Skessuhorn - 14.12.2022, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 202230
Spurning
vikunnar
Hvaða jólasveinn
finnst þér skemmtilegastur?
Spurt í Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit
Axel Freyr Guðmundsson
„Stúfur.“
Alexandra Ásta Sigurðardóttir
„Stekkjastaur.“
Mikael Sesar Erlingsson
„Hurðaskellir.“
Guðrún Agnes Birkisdóttir
„Gluggagægir.“
Markús Berg Ómarsson
„Bjúgnakrækir.“
Um síðustu helgi hélt Fimleika-
félag Akraness Fim-leikana 2022
í fyrsta skipti en um var að ræða
innan félagsgleði þar sem allir
flokkar fimleikafélags ÍA fengu
tækifæri til að láta ljós sitt skína. Á
fimmtudaginn var jólasýning hjá
grunnhópum og eftir sýninguna
var opin æfing þar sem foreldrar
fengu að taka þátt. Á föstudeginum
var parkour partý þar sem iðkendur
spreyttu sig í þrautabraut og „wall
flip“ keppni. Á laugardaginn var
íþróttaskóli með jólaívafi, innan-
félagsmót yngri keppnishópa þar
sem árgangar kepptu innbyrðis
og sýndu keppnisdansa og deg-
inum lauk á húllumhæi fyrir eldri
keppnis hópana.
Frítt var inn á viðburðinn og
boðið var upp á sölu á vöfflum og
heitu súkkulaði uppi á Þekju og
rann allur ágóði beint í fjáröflunar-
sjóð félagsins.
vaks/ Ljósm. gó
Knattspyrnumaðurinn Hákon Ingi
Einarsson hefur gert samning við
Knattspyrnufélag ÍA sem gildir til
ársins 2024. Hákon Ingi er fæddur
árið 1995 og spilaði alla yngri flokka
hjá ÍA. Hann er hægri bakvörður
og á að baki samtals 135 deildar-
leiki með liðum Kára, Þórs Akur-
eyri, Vestra Ísafirði og Kórdrengja
úr Reykjavík sem hann hefur leikið
með síðustu þrjú tímabil.
vaks
Vegna ummæla Einars Brandssonar
í síðasta tölublaði Skessuhorns um
leiðbeinendur Fjöliðjunnar þykir
okkur mikilvægt að svara fyrir okkur.
Að baki Fjöliðjunnar er öflugur
hópur starfsmanna sem hafa sjálf-
stæðar skoðanir. Fjöliðjan hefur
einnig öflugan hóp leiðbeinenda
sem vinnur ötullega að stuðningi
starfsmanna. Leiðbeinendur vita
að þeirra hlutverk er að styrkja
og styðja, vera málsvari þess sem
þarfnast aðstoðar.
Virðing er dyggð sem Fjöliðjan
stolt fer eftir. Traust er mikilvægt í
starfi leiðbeinenda og mikilvægt að
starfsmenn finni að traustið bregst
ekki, þrátt fyrir skiptar skoðanir,
ákvarðanir og verk annarra.
Bæjarstjórn og bæjarbúum má
vera ljóst að skoðanir leiðbein-
enda byggja á skoðunum og hug-
myndum starfsmanna.
Það er aldrei gott að ætla sér
að vinna til framtíðar ef skoðanir
annarra mega ekki heyrast.
Aðstandendur fatlaðra ættu að
geta verið sáttir og öruggir því
svo sannarlega eru hagsmunir og
skoðana frelsi í hávegum haft í öllu
starfi Fjöliðjunnar.
Með ósk um gleðilega hátíð til
allra,
Árni Jón Harðarson, deildarstjóri
Fjöliðjunnar, með áralanga reynslu í
starfi, aðstandandi fatlaðrar systur og
iðnaðarmaður
Ásta Pála Harðardóttir,
yfirþroskaþjálfi Fjöliðjunnar,
með áratuga reynslu í starfi og
aðstandandi fatlaðrar systur
Erla Björk Berndsen Pálmadóttir,
þroskaþjálfi Fjöliðjunnar,
verslunarstjóri Búkollu, með áralanga
reynslu í starfi
Guðrún Fanney Helgadóttir,
leiðbeinandi Fjöliðjunnar, með
áralanga reynslu í starfi
Hafdís Arinbjörnsdóttir, félagsliði
Fjöliðjunnar, með áralanga reynslu
í starfi
Hafdís Dóra Gunnarsdóttir, BA
félagsráðgjöf hjá Fjöliðjunni, með
áralanga reynslu í starfi
Ingibjörg Freyja Gunnarsdóttir,
þroskaþjálfi Fjöliðjunnar, með reynslu
í starfi
Kathrin Schymura, þroskaþjálfi
Fjöliðjunnar í mastersnámi, með
áratuga reynslu í starfi og uppalin
með fólki með fötlun
Kristín Halldórsdóttir, leiðbeinandi
Fjöliðjunnar, tækniteiknari, með
áralanga reynslu í starfi
Ragnheiður Eva Guðmundsdóttir,
félagsráðgjafi hjá Fjöliðjunni, í
mastersnámi, með reynslu í starfi
Steinunn Guðmundsdóttir,
þroskaþjálfanemi, leiðbeinandi
Fjöliðjunnar, með reynslu í starfi
Sólrún Perla Garðarsdóttir,
viðskiptafræðingur, með mikla reynslu
í starfi
Svana Guðmundsdóttir, félagsliði
Fjöliðjunnar, með áratuga reynslu í
starfi
Silvía Kristjánsdóttir, nemi í
iðjuþjálfun, leiðbeinandi í Fjöliðjunni,
með reynslu í starfi
Skallagrímur tók á móti liði Fjölnis
í 1. deild karla síðasta föstudags-
kvöld og fór leikurinn fram í
Fjósinu í Borgarnesi. Það var frekar
jafnt á með liðunum í fyrsta leik-
hluta en Skallagrímur þó ávallt
með undirtökin. Stigataflan sýndi
21:12 fyrir Skallagrím eftir tæpar
sex mínútur og heimamenn voru
með sjö stiga forystu þegar leik-
hlutanum lauk, staðan 28:21.
Skallagrímsmenn herjuðu síðan á
gestina í öðrum leikhluta og náðu
20 stiga forystu þegar rúmar sjö
mínútur voru liðnar, 50:30. Þeir
bættu svo aðeins við forskotið fram
að hálfleik og voru komnir í þægi-
lega stöðu þegar bjallan lét vita af
sér, staðan 60:36 Skallagrími í vil.
Í þriðja leikhluta breyttist staðan
lítið, eftir rúmar sex mínútur var
staðan 77:57 og þegar leikhlut-
anum lauk var forskot Skallagríms
18 stig, 84:66. Skallagrímur náði
um miðjan fjórða leikhluta 25
stiga forystu og leyfði eftir það
ungum og efnilegum leikmönnum
að spreyta sig sem stóðu sig með
afbrigðum vel, lokatölur 113:84
fyrir Skallagrími.
Keith Jordan Jr. var langatkvæða-
mestur hjá Skallagrími með 42 stig,
13 fráköst og 10 stoðsendingar,
Milorad Sedlarevic var með 26
stig og þeir Almar Örn Björnsson
og Kristján Örn Ómarsson með
11 stig hvor. Hjá Fjölni var Hilmir
Arnarson með 19 stig, Karl Ísak
Birgisson með 16 stig og Lewis
Diankulu með 15 stig.
Næsti leikur Skallagríms er á
móti Þór Akureyri fyrir norðan
næsta föstudagskvöld og hefst
klukkan 19.15. Eftir það fer deildin
í jólafrí og hefst á nýju ári föstu-
daginn 6. janúar. vaks
Skallagrímur með stórsigur á Fjölni
Keith Jordan Jr. var ansi öflugur á móti Fjölni. Ljósm. glh
Hákon Ingi
gengur til
liðs við ÍA
Hákon Ingi er ánægður að vera kom-
inn aftur á Skagann. Ljósm. kfia
Fimleikagleði hjá
Fimleikafélagi Akraness
Frá innanfélagsmóti yngri keppenda á laugardaginn.
Þessar stúlkur sýndu keppnisdans af mikilli list.
Pennagrein
Yfirlýsing frá leiðbeinendum Fjöliðjunnar