Skessuhorn - 29.03.2023, Síða 15

Skessuhorn - 29.03.2023, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2023 15 Fundur með foreldrum barna sem stunda nám í Laugargerðisskóla í Eyja­ og Miklaholtshreppi fór fram síðastliðinn fimmtudag. Þar kynnti stjórn foreldrafélagsins hugmyndir sínar sem miða að því að koma í veg fyrir að skólanum verði lokað. Skessuhorn greindi frá því í lok síð­ asta mánaðar að 20. febrúar síðast­ liðinn hefði sveitarstjórn tekið ákvörðun um að loka skólanum eftir yfirstandandi skólaár, næðust samningar við annað sveitar félag um skólaþjónustu. Íbúar í Eyja­ og Miklaholtshreppi voru 1. mars síðastliðinn 117 og því er sveitar­ félagið eitt af þeim fámennari á landinu sem enn reka grunnskóla. Ellefu einkareknir skólar til Hugmyndir foreldrafélagsins eru á þá leið að stofnað verði einkahluta­ félag sem kaupa myndi skólahús­ næðið og reka áfram grunnskóla í Laugargerði. Einkahlutafélagið yrði stofnað af foreldrum en jafn­ framt opið öllum þeim sem vilja taka þátt. Nú eru 18 nemendur í skólanum en enginn mun útskrifast næsta vor og þrír nemendur munu bætast við næsta vetur sem vitað er um. Samkvæmt þessum hug­ myndum yrði skólinn þá einkarek­ inn en ellefu slíkir grunnskólar eru á landinu í fjórum sveitarfélögum, sjö þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Í flestum einkareknum skólum borga nemendur skólagjöld en ekki er áætlað að innheimta skólagjöld fyrir nemendur Laugargerðisskóla. Nýta svæðið til uppbyggingar Fram kom á fundinum að foreldra­ félagið vill sjá börnunum sínum fyrir menntun á heimaslóðum og stuðla að frekari uppbyggingu á svæðinu. Félagið sér fyrir sér mikla möguleika með því að stofna til reksturs sem fjárhagslega gæti stutt við starf grunnskólans. Á svæðinu er gott íþróttahús, tjaldsvæði og útivistarsvæði. Skólahúsnæðinu fylgir 25 hektara land þar sem m.a. eru skipulagðar ellefu lóðir og hesthúsahverfi með reiðhöll en skipulagið er nú í auglýsingaferli hjá sveitarfélaginu. Bróðurpartur lóðarinnar er svo óskipulagt svæði og sér foreldrafélagið þar fyrir sér möguleika á uppbyggingu. Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig hægt verði að nýta byggingarnar. Nefnt var far­ fuglaheimili, sumarbúðir og lista­ mannasetur sem dæmi. Gert er ráð fyrir meiri nýtingu á sundlaug og íþróttahúsi samhliða tjaldsvæðinu, m.a. með viðburðahaldi. Foreldra­ félagið vill gera umhverfið heill­ andi fyrir barnafjölskyldur, byggja upp skólann og skapa fleiri störf. Fram kom á fundinum að ljóst sé að ráðast þarf í framkvæmdir á skólabyggingunni. Áætlun þar að lútandi er í undirbúningi svo sem um hvað gera þurfi og í hvaða tímaröð. Brýnt yrði að hefja framkvæmdir sem fyrst og stefna á að nauðsynlegustu verkþáttum verði lokið á næstu fimm árum. Hugmyndir foreldrafélagsins eru á frumstigi en ekki er langt síðan sveitarstjórn tók þá ákvörðun að stefna að lokun skólans. Foreldra­ félagið ákvað því að bregðast við. Til að skólastarf haldi áfram í hús­ næðinu næsta haust þarf ferlið því að ganga hratt fyrir sig. Sveitar­ stjórn hefur þegar verið kynnt málið og segja talsmenn foreldra­ félagsins samtalið hafa verið á jákvæðum nótum. Sveitarstjórn hefur þó ekki gefið formlega út hvort húsnæðið sé falt. Ekkert er því fast í hendi um framtíð skóla­ starfsins, en foreldrafélagið vonast eftir faglegu samstarfi um þróun mála í jákvæða átt. Hreppsnefnd Eyja­ og Miklaholtshrepps var boðuð til fundar í gær, þriðjudag, en honum var ekki lokið þegar Skessuhorn fór í prentun. sþ Pottar Heitir og kaldir Lok og festingar trefjar.is Óseyrarbraut 29, Hafnarfirði Eldstæði í þremur stærðum Hafðu samband sala@trefjar.is 550 0100 Góðar stundir Sauna tilbúin til notkunar Verð frá 1.167.000 kr. Verð frá 220.150 kr. Sindraskel tilvalin í ferðaþjónustuna Aukahlutir Tröppur, yfirbreiðslur o.fl. Foreldrafélag Laugargerðisskóla vill stofna einkahlutafélag og kaupa skólahúsnæðið Laugargerðisskóli. Ljósm. sþ. Svipmynd af foreldrafundinum. Ljósm. sþ.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.