Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2022 23
Félagið hóf störf á Vesturlandi 2018
og hefur síðan farið eins og þeyti-
vinda um Vesturland að sinna villi-
og vergangskisum. Einnig aðstoðað
við leit að týndum kisum og þannig
komið þeim aftur heim. Deildin
hefur fengið endalausan stuðning
frá almenningi, sem stendur þétt
við bakið á okkur og á endalaust
hrós og þakklæti skilið. Án þess
stuðnings væri þetta starf erfiðara
en það er.
Það þýðir þó ekki að allt sé dans á
rósum. Þrátt fyrir frábæran stuðn-
ing almennings, vantar félaginu
bráðnauðsynlega almennilegt hús-
næði undir starfsemina, en hingað
til hefur verið notast við skrif-
stofugám á Akranesi sem félagið
fékk að gjöf frá Stálsmiðjunni. Það
hefur reynst félaginu vel og hafa
ófáir kettir fengið aðstoð þar, en
gámurinn er kominn til ára sinna
og þarf að ditta að mörgu til að
notagildi hans verði sem lengst.
Þetta er ekki endanleg lausn á
húsnæðisvanda félagsins og hefur
félagið sent ákall til bæjaryfirvalda
á Akranesi um aðstoð. En hingað til
hefur ekkert orðið úr slíkri aðstoð,
en við höldum í þá von um að eitt-
hvað úrræði sé í boði.
Villingar í koti
Núna nýlega kom það upp að ekk-
ert rafmagn var á kotinu og þurfi
því að ráðstafa öllum þeim köttum
sem þar voru annað. Voru það sjálf-
boðaliðar félagsins sem stukku til
og sjá nú um ketti félagsins á sínum
heimilum. Þetta vandamál hamlar
starfinu svakalega, þar sem ekki er
möguleiki á áframhaldandi vinnu ef
ekkert húsnæði er til boða. Hefur
félagið ítrekað leitað eftir aðstoð
bæjaryfirvalda, en engin lausn
fundist ennþá.
Villikettir vinna eftir TNR, en
það stendur fyrir Trap-Neuter-Re-
turn, eða fanga-gelda-skila. Þetta á
við um alla þá villiketti sem koma
inn hjá félaginu. Þá eru þeir fang-
aðir, hlúð að þeim eins og þarf,
fressir geltir og síðar meir skilað
aftur á þeirra heimaslóðir ef kostur
er á. Annars er fundið annað fyrir-
komulag fyrir kettina.
Vergangskettir eru kettir sem
orðið hafa úti af einhverri ástæðu.
Félagið tekur þá inn og mannar
þá upp á nýtt, en eftir langa úti-
veru er oft traust til mannfólksins
takmarkað. Fjöldi vergangskatta
hefur margfaldast síðustu ár og
eru þeir hlutfallslega fleiri en vill-
ingarnir sem koma inn. Það er því
ekki óalgengt að ungir kettir rati í
hendur félagsins. Það má segja frá
því að Villikettir Vesturlands eru
nú með þrjá vergangsketti sem eru
í mönnun og bíða eftir tækifæri á
nýju heimili.
Þar sem fleiri og fleiri vergangs-
kettir koma inn eru þeir að ílengjast
hjá félaginu, þar sem mönnunar-
tímabilið er jafn misjafnt og
kettirnir eru margir. Án almenni-
legs húsnæðis hamlar þetta frekari
vinnu hjá félaginu, þar sem enda-
laust er af köttum sem þurfa aðstoð
félagsins, en ekkert pláss er fyrir þá.
Eina sem deildin getur gert er að
fylgjast með þeim og gera allt sem
það hefur tök á þar til möguleiki er
að koma þeim inn.
Villikettir Vesturlands hafa sinnt
57 köttum innan bæjarmarka Akra-
ness frá byrjun árs 2018, en allt
í allt hefur félagið komið að 108
köttum víðsvegar á Vesturlandi á
einn eða annan hátt. En sú tala gæti
verið margfalt hærri ef félagið hefði
almennilegt húsnæði til að sinna
starfinu í.
Félagið vonar að lausn á þessum
vanda komi sem fyrst, því það er
hrikalegt að hugsa til allra þeirra
katta sem þurfa á okkur að halda og
maður getur ekkert gert.
Eins og komið hefur fram hefur
deildin okkar leitað til Akranes-
kaupstaðar oft í von um aðstoð, en
engin svör fengist. Það er því komið
að Akraneskaupstað að koma til
móts við okkur, þar sem bæjarbúar
standa þétt við bakið á okkur en
bæjaryfirvöld látið oftar afskipta-
laus. Án þeirra aðstoðar stendur
starfið örlítið í stað, þar sem litla
kotið okkar er ekki endanleg lausn
og getur félagið ekki tekið inn ketti
sem því er bent á og hrannast því
upp verkefnin.
Villikettir er sjálfboðaliðastarf
og treystir félagið á styrki til að
geta hlúð að öllum þeim köttum
sem koma inn, en margir þurfa
auk þess aðstoð dýralækna, sem
getur verið kostnaðarsamt. Félagið
er með styrktarreikninga sem allir
sem vilja og hafa tök á geta lagt inn
og þannig stutt við starfið. Sjúkra-
sjóður fer óskertur í að hlúa að
öllum köttum félagsins á landsvísu:
R.nr: 0111-26-73030
Kt: 710314-1790
Svo er Villikettir Vesturlands líka
með reikning, en hann fer alfarið í
uppihald núverandi kots og kostnað
sem fylgir kisunum. Eins er félagið
að safna fyrir almennilegu húsnæði.
R.nr: 0133-26-005536
Kt: 710314-1790
Loks má geta þess að Villikettir
Vesturlands verða með jólamarkað
helgina 17.-18. desember og á Þor-
láksmessu í gamla Nínu húsinu við
Akratorg. Hvetjum við alla til að
koma og sína félaginu stuðning.
-fréttatilkynning
Frá félaginu
Villiköttum Vesturlands
Íbbi var fyrsti kötturinn sem Villikettir Vesturlands tóku inn.
Vergangskisi sem fékk heimili.
Skari var lengi á vergangi á Akranesi áður en félagið náði
honum inn. Undir sjúskuðu útliti leyndist algjör bangsi.
Skari heitir í dag Óskar og nýtur þess að vera heimilisprins
með manneskjunni sinni.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Opinber heimsókn forseta
Íslands og 80 ára afmæli
Akraneskaupstaðar
Hátíðardagskrá 15. desember, 16:30–18:00
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid koma í
opinbera heimsókn á Akranes þann 15. desember næstkomandi.
Akurnesingum er boðið að koma í Breið nýsköpunarsetur og
þiggja veitingar ásamt forsetahjónunum og einnig í tilefni 80 ára
afmælis Akraneskaupstaðar.
Akraneskaupstaður hvetur jafnframt fólk og fyrirtæki til að
skreyta og flagga með íslenska fánanum þennan dag.
Skipulagslýsing vegna
hafnarsvæðis við Skipavík
Þann 8. desember sl. samþykkti bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar og Helgafells-
sveitar að kynna skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms
2002-2022 og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Skipavík í
samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
með vísan í 1. mgr. 36. gr. laganna.
Skipulagslýsingin er til sýnis á vef sveitarfélagsins og á bæjarskrifstofunni þar
sem íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta kynnt sér efni hennar. Hún var til kynn-
ingar á opnu húsi 9. desember sl. í Amtbókasafninu í Stykkishólmi og verður
aftur kynnt á opnu húsi 14. desember kl. 12-17 á skrifstofu umhverfis-
og skipulagssviðs í Ráðhúsi Stykkishólms.
Lýsingin er jafnframt send Skipulagsstofnun og öðrum aðilum til umsagnar
eins og lög gera ráð fyrir.
Ábendingar og/eða athugasemdir varðandi skipulagslýsinguna skulu vera skrif-
legar og berast skipulagsfulltrúa til og með 6. janúar 2023 að Hafnargötu 3,
340 Stykkishólmi eða á netfangið: skipulag@stykkisholmur.is.
Stykkishólmi 9. desember 2022.
Kristín Þorleifsdóttir
Skipulagsfulltrúi
340 STYKKISHOLMUR, SÍMI 433 8100 NETFANG: stykkisholmur@stykkisholmur.is KT.: 620269-7009
BÓKAÚRVALIÐ
er hjá okkur
AUSTURVEGI 22
Opið mán.–lau. 12–18
ÁRMÚLA 42
Opið mán.–fös. 11–18
lau. 11–16