Skessuhorn - 29.03.2023, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2023 21
Föstudaginn 24. mars voru liðin 100
ár frá fæðingu Bærings Cecilssonar
ljósmyndara en hann var fæddur að
Búðum í Eyrarsveit við norðanvert
Kirkjufell. Bæring tók ótrúlegan
fjölda ljósmynda og kvikmynda af
náttúru og mannlífi í Eyrarsveit og
víðar. Ásamt því að vera ljósmyndari
þá rak hann vélsmiðju og starfaði
sem fréttaljósmyndari fyrir RÚV
og hin ýmsu dagblöð. Bæring var
gerður að heiðursborgara Grund
arfjarðar árið 1997 en ómetan legur
menningar arfur liggur eftir hann í
ótal ljósmyndum og kvikmyndum
um sögu Grundarfjarðar. Bæring
lést árið 2002 og eftir andlát hans
færðu skyldmenni hans Grundar
fjarðarbæ, myndasafn hans til varð
veislu og vinnslu.
Grundarfjarðarbær hefur í fjöl
mörg ár staðið að því að skanna
ljósmyndir og koma kvikmyndum
Bærings yfir á stafrænt form. Sum
arið 2020 hófst svo átak í að skanna
filmur að ljósmyndum Bærings
Cecilssonar og unnið að því að
koma myndunum á varanlegt,
geymslu og birtingarhæft form.
Fæðingardagur Bærings var svo
nýttur til að kynna afrakstur þeirra
vinnu. Ingi Hans Jónsson setti upp
glæsilega myndasýningu á myndum
Bærings í tilefni dagsins og ljós
myndasafn hans var opnað í Sarpi,
menningarsögulegu gagnasafni
á veraldarvefnum undir heitinu
Bærings stofa. Sunna Njálsdóttir
hefur umsjón með safninu sem
veitir öllum aðgang að myndum
Bærings um ókomna tíð. tfk
Júlíana, hátíð sögu og bóka, var
haldin í tíunda skipti í Stykkishólmi
um helgina og var yfirskrift
hátíðarinnar að þessu sinni „Nýir
Íslendingar: Áhrif þeirra í skrifum
og listum.“ Að sögn Grétu Sig
Bjargardóttur, eins skipuleggj
anda hátíðarinnar, var hátíðin
alveg einstaklega vel heppnuð í alla
staði, var vel sótt og allir viðburðir
gengu eins og í sögu. „Það var kalt
í göngunni sem Anna Melsteð
leiddi en alls komu um 40 manns
í gönguna og endaði hún á Hótel
Egilsen þar sem smakkaður var
hinn fullkomni biti. Þar var settur
saman harðfiskur frá Stykkishólmi,
smjör og söl eða þang sem rann
ljúflega ofan í fólkið. Í gamla daga í
Helgafellssveit var framleidd mjólk
á hverju einasta búi en nú var síð
asta búið í sveitinni að hætta fram
leiðslu á mjólk. Anna kom með síð
ustu mjólkurdropana úr síðustu
kúnni á Hraunhálsi til að leyfa fólki
að smakka ógerilsneydda mjólk og
það var upplifun að drekka með.“
Setning hátíðarinnar var á
fimmtudaginn í Stykkishólms
kirkju og þar fluttu Hallgerður og
rest úr Tónlistarskóla Stykkishólms
nokkur lög, ávarp var flutt um upp
haf og tilurð Júlíönu hátíðar og
nemandi úr Grunnskólanum í
Stykkishólmi las ljóð eftir Júlíönu
Jónsdóttur. Síðan voru verðlaun
veitt fyrir ljóðasamkeppni þar sem
fyrstu verðlaunin hlaut Draumey
Aradóttir, önnur verðlaun hlaut
Svava O´Brien og þriðju Eydís
Blöndal. Þá voru veitt tvennar
viðurkenningar fyrir framúrskar
andi ljóð en þær hlutu Sigrún
Björnsdóttir og Rannveig Lydía
Benediktsdóttir. Einnig var Sturla
Böðvarsson heiðraður fyrir framlag
sitt til minjaverndar, samgangna og
skipulagsmála.
Gréta segir að þetta hafi verið
langstærsta og umfangsmesta
hátíðin til þessa, mjög góð mæting
og bærinn fullur af fólki. „Ég er
náttúrlega alveg í skýjunum því
þetta gekk alveg afskaplega vel og
það var góður stígandi í hátíðinni.
Maður er að átta sig á því núna
hvað þetta var umfangsmikið og
tókst vel til. Við höfum verið með
þessa hátíð í tíu ár samfleytt og
höldum ótrauð áfram.“
vaks/Ljósm. sá
Hundrað ára fæðingarafmælis Bærings Cecilssonar minnst
Bæring Cecilsson á góðri stundu. Páll Cecilsson er hér fyrir miðri mynd þar sem hann fylgist með
ljósmyndasýningu bróður síns.
Afar vel heppnuð Júlíana í Stykkishólmi
Alexandra ásamt organista Stykkishólmskirkju Lázló Petö. Kirkjukórinn í baksýn
eftir lokaatriði hátíðarinnar þar sem fluttar voru aríur úr óperum eftir Alexöndru.
Hljómsveitin Hallgerður og rest flutti nokkur lög.
Sturla Böðvarsson tekur við heiðursskjali og blómvendi úr hendi Grétu.
Tríóið Best með rjóma flutti tónlist við setningu hátíðarinnar.
Jón Yngvi Jóhannsson stýrði höfundaumræðum.
Bræðurnir Jón Svanur og Lárus Péturssynir.
Kirkjukór Stykkishólmskirkju.