Fréttablaðið - 30.03.2023, Side 16

Fréttablaðið - 30.03.2023, Side 16
Fyrstu skartgrip- irnir sem ég eign- aðist voru í skírnargjöf, það var kross og arm- band áletrað með nafn- inu mínu. Unnur Eir Björnsdóttir Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Unnur Eir Björnsdóttir gullsmíðameistari hefur einstaklega fallegan og fág- aðan smekk þegar kemur að hönnun skartgripa. Hönnun hennar hefur vakið athygli fyrir form og áferð, mjúkar línur eru áberandi í forminu. Unnur er fjölskyldumanneskja, gift með þrjú börn og elsta barnið hennar fermdist einmitt um síðustu helgi. Unnur starfar hjá Meba sem er fjölskyldufyrirtæki, en segja má að hún hafi alist upp innan um skartgripi frá fyrst tíð og þannig kviknaði áhugi hennar á því að læra gullsmíði. „Ég ólst upp innan um skartgripi og úr. Afi og amma stofnuðu Meba, eða Magnús E. Baldvinsson eins og það hét þá. Þegar mamma og pabbi koma inn í reksturinn og verslunin flytur í Kringluna breyttu þau nafninu í Meba. Ég varði miklum tíma þar með þeim í uppvextinum, sem var dásamlegur tími. Ætli áhuginn hafi ekki komið strax þá, ég var með miklar skoðanir á hvað mér þætti fallegt og hvernig ég vildi hafa gripina. Fannst sömu- leiðis áhugavert að fylgjast með verkstæðisvinnunni og vildi geta skapað mitt eigið,“ segir Unnur. Fyrstu skartgripirnir skírnargjöf Unnur man vel eftir fyrsta skart- gripnum sem hún eignaðist og sömuleiðis veit hún vel hvenær hún fékk fyrsta skartgripinn sinn. „Fyrstu skartgripirnir sem ég eignaðist voru í skírnargjöf, það var kross og armband áletrað með nafninu mínu. En skartgripurinn sem ég eignaðist fyrst sem ég man eftir eru skartgripirnir sem ég fékk í fermingargjöf, þríkrossinn frá ömmu og afa og gullhringur frá systkinum mínum.“ Unnur segir að skartgripirnir hennar hafi mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana og séu persónu- legir munir sem geyma minningar. „Skartgripir eru svo persónulegir. Trúlofunarhringurinn minn er náttúrulega í miklu uppáhaldi sem og hringurinn sem ég erfði eftir ömmu mína. Man eftir mér sem lítilli stelpu horfa dáleidd á hringinn og nú í dag fylgja margar minningar þessum hring,“ segir Unnur dreymin á svipinn. Unnur hefur einstaklega þægi- lega nærveru, er jákvæð að eðlis- fari og bjartsýn og það má segja að það skíni í gegn í hönnun hennar. Einnig er hún afar vandvirk og hún segist þar af leiðandi stundum vera svolítið smámunasöm. Sköpunarkrafturinn hefur ávallt Persónulegir skartgripir sem geyma minningar Unnur Eir gullsmíða- meistari sækir innblásturinn í hönnuninni mest í dag- lega lífið sem og náttúruna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK verið til staðar hjá Unni. „Ég sæki innblásturinn mest í daglega lífið og náttúruna. Ekki er annað hægt en að fyllast eldmóð þegar maður keyrir um og ferðast í kringum fal- lega landið okkar.“ Innblástur frá Dimmalimm Þegar Unnur er spurð hvort hún muni eftir fyrsta skartgripnum sem hún hannaði segir hún að verkefnin hafi verið mörg í náminu. „Ég vann mörg hönn- unarverkefni þegar ég var í CSM í London en það var eitt verkefni sem ég þróaði svo áfram og er orðið hluti af minni línu í dag. Það er hringur sem ég vann út frá ævintýrinu Dimmalimm eftir Mugg. Tók mjúkar línur svansins sem ég mótaði sem hring, í miðju hringsins þar sem svanshöfuðið endar í raun festi í ég stein í „kór- ónu“ Dimma limmar.“ Aðspurð segir Unnur að skart- gripir séu aftur að koma inn sem vinsælar fermingargjafir. „Hérna áður fyrr voru skartgripir mikið gefnir. Fyrir svona 10 til 15 árum held ég sirka, tíminn líður svo hratt, þá varð vinsælla að gefa fermingarbörnum pening. En í dag finnst mér svo yndislegt að heyra að fermingarbörn óski sér að fá gjafir líka. Það er gaman að fá pakka. Þannig að það að gefa skartgrip er að aukast aftur og þá bæði fyrir stúlkur og drengi,“ segir Unnur og bætir við að það sé ánægjulegt að sjá hversu margir drengir óski sér ákveðinna skart- gripa sem þeim finnst fallegt að bera. Það má segja að skartgripatískan fari í hringi, rétt eins og fatatískan. Einu sinni var það gullið, svo hvíta- gull og síðan var silfrið vinsælast. Unnur er spurð hvað hún telji vera það heitasta í dag. „Gyllti liturinn er vinsælastur í dag. Þá ýmist ekta gull eða gullhúðað silfur,“ segir Unnur að lokum. n Draumur nefnist þetta armband. Draumur. Hálsmenið er hluti af skartgripalínu Unnar. Eyrnarlokkar sem heita Dimma. Eyrnalokkar úr Draumalínunni. Hringurinn Dimma limm sem Unnur hannaði á sínum tíma. Tók mjúkar línur svansins sem hún mótaði sem hring, í miðju hringsins þar sem svanshöfuðið endar í raun festi hún stein í „kórónu“ Dimmalimmar. 4 kynningarblað A L LT 30. mars 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.