Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Það er fastur liður í aðventudag-
skrá Alþingis að fjalla um og sam-
þykkja fjárlög fyrir komandi ár. Í
upphafi kjörtímabils voru krefjandi
tímar fram undan, heimsfaraldur
stóð yfir og sama dag og takmörk-
unum var aflétt hér á landi réðust
Rússar inn í Úkraínu. Þessir þættir
hafa skapað óvissu bæði hér innan-
lands sem og í Evrópu. Eðli máls-
ins samkvæmt er það ekki óeðlilegt
í ástandi sem þessu að verðbólga og
hækkun á aðföngum taki sér pláss
í fjárlögum líkt og í heimilisrekstri
landsmanna. Staðan í efnahags-
málum í Evrópu er erfiðari en lengi
hefur verið.
Skýr afkomubati
Þrátt fyrir þessar staðreyndir er
það markmið ríkisstjórnarinnar að
verja sterka stöðu ríkissjóðs með
því að lækka rekstrarhalla og stöðva
hækkun skuldahlutfalls á næsta ári.
Í framlögðum fjárlögum má finna
skynsamleg skref fram á við sem
lúta að því að styrkja áfram innviði
og grunnþjónustu í landinu en það
er sterkur leikur til að verja kaup-
mátt landsmanna. Þá má einnig
finna að dregið er úr útgjöldum
enda var verulega bætt í útgjöld til
að verja störf og heimili í gegnum
heimsfaraldurinn. Það er mikil-
vægt skref til að vinna gegn verð-
bólgu þegar horft er til næstu miss-
era í þjóðarbúskapnum. Í fjárlögum
næsta árs eru þó jákvæð teikn á lofti
um að við séum að vaxa út úr þeim
stóru verkefnum sem við höfum
staðið frammi fyrir og að viðsnún-
ingur geti orðið hraður ef rétt er
haldið á spöðunum.
Treystum
heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðiskerfið með öllu sínu
frábæra starfsfólki hefur staðið
sem klettur í gegnum heimsfar-
aldur þrátt fyrir mikla ágjöf. En svo
það geti staðið sterkt áfram þarf að
bæta verulega í málaflokkinn. Við
erum enn að glíma við eftirköstin
eftir faraldurinn og þá þurfum við
einnig að mæta næstu áskorun sem
er fjölgun landsmanna og stækk-
andi hópur eldra fólks. Auk þess er
til staðar uppsöfnuð þjónustuþörf
eftir Covid. Ríkisstjórnin stendur
með heilbrigðiskerfinu en fram-
lög til heilbrigðismála hækka um
17,4 ma.kr. á næsta ári. Þar vegur
þyngst 6,8 ma.kr raunhækkun
til heilbrigðisstofnana og sjúkra-
trygginga til að koma til móts við
aukna eftirspurn og öldrun þjóðar-
innar. Þá verður áfram haldið við
að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta
viðkomustað innan heilbrigðiskerf-
isins með 2. ma. viðbótarframlagi
auk þess sem horft er til þess að efla
heimahjúkrun.
Ferjurekstur tryggður
Það er örugglega öllum enn í fersku
minni þegar Breiðafjarðarferjan
Baldur bilaði í siglingu sinni yfir
fjörðinn og minnti okkur rækilega
á mikilvægi þess að þeir farþegar
sem nýta sér þennan samgöngu-
máta geti treyst á öryggi skipsins.
Sveitarfélög beggja megin Breiða-
fjarðar telja mikilvægt að tryggja
þennan samgöngumáta, þrátt fyrir
að bættar samgöngur á vegum
stæði fyrir dyrum.
Í fjárlögum næsta árs má nú finna
210 m.kr. til þess að tryggja ferju-
rekstur um Breiðafjörð. Þá er það
fyrirséð að núverandi rekstraraðili
ferjunnar Baldurs mun hætta sigl-
ingum um Breiðafjörð. Þess í stað
er gert ráð fyrir því að leigja eða
kaupa aðra ferju og hefur eitt skip
komið til álita, Röst, sem er nú í
siglingum í Norður - Noregi.
Löggæsla efld
Áform eru uppi um að styrkja lög-
regluna um allt land með því að
dreifa verkefnum á lögregluemb-
ættin út um landið og dreifa þannig
álaginu. Á sama tíma á að styrkja
grunnviðbragð lögregluembætt-
anna á landsbyggðinni. Auk þess
sem meirihluti fjárlaganefndar
lagði til aukna fjárheimild upp
á 200 milljónir til að draga úr
aðhaldskröfu á lögregluna.
Velferðarfjárlög
Heilt yfir getum við horft til þess að
fjárlög fyrir árið 2023 séu velferðar-
fjárlög, þar má m.a. finna hækkun á
frítekjumarki atvinnutekna örorku
og endurhæfingalífeyrisþegar í
200 þúsund, aukið kastljós á heil-
brigðiskerfið, tímabundið framlag
til sveitarfélaga vegna samræmdrar
móttöku flóttamanna ásamt sérs-
töku úrræði í tengslum við móttöku
flóttabarna.
Sterk landsbyggð
tekur á móti nýjum
áskorunum
Við horfum fram á veginn inn í
nýja framtíð. Við sjáum það nú að
stuðningur stjórnvalda í gegnum
heimsfaraldur við atvinnulífið og
fjölskyldur í landinu skilaði því
að við komum standandi niður
eftir heimsfaraldur og stöndum
mun betur en margar aðrar þjóðir.
Með mörgum ákveðnum og mark-
vissum skrefum voru settir saman
aðgerðarpakkar til að verja fólk og
fyrirtæki. Áfram verða þó til staðar
áskoranir sem takast þarf á við, en
þetta ár hefur sýnt að byggðarlög
um land allt eru tilbúin í að nýta sér
þau tækifæri og sérstöðu sem þau
búa við, til að vaxa áfram og dafna.
Áfram veginn!
Stefán Vagn Stefánsson
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Halla Signý Kristjánsdóttir
Höf. eru þingmenn Framsóknar-
flokks í NV kjördæmi
Verja þarf sterka stöðu
ríkissjóðs í fjárlögum 2023
Pennagrein