Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2022, Síða 28

Skessuhorn - 14.12.2022, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202228 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna GJ málun ehf málningarþjónusta Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Það er fastur liður í aðventudag- skrá Alþingis að fjalla um og sam- þykkja fjárlög fyrir komandi ár. Í upphafi kjörtímabils voru krefjandi tímar fram undan, heimsfaraldur stóð yfir og sama dag og takmörk- unum var aflétt hér á landi réðust Rússar inn í Úkraínu. Þessir þættir hafa skapað óvissu bæði hér innan- lands sem og í Evrópu. Eðli máls- ins samkvæmt er það ekki óeðlilegt í ástandi sem þessu að verðbólga og hækkun á aðföngum taki sér pláss í fjárlögum líkt og í heimilisrekstri landsmanna. Staðan í efnahags- málum í Evrópu er erfiðari en lengi hefur verið. Skýr afkomubati Þrátt fyrir þessar staðreyndir er það markmið ríkisstjórnarinnar að verja sterka stöðu ríkissjóðs með því að lækka rekstrarhalla og stöðva hækkun skuldahlutfalls á næsta ári. Í framlögðum fjárlögum má finna skynsamleg skref fram á við sem lúta að því að styrkja áfram innviði og grunnþjónustu í landinu en það er sterkur leikur til að verja kaup- mátt landsmanna. Þá má einnig finna að dregið er úr útgjöldum enda var verulega bætt í útgjöld til að verja störf og heimili í gegnum heimsfaraldurinn. Það er mikil- vægt skref til að vinna gegn verð- bólgu þegar horft er til næstu miss- era í þjóðarbúskapnum. Í fjárlögum næsta árs eru þó jákvæð teikn á lofti um að við séum að vaxa út úr þeim stóru verkefnum sem við höfum staðið frammi fyrir og að viðsnún- ingur geti orðið hraður ef rétt er haldið á spöðunum. Treystum heilbrigðisþjónustu Heilbrigðiskerfið með öllu sínu frábæra starfsfólki hefur staðið sem klettur í gegnum heimsfar- aldur þrátt fyrir mikla ágjöf. En svo það geti staðið sterkt áfram þarf að bæta verulega í málaflokkinn. Við erum enn að glíma við eftirköstin eftir faraldurinn og þá þurfum við einnig að mæta næstu áskorun sem er fjölgun landsmanna og stækk- andi hópur eldra fólks. Auk þess er til staðar uppsöfnuð þjónustuþörf eftir Covid. Ríkisstjórnin stendur með heilbrigðiskerfinu en fram- lög til heilbrigðismála hækka um 17,4 ma.kr. á næsta ári. Þar vegur þyngst 6,8 ma.kr raunhækkun til heilbrigðisstofnana og sjúkra- trygginga til að koma til móts við aukna eftirspurn og öldrun þjóðar- innar. Þá verður áfram haldið við að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað innan heilbrigðiskerf- isins með 2. ma. viðbótarframlagi auk þess sem horft er til þess að efla heimahjúkrun. Ferjurekstur tryggður Það er örugglega öllum enn í fersku minni þegar Breiðafjarðarferjan Baldur bilaði í siglingu sinni yfir fjörðinn og minnti okkur rækilega á mikilvægi þess að þeir farþegar sem nýta sér þennan samgöngu- máta geti treyst á öryggi skipsins. Sveitarfélög beggja megin Breiða- fjarðar telja mikilvægt að tryggja þennan samgöngumáta, þrátt fyrir að bættar samgöngur á vegum stæði fyrir dyrum. Í fjárlögum næsta árs má nú finna 210 m.kr. til þess að tryggja ferju- rekstur um Breiðafjörð. Þá er það fyrirséð að núverandi rekstraraðili ferjunnar Baldurs mun hætta sigl- ingum um Breiðafjörð. Þess í stað er gert ráð fyrir því að leigja eða kaupa aðra ferju og hefur eitt skip komið til álita, Röst, sem er nú í siglingum í Norður - Noregi. Löggæsla efld Áform eru uppi um að styrkja lög- regluna um allt land með því að dreifa verkefnum á lögregluemb- ættin út um landið og dreifa þannig álaginu. Á sama tíma á að styrkja grunnviðbragð lögregluembætt- anna á landsbyggðinni. Auk þess sem meirihluti fjárlaganefndar lagði til aukna fjárheimild upp á 200 milljónir til að draga úr aðhaldskröfu á lögregluna. Velferðarfjárlög Heilt yfir getum við horft til þess að fjárlög fyrir árið 2023 séu velferðar- fjárlög, þar má m.a. finna hækkun á frítekjumarki atvinnutekna örorku og endurhæfingalífeyrisþegar í 200 þúsund, aukið kastljós á heil- brigðiskerfið, tímabundið framlag til sveitarfélaga vegna samræmdrar móttöku flóttamanna ásamt sérs- töku úrræði í tengslum við móttöku flóttabarna. Sterk landsbyggð tekur á móti nýjum áskorunum Við horfum fram á veginn inn í nýja framtíð. Við sjáum það nú að stuðningur stjórnvalda í gegnum heimsfaraldur við atvinnulífið og fjölskyldur í landinu skilaði því að við komum standandi niður eftir heimsfaraldur og stöndum mun betur en margar aðrar þjóðir. Með mörgum ákveðnum og mark- vissum skrefum voru settir saman aðgerðarpakkar til að verja fólk og fyrirtæki. Áfram verða þó til staðar áskoranir sem takast þarf á við, en þetta ár hefur sýnt að byggðarlög um land allt eru tilbúin í að nýta sér þau tækifæri og sérstöðu sem þau búa við, til að vaxa áfram og dafna. Áfram veginn! Stefán Vagn Stefánsson Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Halla Signý Kristjánsdóttir Höf. eru þingmenn Framsóknar- flokks í NV kjördæmi Verja þarf sterka stöðu ríkissjóðs í fjárlögum 2023 Pennagrein

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.