Skessuhorn - 29.03.2023, Side 29

Skessuhorn - 29.03.2023, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2023 29 Búðardalur Fimmtudagur 30. mars Aðalfundur félags eldri borgara kl:13:30 í Rauða kross húsinu að Vesturbraut 12. Aðalfundur félagsins haldinn og ársreikningar yfirfarnir, kosið í stjórn. Veitingar á sínum stað. Búðardalur Fimmtudagur 30. mars Árshátíð Auðarskóla verður haldin í kl.17:00 í Dalabúð, Aðgangseyrir 1.500kr. Fjórar leik- sýningar verða sýndar, sjoppa á staðnum og selt í hléi. Búðardalur Fimmtudagur 30. mars Skemmtilegt kvöld í Árbliki frá kl. 19:00 og frameftir kvöldi. Hægt að koma með prjónana, hann- yrðirnar, spilin eða bara koma og spjalla. Hvetjum fólk að koma saman og eiga góða kvöldstund saman. Búðardalur Föstudagur 31. mars Kvenfélagið Fjóla, í samstarfi við Sælureitinn Árblik, heldur 3ja kvölda keppni í félagsvist. Annað kvöld af þremur fer fram á föstudaginn og hefst kl. 20. Þáttökugjald til Kvenfélagsins er 1.500 kr.- en frítt fyrir 13 og yngri. Sælureiturinn Árblik selur veitingarnar. Borgarnes Fimmtudagur 30. mars Ferðabók Gísla Einars verður sýnd á Landnámssetrinu kl.20. Miðasala fer fram á tix.is. Akranes Föstudagur 31. mars Kári og Léttir eigast við í Mjólkur- bikarnum í knattspyrnu karla í Akraneshöll og hefst viðureignin klukkan 19. Ólafsvík Laugardagur 1. apríl Reynir Hellissandi og KFK mætast í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu karla á Ólafsvíkurvelli og hefst leikurinn klukkan 14. Borgarnes Sunnudagur 2. apríl Aðalfundur Hollvinasam- taka Borgarness fer fram á Landnámssetrinu kl. 17-19. Farið verður yfir ársreikning, samþykktir, umræður, verkefni síðasta árs ásamt næstu verkefni. Akranes Sunnudagur 2. apríl Skallagrímur og KFR mætast í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu karla í Akraneshöll og hefst viður- eignin klukkan 19. Borgarnes Mánudagur 3. apríl Skallagrímur og Sindri eigast við í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik í Fjósinu og hefst leikurinn klukkan 19.15. Stykkishólmur Þriðjudagur 4. apríl Snæfell og Þór Akureyri eigast við í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í körfuknattleik í íþróttahúsinu við Borgarbraut og hefst leikurinn klukkan 19.15. Akranes Þriðjudagur 4. apríl Fyrirlestur um magasár í hrossum með dýralækninum Úndínu Ýr á Æðarodda. Viðburðurinn hefst kl.18:30. Borgarnes þriðjudagur 4. apríl Styrktartónleikar í Reykholts- kirkju kl. 20 fyrir hinn tvítuga Ármann Bjarna Eyjólfsson sem lenti í alvarlegu vinnuslysi í febr- úar. Slysið leiddi til þess að hann missti annan fótinn en hann er nú í endurhæfingu á Grensás- deild. Tónleikarnir eru á vegum Kvenfélags Reykdæla en fram koma Söngbræður, Freyjukórinn, Reykholtskórinn, Helgi Heiðar Stefánsson og Kristleifur Heiðar Helgason. Kaffiveitingar í hléi. Aðgangseyrir: 3.000 kr. Akranes Miðvikudagur 5. apríl ÍA og Sindri eigast við í riðli 1 í C deild kvenna í Lengjubikarnum í knattspyrnu í Akraneshöll og hefst leikurinn klukkan 18. Stykkishólmur Miðvikudagur 5. apríl Uppistand með þeim Sögu Garðarsdóttur og Snjólaugu Lúðvíksdóttur hefst kl. 20:30 á Fosshótel Stykkishólmi. Grínið spannar eðlilegar heimilis- aðstæður til erfiðra gelludjamma. Miðasala er í gangi á tix.is. Á döfinni Nýfæddir Vestlendingar 21. mars. Drengur. Þyngd: 3.805 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Sunneva Líf Lorange og Guðjón Reynir Guðjónsson, Akranesi. Ljósmóðir: Inga María Hlíðar Thorsteinson. 20. mars. Stúlka. Þyngd: 3.138 gr. Lengd 48 cm. Foreldrar: Sólveig Guðmundsdóttir og Andri Már Marteinsson, Akranesi. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. 21. mars. Drengur. Þyngd: 4.162 gr. Legnd: 2 cm. Foreldrar: Monika Prosinska og Piotr  Klukowicz, Grundarfirði. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Drengurinn hefur fengið nafnið Nikodem Klukowicz. 24. mars. Stúlka. Þyngd: 4.000 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Hulda Karen Sigurðardóttir og Hall- dór Bjarki Ólafsson, Akranesi. Ljósmóðir: Málfríður Stefanía Þórðardóttir. Þessa dagana er mikið húllum hæ í Brekkubæjarskóla á Akra­ nesi. Undanfarnar vikur hafa nem­ endur og starfsfólk verið að undir­ búa árshátíð, en hún hefur ekki verið haldin í skólanum síðan 2019. Nú er komið að því að sýna afrakstur vinnunnar og í þessari viku eru sýningar fyrir nemendur og almenning. Nemendur úr 1.­10. bekk eru með atriði á sýningunum auk þess sem tæknimenn og sviðs­ menn koma líka úr hópi nemenda. Fyrstu sýningarnar voru í gær, þriðjudag, en einnig í dag miðviku­ dag og fimmtudag. Sýnt er tvisvar á dag klukkan 17.30 og 19.30 alla dagana. Leikur, söngur, dans og gleði. Tilvalið að koma sér í gleði­ gírinn fyrir páskafríið. -fréttatilkynning Hinn tvítugi Ármann Bjarni Eyjólfs son varð fyrir vinnuslysi í síðasta mánuði þegar þriggja tonna steypueining endaði á vinstri fæti hans með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fótinn við miðjan legg. Hann hefur nú verið í endur­ hæfingu á Grensásdeild síðan 15. mars en taka átti saumana í gær og er nýr fótur væntanlegur fyrir helgi. Ármann er úr Stafholtstungum í Borgarfirði. Nú ætla kórar í héraði ásamt fleirum að sameina krafta sína í samstarfi við Kvenfélag Reykdæla. Kórarnir munu halda styrktartón­ leika fyrir Ármann þar sem ljóst er að mikil og kostnaðarsöm endur­ hæfing er framundan hjá honum. Tónleikarnir munu eiga sér stað í Reykholtskirkju, þriðjudaginn 4. apríl næstkomandi og hefjast klukkan 20. Aðgangseyrir er 3.000 krónur og rennnur hann óskiptur til Ármanns en einnig er hægt að styrkja Ármann Bjarna með því að leggja inn á reikningsnúmer 0354­ 26­009190 og kennitölu 530679­ 0129, en reikningurinn er í nafni Kvenfélags Reykdæla. Fram koma á tónleikunum Söng­ bræður, Freyjukórinn, Reykholts­ kórinn, Helgi Hreiðar Stefánsson og Kristleifur Heiðar Helgason. Kaffiveitingar verða í hléi. sþ Kórar í Borgarfirði halda styrktartónleika fyrir Ármann Bjarna Árshátíðarsýningar að hefjast í Brekkubæjarskóla

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.