Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 29.03.2023, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 20232 Kona á þrítugsaldri féll niður í gilið við fossinn Glym í Hvalfirði síð­ astliðinn miðvikudagsmorgun og lést. Klukkan hálf ellefu um morg­ uninn barst lögreglu tilkynning um að erlendur ferðamaður hefði fallið niður í gilið. Lögreglan ásamt sjúkraliði og fjölmennu liði frá björgunarsveitum fór á vettvang ásamt því að þyrla Landhelgisgæsl­ unnar var kölluð út. Aðstæður í gilinu til að komast að vettvangi voru afar erfiðar og krefj­ andi, eins og sjá má á meðfylgj­ andi mynd. Mikill ís var í gilinu og hætta á hruni yfir björgunarsveitar­ fólk. Tryggja þurfti gönguleiðina og koma börum áleiðis á staðinn. Því miður var konan látin þegar björgunar fólk kom á vettvang. Konan hafði verið ásamt maka sínum á gönguferð upp með gil­ inu að ofanverðu við Glym og fallið fram af brúninni. Fallið var mjög hátt og ljóst að konan lést samstundis. Aðgerðum á vettvangi lauk ekki fyrr en um klukkan 17. Rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi vinnur að rannsókn málsins. Lögreglan á Vesturlandi vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu að björg­ unaraðgerðum. Bregðast þarf við Arnar Már Ólafsson ferðamála­ stjóri sagði í útvarpsfréttum Bylgj­ unnar síðastliðinn föstudag að skoða þurfi öryggismál víða á land­ inu og þar á meðal á gönguleiðinni að fossinum Glymi. „Það þarf að bregðast við alls staðar þar sem fyrirséð er að öryggi ferðamanna sé stefnt í hættu. Til dæmis á þessu svæði sem um ræðir þá er yfir vetrartímann fyrirséð að gönguleiðin upp að fossinum þarna austan megin við ána sé mjög varhugaverð,“ sagði Arnar Már í viðtali á Bylgjunni. Bætti hann við að bregðast verði hratt við. „Ég ætla að hóa saman öllum hlutað­ eigandi aðilum sem koma að þessu máli. Bæði landeigendum, sveitar­ félögum, Björgunarfélagi Akra­ ness, Lögreglunni á Vesturlandi og Landsbjörgu. Ræða þetta sam­ eiginlega og sjá hvað við þurfum að gera núna til að stuðla að auknu öryggi þarna á staðnum,“ sagði ferðamálastjóri. Unnið hefur verið að bættu aðgengi Í kjölfar banaslyssins í síðustu viku leitaði Skessuhorn viðbragða hjá Lindu Björk Pálsdóttur sveitar­ stjóra Hvalfjararðarsveitar. Í kjölfar slyssins hafa vaknað umræður um öryggi við Glym en frá árinu 2014 hafa orðið 26 skráð slys á svæðinu. Glymur er næsthæsti foss landsins, alls 198 metra hár og er í Botnsá. Aðgengi að honum er mjög erfitt en engu að síður leitar mikill fjöldi ferða­ og göngufólks að honum eins og slysatölur gefa vissulega til kynna. Linda Björk segir að það sé afar sorglegt að svona hafi farið. Um leið vottar hún aðstandendum samúð og vill þakka öllu björgunar­ sveitarfólki, sem og öðrum, sem komu að björgunarstörfum á svæðinu, fyrir þeirra mikilvægu vinnu og aðkomu við þessar erfiðu aðstæður. En kemur það til greina að banna fólki að ganga á Glym yfir vetrartímann eins og gert hefur verið til að mynda með Kirkjufell í Grundarfirði? „Svæðið er í einka­ eigu og ekki á forræði sveitar­ félagsins en sveitarfélagið hefur unnið að því í góðu samstarfi við landeigendur að bæta aðgengi og öryggi á svæðinu mörg undanfarin ár. En við Glym eru krefjandi aðstæður, jafnvel við bestu mögu­ legu aðstæður.“ Linda segir að frá árinu 2014 hafi heildarfjárhæð styrkveitinga frá Framkvæmda­ sjóði ferðamannastaða til svæðis­ ins numið tæplega 16,5 milljónum króna til endurbóta og viðhalds gönguleiðar upp að Glymi. Einnig til bætingar aðkomuleiða fyrir neyðarhjálp auk vinnu með öryggi á ferðamannastað þar sem Björgunar félag Akraness hefur m.a. aðstoðað við að útfæra. „Meðal verkefna má nefna endurbætur á stíg að Þvottahelli með aðstoð sjálfboðaliða, lokun draugastíga/villustíga, þrepagerð á krefjandi stöðum gönguleiðar­ innar, með uppsetningu merki­ staura, leiðbeiningarspjalda, skilta og merkinga auk kaðla og staura sem settir hafa verið niður á krefj­ andi stöðum gönguleiðarinnar. Einnig hefur aðkomu að útsýnis­ stöðum vestan gljúfursins verið bætt, ræsisgerð og hreinsun grjóts á gönguleiðinni ásamt drögum að öryggisáætlun sem nú er í yfirlestri hjá Ferðamálastofu.“ Fólki er heimil för á eigin ábyrgð Drumburinn yfir ána austan megin er tekinn niður á haustin til að takmarka umferð og þá er einnig upplýsingaskilti við bílastæðið þar sem fólk er varað við því að fara þarna yfir vetrartímann. Það virð­ ist ekki vera nóg, en hvað meira er hægt að gera? „Á skiltinu við bílastæðið, sem er bæði á íslensku og á ensku, kemur skýrt fram að fólki er heimil för um svæðið á eigin ábyrgð. Þar kemur líka fram að víða er fallhætta, sérstaklega þegar er hált, snjór eða bleyta. Á skiltinu segir jafnframt að leiðin að Glym sé ekki hættulaus þar sem bergið sé víða laust í sér.“ Linda segir einnig að á skiltinu komi fram að göngu­ menn ferðist á eigin ábyrgð ásamt því að fram kemur að staurinn liggi yfir ána frá vori fram á haust en hann sé tekinn niður á veturna vegna hálkuhættu á stígnum vegna snjóa, íss og aurbleytu og flóða sem gætu brotið hann. mm/vaks Blaðið í dymbilviku SKESSUHORN: Næsta tölublað af Skessuhorni kemur út degi fyrr en venjulega, þ.e. á þriðjudaginn. Það er gert til að blaðið nái til allra áskrif­ enda í tæka tíð fyrir páska. Skilafrestur auglýsinga er í síðasta lagi á hádegi á mánu­ daginn, helst þó fyrir helgi. Ábendingar um fréttir og að­ sendar greinar þurfa að ber­ ast í síðasta lagi um helgina á skessuhorn@skessuhorn.is Fyrsta blað eftir páska kemur út miðvikudaginn 12. apríl. Minnt er á símann 433­5500. -mm Stígar lagaðir í Klapparholti AKRANES: Skógræktin Klapparholt norðan við Garðalund er friðsæll og skemmtilegur skógarreitur með fjölbreyttum gróðri og miklu fuglalífi. Oft hefur verið talað um að bæta mætti stígana í Klapparholti vegna bleytu. Að sögn Jóns Arnars Sverrissonar garðyrkjustjóra er nú verið að vinna að því að setja góðan ofaníburð á þann kafla þar sem mesta bleytan er. Þannig að vonandi verður fært um allan reitinn framvegis. Einnig stendur til að fjölga bekkjum í reitnum. -vaks Hættustig enn í gildi AUSTURLAND: Þrjú snjó­ flóð féllu í og við Neskaup­ stað að morgni mánudags, þar af tvö í byggð. Eitt flóðið féll á íbúðablokk og á þrjú íbúðar­ hús. Enginn slasaðist alvarlega en um tíu manns þurftu að leita sér aðhlynningar. Í kjölfar flóðanna var fjöldi húsa rýmd og fjöldahjálpastöð opnuð í félagsheimilinu Egilsbúð á Neskaupstað. Fyrsta flóðið féll yfir veginn inn í Nes­ kaupstað og þegar Skessuhorn fór í prentun í gær var enn ekki hægt að komast land­ leiðina til Neskaupstaðar. Varðskipið Þór kom á Nes­ kaupstað aðfaranótt þriðju­ dags með mannskap og vistir. Á Seyðisfirði voru hús rýmd sunnan­ og norðan fjarðar­ ins vegna snjóflóðahættu og fjöldahjálparstöð opnuð í Herðubreið. Einnig voru hús rýmd á Eskifirði í varúðar­ skyni. -gbþ Til minnis Í dag, miðvikudaginn 29. mars, er alþjóðlegur dagur hafmeyj- unnar. Því leggjum við til að sem flestir skelli sér í fjöruferð á þessum degi og skimi eftir þeim. Næsta föstudag er svo alþjóð- legur dagur Eiffel turnsins í París svo það er spurning hvað er hægt að gera þá í tilefni dags- ins, kannski skoða gömul póst- kort. Allir dagar hafa einhverju að minnast en þessar gagn- legu upplýsingar er að finna á national today.com. Veðurhorfur Á fimmtudag eru líkur á aust- lægri átt 13-20 m/s, en hæg- ari suðvestanlands. Rigning eða slydda með köflum og hiti 1 til 7 stig, en snjókoma norðaustan til með hita nálægt frostmarki. Tals- verð slydda eða snjókoma aust- ast á landinu. Á föstudag má búast við minnkandi austanátt, 5-15 m/s eftir hádegi. Rigning eða slydda með köflum á vestan- verðu landinu, en samfelld snjó- koma eða rigning á Suðaust- urlandi og Austfjörðum. Hiti breytist lítið. Á laugardag eru líkur á austlægri eða breytilegri átt 5-13 og skúrir eða él. Hiti 0 til 8 stig. Á sunnudag verður norð- læg átt og él, en úrkomulítið um landið sunnanvert. Kólnar í veðri. Vestlendingur vikunnar Vignir Maríasson missti vinstri hendina eftir árekstur í Skolladal í Hálsasveit 27. október síðast- liðinn. Hann sagði Skessuhorni sögu sína ásamt konu sinni Páley Gestsdóttur og dóttur þeirra Elísabetu Páley Vignisdóttur. Þau og fjölskyldan öll, sem tekist hefur á við breytt líf eftir slysið, eru Vestlendingar vikunnar að þessu sinni. Kona lést eftir fall við Glym Aðstæður í gilinu voru erfiðar og krefjandi síðastliðinn miðvikudag. Ljósm. Landsbjörg. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.