Fréttablaðið - 30.03.2023, Side 10

Fréttablaðið - 30.03.2023, Side 10
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 250 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is halldór Frá degi til dags Leiðtogar þeirra allra eru svo forhertir afturhalds- seggir að fullkomin óvissa er um á hvaða öld þeir lifa. Við verð- um að búa þannig um hnútana að dyrnar geti verið opnar fyrir erlendri fjárfestingu í íslenskum grænum lausnum. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Markmið stjórnvalda í loftslagsmálum og um full orku- skipti kalla á skýra sýn og nýja nálgun sem mun byggja á markmiðum fyrir einstaka geira atvinnulífsins, aukinni áherslu á loftslagshagstjórn og forgangsröðun í þágu loftslagsmarkmiða á öllum sviðum samfélagsins. Mikilvægt er að tryggja samstarf ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs til þess að ná framangreindum mark- miðum. Við þurfum að fjárfesta í nýsköpun til þess að finna nýjar lausnir en einnig að innleiða þekktar lausnir til að leysa vandamálin sem við stöndum frammi fyrir. Í gær fór fram nýsköpunarráðstefna á Siglufirði. Að ráðstefnunni stóðu Eimur og Norðanátt sem bæði eru nýsköpunarverkefni sem ráðuneytið hefur styrkt ásamt viðeigandi landshlutasamtökum og fyrir- tækjum. Ráðuneytið hefur auk þess gerst aðili að nýsköpunar- verkefnunum Bláma, Orkídeu, Eygló og Gleipni. Allt eru þetta verkefni sem ganga út á að virkja hugvitið um land allt til þess að leita grænna lausna við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Það á jafnt við um orkuskiptin, sem við ætlum okkur að klára, og um virkjun hugvitsins að enginn landshluti má sitja eftir. Áskoranirnar í loftslagsmálunum eru einfaldlega af þeirri stærðargráðu að það þurfa allir að leggjast á eitt og vinna saman við að leita lausna. Bankað á dyrnar Í desember síðastliðnum tók stýrihópur um eflingu umhverfis- og loftslagsvænna nýfjárfestinga – Græni dregillinn – til starfa. Markmiðið er að bæta ferla og þjónustu, allt frá hugmynd að rekstri. Þá er stýri- hópnum ætlað að vera svokallað „one stop shop“ fyrir grænar erlendar nýfjárfestingar. Við Íslendingar höfum lengi verið í þeirri stöðu að þurfa að sækja erlenda fjárfestingu til landsins. Sér- staða okkar í orkumálum, metnaðarfull markmið ríkisstjórnarinnar og íslenskt hugvit veldur því að nú er bankað á dyrnar hjá okkur. Við verðum að búa þannig um hnútana að dyrnar geti verið opnar fyrir erlendri fjárfestingu í íslenskum grænum lausnum. Nýsköpun og hugvit um land allt eru lykilþættir í sókninni sem fram undan er. n Grænar lausnir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra ser@frettabladid.is   Dellur Íslendingar eru delluþjóð í orði og æði. Þeim finnst gjarnan best að fylgja hjörðinni, hvort heldur er í háttum eða hugar- fari. Það er enda erfitt að búa í fámenninu og skera sig úr, vera öðruvísi og annarskyns. Og þetta á ekki síst við um talsmátann. Það apa allir allt upp eftir öðrum. Þess vegna er allt „geggjað“ á Íslandi og hefur verið um árabil. Og ef það er ekki „geggjað“ er það alveg „ógeðslega“ flott. En svo kemur að því að landinn gefst upp á einsleitni orðanna og fer að fálma eftir einhverju nýju sem má tönnlast á næstu árin. Tryllt Nú er farið að bera á nýjasta orðinu. Og það er „tryllt“. Fast- eignasalar, svo einhverjir séu nefndir, eru byrjaðir að skipta út orðinu „geggjað útsýni“ og „geggjaður garður“ í „tryllt útsýni“ og „trylltan garð“. Það var og. Auðvitað eru f lestir lands- menn fyrir lifandis löngu orðnir hundleiðir á orðskríp- inu „geggjað“ yfir alla hluti í lífinu, en hvort þessi arftaki á tungu þeirra fari betur í munni en þetta ofnotaðasta orð á eyjunni í norðri, skal ósagt látið. En það var samt „tryllt gaman“ að skrifa þennan pistil. n Fjölmörgum þjóðríkjum sem stæra sig af því að búa við lýðræði – og gott ef ekki einhver mannréttindi – er í reyndinni stjórnað af hættulegum hrokagikkjum sem svífast einskis við að sanka að sér völdum til að hylja slóð spillingar og siðleysis. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, er dæmi um dreissugan ofstopamann af þessu tagi. Hann fer fyrir einni hættulegustu aftur- haldsstjórn sem setið hefur að völdum í landinu um áraraðir – og er þar raunar af nógu að taka í rysjóttri sögu þjóðanna fyrir botni Miðjarðar- hafs. Netanjahú hrökklaðist frá völdum fyrir fáum árum vegna spillingarmála eftir að hafa verið þaulsætinn á stóli forsætisráðherra í Ísrael, en náði valdataumunum á nýjan leik undir lokin á síðasta ári með fulltingi hægrisinnuðustu flokka landsins. Og leiðtogar þeirra allra eru svo forhertir afturhaldsseggir að fullkomin óvissa er um á hvaða öld þeir lifa. Itamar Ben-Gvir, leiðtogi Gyðinglegs valds, hefur verið ákærður fyrir hatursorðræðu og er einbeittur stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka strangtrúaðra gyðinga. Aryeh Deri sem leiðir rétttrúnaðarflokkinn Shas, hefur verið fundinn sekur um skattsvik, mútuþægni og fjársvik. Bezalel Smotrich fer fyrir Trúarlega zíonistaflokknum og berst fyrir aðskilnaði gyðinga og araba á fæðingardeildum og er alræmdur fyrir þau orð sín að Palestínu- menn séu ekki til. Loks þarf að nefna Avi Maoz, formann Noam-flokksins sem vill leggja af gleðigöngur í landinu og talar gegn því að konur fái jöfn tækifæri á við karla í hernum. Fimmta íhaldið í þessari stæku stjórn er svo auðvitað karlpungurinn Netanjahú sem bítur höfuðið af skömminni í svikum og prettum. Hann er klappaður upp af þessum forpokuðu fjórmenningum sem að ofan eru taldir og freistar þess nú með bellibrögðum að draga úr völdum dómstóla í landinu og auka völd sín á þeirra kostnað. Það myndi merkja að ríkissaksóknari landsins gæti ekki lengur lýst því yfir að forsætisráðherra landsins sé vanhæfur til að gegna starfi sínu, en þar með yrði erfiðara að bola svikamanni úr embætti sem hefur ítrekað verið sakaður um spillingu og fjársvik. Þessu fyrirhugaða valdaráni og árás á lýðræðið í landinu hefur verið svarað með viðamestu og fjölmennustu mótmælum í sögu Ísraels. Það er vel. En við blasir hins vegar hugmyndafræði hægra íhaldsins, að taka sér dómsvald í bland við framkvæmdavaldið og sulla raunar þrískipt- ingu valdsins saman í einn súran graut. Það eru svona karlar sem heiminum stendur hætta af. Þeim stendur ógn af lýðræði. n Hrokagikkir Kynntu þér dreifingu Fréttablaðsins Skannaðu kóðann í snjalltækinu þínu Nánari upplýsingar www.frettabladid.is/stodsidur/dreifing 10 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 30. mARs 2023 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.