Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 20226
Lauk
doktorsnámi
BORGARFJ: Dr. Bjarki Þór
Grönfeldt Gunnarsson lauk
á dögunum doktorsnámi við
University of Kent í Bretlandi
þegar hann varði doktorsrit-
gerð sína í stjórnmálasálfræði.
Bjarki er stúdent frá Mennta-
skóla Borgarfjarðar og á nú
sæti í stjórn skólans. Að loknu
námi í MB útskrifaðist Bjarki
með bakkalárgráðu í sálfræði
frá Háskólanum í Reykjavík
og lauk svo meistaragráðu við
University of Kent árið 2018.
Doktorsverkefni Bjarka fjallar
um sameiginlegan narsiss-
isma (e. collective narciss-
ism) og hvernig slíkur narsiss-
ismi tengdist viðhorfum
um Covid-19 faraldurinn í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Bjarki starfar nú við Háskól-
ann á Bifröst og sinnir meðal
annars rannsóknaverkefnum á
vegum Samtaka sveitarfélaga á
Vestur landi. -vaks
Nýr badminton-
þjálfari til ÍA
AKRANES: Badminton-
félag Akraness hefur ráðið
nýjan þjálfara til félagsins.
Hann heitir Advait Vanarse
og kemur frá Indlandi. Hann
er með BA gráðu í sálfræði og
mastersgráðu í íþróttasálfræði
og hefur þjálfað badminton
í nokkur ár, bæði í Bretlandi
og á Indlandi. Advait byrjaði
að þjálfa hjá félaginu á mánu-
daginn og mun sjá um æfingar
allra flokka. Félagið hefur
einnig ráðið inn aðstoðarþjálf-
ara í 2. og 3. flokki og munu
þau Aníta Sif Flosadóttir og
Hilmar Veigar Ágústsson
skipta því á milli sín. -vaks
Breytingar á
snjómokstri
BORGARB: Sveitarstjórn
Borgarbyggðar hefur ákveðið
að gera breytingar á fyrir-
komulagi snjómoksturs í dreif-
býli. Sveitarfélaginu verður
skipt upp í sjö svæði og gerður
samningur við verktaka á
grundvelli verðfyrirspurnar
um hverja leið. Gerður verður
samningur til eins vetrar í
senn, með möguleika á fram-
lengingu. Fram kemur á vef
Borgarbyggðar að nú hafa
verðfyrirspurnargögn verið
send í tölvupósti á fjölmarga
aðila sem hugsanlega hafa tök
á að sinna þessari þjónustu og
gert ráð fyrir að búið verði að
semja um allar leiðir fyrir ára-
mót. -vaks
Umferðarmet
á Hringvegi í
nóvember
LANDIÐ: Umferðin á
Hringvegi (1) í nóvember í
ár var ríflega 11% meiri en
í sama mánuði í fyrra. Þetta
kemur fram í frétt á vef Vega-
gerðarinnar. Þar segir að lík-
legt þyki að einkar gott veður-
far í nóvember þetta árið hafi
leitt til aukinnar umferðar.
Umferð hefur aukist á öllum
vikudögum miðað við nóvem-
ber í fyrra. Þá er mesta aukn-
ingin á fimmtudögum, um
6%, en minnst á mánudögum,
um 2%. Mest er ekið á föstu-
dögum og minnst á laugar-
dögum. Nú þegar aðeins
tæpur mánuður er eftir af
árinu stefnir í að umferðin á
hringveginum í ár verði um
4% meiri en hún var á síðasta
ári. -gbþ
Jólasveinar
á þvælingi
STYKKIS: Í ár hefur
Þjónustu miðstöðin í Stykkis-
hólmi sett upp jólasveina-
ratleik. Nú gefst bæjar-
búum kostur á að arka um
Stykkishólm og leita að jóla-
sveinunum þrettán sem eru
þar í ýmsum erindagjörðum
fyrir jólin. Sveinarnir munu
birtast hér og þar um bæinn,
einn af öðrum og hófst ratleik-
urinn með komu Stekkjar-
staurs síðasta mánudag. Í dag,
miðvikudag, er því um að gera
að fara út og leita að Stúfi en
hann geymir svo vísbendingu
um hvar megi finna bróður
hans, Þvörusleiki. -gbþ
Heildarútkall var á Slökkvilið
Borgarbyggðar um klukkan tíu
síðast liðinn fimmtudagsmorgun
þegar kviknað hafði í út frá kamínu
í sumarhúsi í Hvammslandi niður
við Skorradalsvatn. Eigandi hússins
var einn í húsinu og tókst honum,
að sögn Heiðars Arnar Jónssonar
varaslökkviliðsstjóra, að halda
eldinum í skefjum og brást hár-
rétt við með því að loka gluggum
og hurðum svo sem minnst súrefni
kæmist að eldinum. Þá sprautaði
hann á eldinn með garðslöngu. Það
tók því einungis örfáar mínútur að
slökkva eldinn eftir að slökkviliðið
kom á staðinn og var útkallið aftur-
kallað um klukkustund síðar. Ljóst
er að töluverðar reykskemmdir
urðu í húsinu en eigandi þess slas-
aðist ekki.
gbþ/ Ljósm. mm
Í síðustu viku lauk Lúðvík Helga-
son, smiður og fyrrum húsvörður
í Grundaskóla á Akranesi, við að
byggja nýjan og glæsilegan útipall
við skólann. Pallurinn er sunnan
megin við skólann og mun í fram-
tíðinni hýsa útikennslu og vinnu-
aðstöðu fyrir nemendur skólans.
Einnig er möguleiki á að ganga út
úr mötuneytinu og borða úti á góð-
viðrisdögum. Pallurinn er allur hin
mesta listasmíð og hluti af þeirri
markvissu uppbyggingu sem unnið
er að í Grundaskóla um þessar
mundir, segir í frétt á heimasíðu
skólans.
vaks
Nýr útipallur við Grundaskóla
Eldur út frá kamínu í sumarhúsi
Nýi útipallurinn er hin mesta listasmíð. Ljósm. grundaskoli.is
Hér má sjá þegar Sigurður
Arnar skólastjóri þakkaði
Lúðvík fyrir frábæra vinnu og
tók formlega við verkinu fyrir
hönd Grundaskóla.