Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 13. tbl. 26. árg. 29. mars 2023 - kr. 950 í lausasölu
Pop up viðburður fór fram í Listahúsi Borgarness síðastliðinn laugardag þar sem
alþjóðlegur hópur listamanna sameinuðu krafta sína. Hópurinn samanstendur af
bandaríska listmálaranum Michelle Bird, franska kökumeistaranum Aurore Pelier
Cady og fjölskyldunni sem skapar Bonís heiminn þar sem svissneskt og íslenskt
blóð flæðir saman. Á myndinni eru frá vinstri: Michelle Bird, Sigurður Ó.L. Bragason
og Tinna Royal sem m.a. var útnefnd listamaður Akraness 2020. Ljósm. sþ.
A L H L I ÐA
MÁLNINGARÞJÓNUSTA
896-5801
mvc.is carl@mvc.is
25 ÁR
1998–2023
Loðnan hefur nú gengið inn á
grunnsævið til hrygningar og lauk
því veiðum um síðustu helgi. Flest
ef ekki öll útgerðarfyrirtækin náðu
að veiða upp í kvótann á vertíðinni
enda voru aðstæður eins og best
verður á kosið, einkum nú undir það
síðasta þegar loðnan var verðmest.
Að sögn Garðars Á Svavars sonar,
forstöðumanns uppsjávar vinnslu
og útgerðar hjá Brimi, eru menn
þar á bæ hæstánægðir með hvernig
gekk. „Þetta var frábær vertíð hjá
okkur og allt hefur gengið upp;
veðrið var frábært, góð veiði og
vinnslan gekk vel bæði á Akranesi
og Vopnafirði,“ segir Garðar í sam
tali við Skessuhorn. Á mánudaginn
var verið að frysta síðustu hrognin
á Vopnafirði.
Brim hefur yfir að ráða um 18%
af heildar kvótanum í loðnu og
náðist að veiða upp í hann allan.
„Við höfum náð 56 þúsund tonnum
frá áramótum á skipunum Svani,
Víkingi, Venus og þá eigum við
einnig helmings hlut í Guðrúnu
Þorkelsdóttir, sem við höfum notað
til veiðanna.“
Vel gekk að fá mannskap til
hrognafrystingar á Akranesi jafn
vel þótt fyrirvarinn hafi verið
skammur. Áður en loðnukvótinn
var aukinn í febrúar var jafnvel útlit
fyrir að Brim myndi einungis frysta
hrogn á Vopnafirði á vertíðinni.
Garðar segir að gott fólk hafi komið
til starfa í frystinguna og þar líkt
og í bræðslunni hafi verið unnið á
vöktum síðustu vikurnar, en síð
ast var landað smá slatta, eða 700
tonnum, úr Svani um helgina. Á
Akranesi og Vopnafirði voru skorin
um fimm þúsund tonn af hrognum,
en endanlegar tölur liggja þó ekki
fyrir. „Við hjá Brimi erum einfald
lega alsæl með hvernig gekk og
þakklát fyrir hörkugóðan mann
skap sem kom til starfa. Fram
leiðslan í ár var með mesta móti og
líklega um metframleiðslu að ræða
innan fyrirtækisins,“ segir Garðar
Á Svavarsson.
mm
Frábærri loðnuvertíð lokið hjá Brimi
Fermingargjöfin
stækkar í Arion
Þú færð allt að 12.000 kr. til viðbótar frá okkur.
Í samstarfi við Stefni
Á laugardaginn var verið að dæla
úr Víkingi en síðastur til löndunar á
þessari loðnuvertíð var Svanur sem
kom með um 700 tonn.