Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 202322 Ægir Örn Sveinsson er Seyð­ firðingur í grunninn og starfaði lengst af við forritun. Fyrir um fimmtán árum síðan fann hann guðfræðina kalla á sig og hóf þá nám. Hann er nú útskrifaður guð­ fræðingur og nýtekinn við sem prestur í Ólafsvíkur­ og Ingjalds­ hólsprestakalli á Snæfellsnesi. Hann flutti því til Ólafsvíkur í byrjun marsmánaðar frá Kópavogi ásamt eiginkonu sinni til sex ára, Paulu Nerenberg Sveinsson. Paula er frá Argentínu en máttur Inter­ netsins leiddi þau saman. Hún segir smábæjarlífið á Íslandi eiga vel við sig en hún kann vel við kyrrðina og öryggið sem fylgir smærri sam­ félögum. Blaðamaður Skessuhorns hitti hjónin í Ólafsvíkurkirkju og fékk að heyra þeirra sögu. Kennari, forritari og prestur Ægir er fæddur í Vestmannaeyjum og var ungur strákur þegar gaus árið 1973, en þá flúði fjölskyldan upp á land og fór aldrei aftur til Eyja. Fjölskyldan settist í kjöl­ farið að á Seyðisfirði eftir stutta viðkomu í Reykjavík. „Ég segist alltaf vera Seyðfirðingur og tala um Seyðisfjörð sem heima,“ segir Ægir. Aðspurður segist hann hafa tekið virkan þátt í kirkjustarfi þar sem barn. „Á mínum uppvaxtar­ árum var virkt barna­ og æskulýðs­ starf í kirkjunni á Seyðisfirði og ég fór yfirleitt líka í sumarbúðir Þjóð­ kirkjunnar á Eiðum. Þaðan kemur mín tenging við kirkjuna og kristna trú,“ segir Ægir sem þó sá ekki fyrir sér þá að verða prestur. „Það er allskonar fólk sem hefur áhrif á mann í gegnum lífið. Ég var með flottan kennara í grunnskóla og vildi verða kennari eins og hann. Eftir grunnskóla fór ég þess vegna í Menntaskólann í Reykjavík með það í huga að verða kennari. Ég fór svo í Kennaraháskólann og klár­ aði námið þar en entist ekki lengi í kennslu. Ég er svolítill eilífðar­ stúdent, algjör Georg, og er með nokkrar háskólagráður. Mig lang­ aði að prófa að skipta um vettvang og fór þá að læra tölvunarfræði en ég hef unnið við upplýsinga­ tækni stærstan hluta af mínum ferli, aðallega við forritun,“ segir Ægir. Fann köllun Ægir vann sem forritari hjá ýmsum fyrirtækjum, nú síðast hjá Norður­ áli á Grundartanga sem hann fer fögrum orðum um. „Norðurál er flott fyrirtæki og skemmtilegur vinnustaður. Þannig að það var alls ekki það að ég væri ekki að njóta mín í vinnunni. En fyrir svona 15 árum dró vinur minn mig með sér á biblíulestur í Lindakirkju. Ég hef verið að lesa og hugsa um guðfræði síðan ég var tíu ára og verið virkur í að iðka trú mína. Á biblíulestrinum sköpuðust umræður og mér fannst þetta svo gaman og fannst eins og ég hefði eitthvað að gefa. Upp frá þessu kviknaði hugmyndin að læra guð­ fræði. Ég heyrði að erfitt væri að fá vinnu sem prestur þar sem yfirleitt eru margir um brauðið og þess vegna erfitt að komast að óreyndur. Ég fann samt þessa köllun og dreif mig í guðfræðinám meðfram forrit­ uninni, ég var einhver tíu ár að klára námið en þetta hafðist á endanum,“ segir Ægir með brosi á vör. Að kynnast samfélaginu Í desember síðastliðnum sótti Ægir um starf sóknarprests í Ólafsvíkur­ og Ingjaldshólssókn. Í byrjun árs hafði hann fengið starfið og flutti til Ólafsvíkur nú í byrjun marsmán­ aðar. „Hér er búið að taka ofsalega vel á móti okkur og við finnum fyrir miklum hlýhug og vinsemd. Þetta samfélag er kannski ekki mjög ólíkt því sem ég bjó í á Seyðisfirði að stærð. Sem prestur í svona sam­ félagi nær maður að kynnast og tengjast söfnuðinum sínum mun betur en prestar á höfuðborgar­ svæðinu. Þar er svolítið útilokað að þekkja öll sín sóknarbörn en hér er það alveg hægt,“ segir Ægir sem hefur verið að kynnast samfélaginu undanfarnar vikur en Ólafsvíkur­ kirkja og Ingjaldshólskirkja tilheyra hans embætti. „Ég byrjaði á því að kynnast sóknarnefndum kirknanna. Svo er ég búinn að halda messur í báðum kirkjunum og fékk að sjá nokkur andlit í messukaffinu. Við hjónin ákváðum svo bæði að fara í kirkjukórinn til að kynnast fólki betur. Kórinn er mjög skemmti­ legur en mér finnst rosalega gaman að syngja og hef sungið í nokkrum kórum. Kórinn hérna syngur ekki bara í messum, hér eru líka tón­ leikar, stundum er farið í söngferða­ lög og eitthvað fleira skemmtilegt. Það er gaman að kynnast fólki í gegnum sameiginlegt áhugamál en svo er þetta auðvitað líka tenging við kirkjuna þó ég sé í öðru hlut­ verki í messum. Ég er samt ekki prestur á kóræfingum, þá er ég bara einn af hópnum,“ segir Ægir. Menningarmunurinn Ægir kynntist eiginkonu sinni á netinu en Paula er frá Buenos Aires í Argentínu. Paula segir Ísland og Argentínu mjög ólík lönd. „Þegar við vorum búin að spjalla í einhvern tíma bað hann mig um að koma til Íslands. Fyrir mér var Ísland mjög framandi svo ég byrjaði að gúggla landið,“ segir Paula. „En í Arg­ entínu eru formlegri siðir svo ég sagði honum að hann þyrfti fyrst að koma til mín og hitta foreldra mína. Hann kom þá í heimsókn til Argentínu. Það er mikill munur á menningunni í þessum löndum og við hlæjum oft að því þegar hann kom fyrst heim til okkar. Í Arg­ entínu er siður að fara ekki úr úti­ skónum inni á heimilum, ég veit sjálf ekki af hverju það er. En þegar Ægir kom fyrst í heimsókn fór hann úr skónum og kom sér vel fyrir í sófanum. Við vorum svolítið hissa á þessu og mamma sagði við mig; „honum hlýtur að líða svona svakalega vel hjá okkur,“,“ segir Paula og hlær. Giftu sig eftir mánuð Heimsóknin gekk vel og í fram­ haldinu ákvað parið að Paula myndi dvelja á Íslandi í þrjá mánuði. „Ég vildi sjá til hvernig mér litist á þetta allt saman. Það leið svo ekki nema mánuður þangað til við vorum orðin gift, svo þetta gerð­ ist mjög hratt. Brúðkaupið var smátt en við buðum bara fjórum í athöfnina. Ég vaknaði samt daginn eftir brúðkaupið í áfalli og hugs­ aði „Ó nei, hvað var ég að gera.“ Ægir hafði samt engar áhyggjur og ég var fljót að jafna mig. Við erum búin að vera gift í sex og hálft ár núna en mér líður mjög vel hér og er yfir mig hamingjusöm þó þetta hafi verið mikið að melta í byrjun. Menningarsjokkið var mikið enda var þetta stór ákvörðun. Ég kom líka til landsins í lok september og kom því beint í veturinn, það var svolítið erfitt. Ægir var samt mjög stuðningsríkur og með tíð og tíma lærði ég íslensku, fór í háskóla, tók ökupróf, fékk kenni­ tölu og gat byrjað að vinna,“ segir Paula en hún lærði íslensku við Háskóla Íslands og vefforritun við Tækniskólann. Fór úr gyðingdómi í kristna trú Paula er fædd gyðingur en ákvað að skipta yfir í kristna trú 19 ára sem var fjölskyldu hennar erfitt. „Mamma talaði ekki við mig í viku og ég held hún hafi næstum fengið hjartaáfall. Hún sá svo hvað kirkjan var að gera mér gott og kemur í dag stundum með mér í messu,“ segir Paula en fjölskylda hennar eru gyðingar langt aftur í ættir. „For­ feðrum mínum tókst einhverjum á sínum tíma að flýja inn í skóg frá stríðinu. Afi minn var frá Rúmeníu og þegar hann kom til Argentínu neitaði hann að tala rúmensku þar sem illa hafði verið farið með hann þar. Mamma veit svo t.d. ekki hvort hún eigi systkini í Rúmeníu en saga fjölskyldunnar er stór og mikil tengd trúnni, þess vegna var þetta henni erfitt þegar ég skipti um trú. Það æxlaðist út frá því að ég byrj­ aði að skoða Biblíuna en mér var ekki leyft að lesa hana þegar ég var yngri. Mér fannst trúin áhuga­ verð og prufaði svo að fara í kirkju. Þegar ég skipti um trú hét ég því að ég myndi giftast presti,“ segir Paula og hlær. „Þess vegna var það frekar fyndið þegar ég kynntist Ægi og komst að því að hann vildi verða prestur.“ Ægir bætir við: „Það er gaman að sameinast í trúnni en ég æfi allar mínar predikanir fyrir hana og hún segir mér svo hvort þær séu nógu áhugaverðar.“ Stolt af Ægi Paula segist horfa með aðdáun til Ægis en hann sýndi mikla þrautseigju í náminu og missti aldrei sjónar af markmiðinu. „Hann er mjög góður forritari og mér fannst ótrúlegt að hann vildi skilja við þessa miklu þekkingu sem hann var búin að byggja upp í forritunar­ geiranum. Ægir er mjög ákveðinn og hann var alltaf einbeittur á að ná sínu markmiði þó námið hafi tekið langan tíma. Ég er mjög stolt af honum en hann er mikil fyrirmynd og sýnir okkur að við eigum að fylgja okkar draumum eftir. Ég er ekki góð í að setja mér markmið og fylgja þeim eftir en það er hvetjandi að fylgjast með Ægi,“ segir Paula. Koma úr ólíkum menningarheimum en sameinast í forritun og kristinni trú Rætt við séra Ægir Örn Sveinsson og Paula Nerenberg Sveinsson, prestshjón í Ólafsvík Séra Ægir Örn Sveinsson og Paula Nerenberg Sveinsson í Ólafsvíkurkirkju. Ljósm. sþ. Ægir og Paula við Iguazú fossana í Argentínu. Ljósm. aðsend.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.