Skessuhorn - 14.12.2022, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2022 29
Akranes
dagarnir 13.-15. desember
Skagakonan Jóhanna Kristín
Guðmundsdóttir sýnir ýmsar
jólahannyrðir í Bókasafni Akra-
ness. Sýningin verður uppi
um aðventuna og er opin á
afgreiðslutíma Bókasafnsins, virka
daga kl. 10-18 og á laugardögum
kl. 11-14.
Borgarnes
miðvikudagur 14. desmeber
Æskulýðsnefnd Hestamanna-
félagsins Borgfirðings stendur
fyrir Jólabingói fyrir börn og ung-
menni. Viðburðurinn fer fram í
félagsheimilinu Vindási og hefst
kl. 17:00. Bingóið er fyrir alla
hestakrakka undir 21 árs. For-
eldrar eru velkomnir með þeim
yngstu. Fyrsta spjald kostar
1000 kr næsta 500 kr.
Borgarfjörður
miðvikudagur 14. desember
Upplestur og umræður um
nokkrar nýútkomnar bækur í bók-
hlöðu Snorrastofu, hefst kl. 20.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Akranes
fimmtudagur 15. desember
Forseti Íslands og frú koma í opin-
bera heimsókn til Akraness í til-
efni 80 ára kaupstaðarafmælis.
Sjá nánar frétt og auglýsingu hér
í blaðinu.
Stykkishólmur
fimmtudagur 15. desember
Kökubasar og leiðisgreinasala
Lionsklúbbsins Hörpu í Stykkis-
hólmi verður í Lionshúsinu kl.
15-17.
Rif
fimmtudagur 15. desember
Pub Quiz verður á Frystiklef-
anum og hefst kl. 20:30. Veg-
legir vinningar í boði. Mest fimm
mega vera saman í liði. Almennar
spurningar, fótboltaþema,
athyglis þrautin og tóndæmi, eitt-
hvað fyrir alla. Mælt er með því að
taka frá borð.
Borgarfjörður
fimmtudagur 15. desember
Þá koma víst jól – jólatónleikar
Freyjukórsins hefjast kl. 20 í Reyk-
holtskirkju. Freyjurnar fá til sín
góða gesti og miðaverð er 3.000
kr. Innifalið er kaffi, kruðerí og
konfekt í hléi.
Hvalfjörður
fimmtudagur 15. desember
Tríóið Jólanjólar býður upp á tón-
leika í léttri aðventustemningu á
Bjarteyjarsandi kl. 20. Tríóið skipa
Helgi Georgsson, Jónína Magnús-
dóttir og Linda Guðmundsdóttir.
Aðgangur kostar 2.500 kr og
miðasala verður á staðnum.
Akranes
föstudagur 16. desember
ÍA og Selfoss eigast við í 1. deild
karla í körfuknattleik í íþróttahús-
inu á Vesturgötu og hefst viður-
eignin klukkan 19.15.
Stykkishólmur
föstudagur 16. desember
Tónlistarmaðurinn KK verður með
jólatónleika á Vatnasafninu. Tak-
markað sætaframboð en skráning
fer fram á vatnasafn@gmail.com.
Akranes
helgin 17.-18. desember
Jólamarkaður á Akratorgi verður
opin kl. 13-18 laugardag og
sunnudag.
Búðardalur
helgin 17.-18. desember
Rjómabúið Erpsstaðir verður opið
laugardag og sunnudag kl 13-17.
Hægt verður að fara í fjósið,
klappa kálfunum og sjá kýrnar
mjólkaðar. Versla sér rjómaís
og sorbet fyrir hátíðirnar eða
næla sér í ost og góða sultu, eða
íslenskt handverk. Glímufélagið
verður á staðnum og sér um jóla-
tréssölu. Einnig er opið í Sælu-
reitinum Árbliki og þar er hægt
að setjast niður í hlýjum rúm-
góðum sal og bragða á bakkelsi
og súkkulaði. Stutt í Búðardal, þar
er hægt að fá góðan mat í Dala-
koti og ótrúlegt úrval af hand-
verki eftir heimamenn hjá Bolla.
Gaman að hafa skauta með í
för, hér er hægt að renna sér á
skautum víða þessa dagana,
muna að klæða sig vel!
Stykkishólmur
laugardagur 17. desember
Jólatréssala Skógræktarfélags
Stykkishólms kl. 11-15 í Saur-
skógi. Tónlist, skreytingar í lundi
og kakósala verður á staðnum.
Stykkishólmur
laugardagur 17. desember
Jólasýning í Norska húsinu kl.
13-17. Sparistellið í jólabúningi,
einnig verður hægt að mála sinn
eigin jólabolla.
Stykkishólmur
laugardagur 17. desember
Hljómsveitin Betra með rjóma
treður upp á vinnustofu Tang &
Riis kl.16.
Akranes
laugardagur 17. desember
Söngvarinn Valdimar Guðmunds-
son syngur hugljúf jólalög í Akra-
neskirkju í nýjum útsetningum
með hljómsveit sinni, LÓN. Húsið
opnar klukkan 20:00 og hefjast
tónleikarnir klukkan 20:30 Miða-
verð er 4.900 kr og fer miðasala
fram á tix.is.
Hvalfjörður – sunnudagur 18.
desember
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,
og sex manna blásarasveit flytur
jólatónlist í Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Sérstakir gestir þeirra eru
Margrét Bóasdóttir, sópran og Kór
Saurbæjarprestakalls, stjórnandi
er Zsuzsanna Budai. Aðgangs-
eyrir kr. 2500.- fyrir fullorðna. Frítt
fyrir börn.
Borgarfjörður – þriðjudagur
20. desember
Reykholtskórinn, Reykholtskirkja
og Snorrastofa bjóða á Aðventu-
kvöld í Reykholtskirkju sem hefst
kl. 20. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir. Söfnunarbaukur á
staðnum ef fólk vill styrkja söng-
starfið.
Á döfinni
Nýfæddir Vestlendingar
10. desember. Drengur.
Þyngd: 3.360 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Karen
Sif Jónsdóttir og Ívar Örn Valgeirsson, Mosfellsbæ.
Ljósmóðir: Málfríður Stefanía Þórðardóttir.
12. desember. Drengur.
Þyngd: 4.306 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Rakel Ösp
Elvarsdóttir og Hrannar Ingi Hjaltason, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir.
Gott og vel staðsett parhús, ca. 140m2,
3 svefnherbergi og bílskúr. Laus strax.
Eingöngu reyklausir og reglusamir
einstaklingar koma til greina.
Gæludýr eru ekki leyfð.
Upplýsingar í síma 893-3395.
Til leigu á
Hvanneyri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Byggðasaga Skagafjarðar
heildarútgáfa 1.-10. bindi.
Tíunda bindið kostar kr. 10.000.
Eldri bindi kr. 6.000 stk.
Tilboðsverð,
öll bindin 1.–10.
á aðeins 50.000 kr.
Sögufélag Skagfirðinga
kt: 640269 - 4649
banki: 0310 - 26 - 017302.
Upplýsingar og pantanir í
síma 453 6261 / 897 8646
eða á saga@skagafjordur.is
Frí heimsending ef keyptar
eru tvær bækur eða fleiri.
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Sunnudagur 18. Desember
Akraneskirkja
Jólasöngvar kl. 11.
Hljómur Kór eldri borgara syngur
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Sunnudagur 18. Desember
Akraneskirkja
Jólasöngvar kl. 11.
Hljómur Kór eldri borgara syngur