnarteppa
og seldi dagatöl sem nýkomin eru
úr prentun. Stemningin var fín og
margir sem gerðu sér ferð til spjalls
og verslunar á aðventunni. Fleiri
verslanir í Borgarnesi voru einnig
með lengdan opnunartíma sama
kvöld.
Blaðamaður Skessuhorns var á
ferðinni og við leyfum myndum að
tala sínu máli.
mm
Kaupfélagið bauð til veislu
Bætt á eldinn.
„Hvort passar betur heima hjá okkur?“
Guðmundur Freyr kynnti og seldi vörur frá Háafelli,
en fjölmargir aðrir söluaðilar voru á ferð og seldu
undir samnefnaranum Beint frá býli.
Þeir voru fimir jólasveinarnir og kenndu krökkunum
hvernig taka á gleðihoppið ef einhver er ekki í nógu góðu
skapi. Mesta furða hvað Stekkjastaur kemur fimur af fjalli. Rita Freyja sýndi réttu tökin á rokkinn.