Skessuhorn - 14.12.2022, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2022 17
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér...
Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum
Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur
Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla
Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu
Mikil sala
og gott kaffi
Við erum með bílinn fyrir þig!
var nafnið mitt bara lesið upp á
sviðinu og ég kölluð upp til að taka
á móti verðlaununum. Ég fór ægi-
lega mikið hjá mér og var ótrúlega
hissa!“ segir Ásdís en þarna höfðu
margir hennar kúnna gefið sér tíma
til að senda inn umsögn um hana
sem svo varð til þess að hún hreppti
verðlaunin.
Að fara auka mílu
fyrir mína kúnna
„Mér fannst þetta frekar frábært
því ég hélt að ég myndi ekki vinna.
En ég fékk svo áframsend sum af
þeim skilaboðum þar sem fólk var
að tilnefna mig og ég hálfklökkn-
aði bara yfir því hvað fólk var ánægt
með mína vinnu. Og að það taki
sér tíma til þess að skrifa eitthvað
svona fallegt um mig og láta vita
að það sé ánægt, það er ekki sjálf-
gefið. Þessi viðurkenning þýðir
kannski ekki neitt fyrir neinn nema
mig sjálfa,“ segir Ásdís og bætir við:
„Ég var tilnefnd fyrir að vera með
góða nálgun á mína kúnna, fyrir að
hjálpa og fara þessa auka mílu fyrir
mína kúnna. Það sem gerir það sér-
staklega gaman að hafa unnið verð-
launin er að maður er svo gjarn á
að hugsa að maður sé ekki nógu
góður, það séu alltaf aðrir betri en
maður sjálfur, klárari og hafa lært
meira. En það er ekki þannig. Fólk
hefur bara lært öðruvísi og allir
gera mismunandi hluti. Og það er
svo mikilvægt fyrir krakka að skilja
að það sem maður hefur áhuga á
getur maður orðið góður í, alveg
sama hvað það er og þá þarf maður
að leita þangað og vinna að því.“
„Annars á maður í þeirri hættu á
að sitja eftir seinna í lífinu og hugsa
„af hverju gerði ég þetta ekki“ og
„af hverju gat ég þetta ekki en þessi
gat þetta?“ En þetta hefur ekk-
ert með það að gera. Þú gast þetta
alveg líka en þú bara ákvaðst að þú
gætir þetta ekki.“
Þá er ég hætt
Ásdís segir lykilinn að farsæld
sinni í starfi vera sá að hún gefur
fyrsta kúnna dagsins sömu með-
ferð og þeim síðasta. „Ég tek ekki
mjög marga kúnna á dag af því ég
bara get það ekki. Djúpnuddið er
svakalega slítandi fyrir liðina af því
maður er alltaf að ýta og ég nota
ekki olnboga eða aðra líkamsparta
til að nudda með því ég þarf að
nota fingurna til að finna hvar ég
á að vinna. Ég er þess vegna mjög
sterk í höndunum og fingrunum en
þessu fylgir líka ákveðin tækni þar
sem maður notar þungann í sínum
eigin líkama til þess að ná að nudda
dýpra. En ég vil líka læra aðrar
aðferðir til þess að geta losað um
spennu með öðrum hætti, og ég á
von á því að ég sitji fleiri námskeið
í náinni framtíð til að auka þekk-
ingu mína,“ segir Ásdís og bætir að
lokum við. „En þegar ég kem til
með að finna þá tilfinningu að mér
leiðist vinnan mín, þá er ég hætt.
Af því það er ekki sanngjarnt fyrir
mína kúnna að ég gefi þeim ekki
allt sem þeir þurfa – og fyrir það
fékk ég þessa viðurkenningu.“
gbþ/ Ljósm. úr einkasafni
Ásdís fylgdi tónlistarmanninum Michael Bublé og föruneyti hans m.a. til Danmerkur,
Englands og Svíþjóðar. Hér er vinnuaðstaða hennar í Royal Arena í Kaupmannahöfn.
Á fundi skipulags- og umhverfis-
ráðs Akraneskaupstaðar síðasta
mánudag var meðal annars fjallað
um málefni miðbæjar Akraness.
Fulltrúar frá Miðbæjarsamtök-
unum Akratorgi mættu til fundar-
ins, kynntu samtökin og ræddu
hugmyndir um hvernig bæta megi
ásýnd gamla miðbæjarins og glæða
hann enn meira lífi.
Skipulags- og umhverfisráð
þakkaði Önnu Guðrúnu, Ólafi Páli
og Bjarnheiði fyrir kynningu á sam-
tökunum og góðar umræður. Fram
kemur í fundargerð að ráðið muni
kappkosta að eiga gott og upp-
byggilegt samstarf við samtökin.
vaks
Miðbæjarsamtökin hittu
nefndarmenn á fundi
Frá vinstri: Guðm. Ingþór Guðjónsson, Anna Guðrún Ahlbrecht, Bjarnheiður
Hallsdóttir, Valgarður Lyngdal Jónsson, Sædís Alexía Sigurmundsdóttir og Ólafur
Páll Gunnarsson. Ljósm. af akranes.is
Árgerð 2021, ekinn 41 þ. km, dísil, 1598 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, dráttarbeisli.
Kia Sportage Mild Hybrid Black Edition
997063
Staðgreiðsluverð
5.390.000 kr. 44.568 kr.Afborgun
á mánuði*
*m.v. 50% fjármögnunarhlutfall til 84 mánaða með 8,50% vöxtum. Heildarkostnaður: 6.435.390 kr. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,34%
590 2160
notadir.is
VETRAR- &
SUMARDEKK FYLGJA
AUK DRÁTTARBEISLIS