Fréttablaðið - 30.03.2023, Síða 20
Ég vil hjálpa Íslend-
ingum að týna ekki
dýrmætum menningar-
arfi sínum og munstur-
þekkingu heldur láta
hann ganga í endurnýjun
lífdaga í nútímafatnaði.
Þýski hönnuðurinn Frieda
Roolf hannar flíkur og fylgi-
hluti undir nafninu Fríða
fína. Í nútíma fatnaði hefur
hún gömul íslensk munstur
til vegs og virðingar.
thordisg@frettabladid.is
„Ég hef alltaf heillast af gömlum
íslenskum og norskum munstrum.
Fyrsta árið sem ég bjó á Íslandi
fékk ég gefins Íslensku sjóna
bókina sem geymir forn íslensk
munstur og fann að ég vildi vinna
með þau og gera þeim hærra undir
höfði. Ég vil hjálpa Íslendingum að
tapa ekki dýrmætum menningar
arfi sínum og munsturþekkingu
heldur láta hann ganga í endurnýj
un lífdaga með því að nota hann á
nútímafatnað sem hægt er að nota
bæði hvunndags og spari.“
Þetta segir Frieda Roolf, þýskur
hönnuður og innanhússarkitekt
sem flutti til Íslands fyrir sex
árum. Hún vinnur mestmegnis í
búningahönnun fyrir kvikmynda
bransann, oftast fyrir bandarískt
bíó og sjónvarp, nú síðast fyrir
sjónvarpsseríuna Wheel of time
fyrir Amazon.
„Í kvikmyndabransanum
vinnur maður kannski sleitulaust
í sjö mánuði en mig vantaði að
vinna með eitthvað annað þegar
ekkert væri að gera þess á milli.
Ég var yfir mig heilluð af þessum
gömlu, fallegu munstrum og þótti
leiðinlegt að finna enga notkun
þeirra hér á landi, nema á þjóð
búningum og gömlum útsaum í
Góða hirðinum sem reyndist þá
annað hvort sænskur eða norskur.
Ég hafði líka bara séð krakka í
lopapeysum og búningum með
munstri í bóndastíl og fannst
mikilvægt að brúa bil fortíðar til
nútímans með líflegum krakka
peysum með útsaumi og bróderíi
til að nota hvunndags eða spari.“
Leiðinlegt þegar allir eru eins
Frieda var að vinna að búningum
fyrir tökur á þáttum sem fram
fóru í Tékklandi þegar hún kynnti
sér útsaumsvélar sem taka við
munstrum á stafrænan hátt og
úr varð að tékknesk samstarfs
kona hennar prófaði að sauma flík
sem þær unnu í sameiningu með
útsaumi sem Frieda hannaði úr
fornu, íslensku munstri. Í kjölfarið
hannaði og saumaði Frieda gríðar
fallegan telpnakjól sem minnir á
skautbúning.
„Ég fann svartan velúrkjól í
H&M, úr svipuðu efni og notað er
í suma íslensku þjóðbúningana,
og hreinlega varð að prófa að
sauma í hann gamalt íslenskt
munstur til að sjá hvernig hann
liti út. Ég stúdera munstrin út
frá gömlum myndum og gef
mér leyfi til að nota liti sem eru
heppilegri fyrir börn. Ég elska
þennan kjól sem ég gaf barna
barni mannsins míns og hef nú
hannað og saumað velúrpeysu
með sama munstri á faldinum,“
segir Frieda sem hannar undir
nafninu Fríða fína.
„Ég hanna flíkurnar í anda 101
Reykjavík, fyrir nútímabörn því ég
veit að ekki allir fíla að setja börnin
sín í gamaldags sveitamúnd eringu.
Ísland er fámenn eyja og fyrir
mig sem Þjóðverja var skrýtið að
sjá hvernig íslenska þjóðin vildi
klæða sig eins og heildin. Þannig
eru allar konur á mínum aldri með
eins húfur og eins er því farið með
krakkana, litaúrval í verslunum
er mestmegnis brúnir og bleikir
tónar, og helst í stíl við mömmu og
pabba. Það finnst mér ógeðslega
leiðinlegt. Krakkar sem hafa fengið
peysurnar mínar elska þær, ekki
síst vegna litanna og munstranna,“
segir Frieda.
„Ég er líka pínu að vinna með
Ástin, sjórinn og fjöllin halda mér á Íslandi
Íslensk munstur fortíðar eiga fullt
erindi í tískufatnað nútímafólks.
Glæsilegur bekkur með gömlum út-
saumi á glænýrri peysu frá Friedu.Hér má sjá gamla íslenska útsaumsfígúru sem minnir á nútíma róbótavíking.
Frieda saumar
allar peysurnar
sjálf og notar
til þess litrík og
lífræn efni.
krakkann í sjálfri mér. Ég nýt þess
að setja efnin saman, finna réttu
munstrin og liti sem tóna skemmti
lega saman, og maðurinn minn
skilur ekkert í því hvernig ég fer
að því. Honum þykir útkoman
bæði frískandi og flott, og tekur
jafnan fram að honum hefði aldrei
hugkvæmst að raða þessum litum
saman.“
Made in Iceland, ekki Kína
Frieda er með vinnustofu í húsi
að Saurbæ á Strönd í Hvalfirði,
en annan hvern föstudag, til að
mynda á morgun, er hún í Kirsu
berjatrénu á Vesturgötu þar sem
hún selur íslensku munsturflík
urnar sínar.
„Ég veit að Íslendingar leggja
ekki í vana sinn að fara í Kirsu
berjatréð til að kaupa barnaföt,
en einhvers staðar þarf ég að
byrja. Mér finnst mikilvægt að
fatnaðurinn sé heimagerður frá
grunni, og í Kirsuberjatréð koma
margir erlendir ferðamenn sem
tala sérstaklega um að þeir kunni
að meta að flíkurnar séu ekki
merktar: Made in China. Ég sauma
allan fatnaðinn sjálf og þótt ég hafi
byrjað með barnaföt hef ég nú fært
út kvíarnar því inn kemur fullorðið
fólk sem segir: „Mig langar líka í
svona“,“ segir Frieda kát.
Efni til saumaskapsins flytur
hún inn frá Þýskalandi.
„Því mér leiðast þessir trend
litir sem öllu ráða núna. Allt
að 90 prósent efnanna minna
eru lífræn en alls ekki allt því
stundum finnst mér litur svo
fallegur að ég stenst ekki að
kaupa hann,“ segir hún og hlær.
Frieda segir íslensku munstrin
að mörgu leyti einstök.
„Eitt af því sem einkennir
gömlu munstrin er lítil fígúra sem
lítur út eins og nútíma róbóta
víkingur. Hann er afskaplega sætur
og nútímalegur, og krakkarnir eru
yfir sig hrifnir af honum. Einnig er
þar lítill dreki sem börnum þykir
heillandi. Ég vil því leggja mitt af
mörkum til að landsmenn endur
uppgötvi sína merkilegu arfleifð
í stað þess að eltast við útlend
trend á Instagram og það leynir sér
ekki að börnin hrífast af íslenska
víkingaróbótanum, drekanum,
litunum og fleiru, rétt eins og hinir
fullorðnu af gömlu munstrunum.“
Hver einasta flík Friedu er ein
stök og engin eins.
„Mér finnst ótrúlega spennandi
að vinna með fólki og að sér
pöntunum. Ég á til fullt af töfrandi
fallegum litum og hægt er að velja
hvaða munstur sem er.“
Friður og ró í Hvalfirði
Það var náttúran sem togaði Friedu
til Íslands.
„Ég kom til Íslands því ég þráði
að hafa fjöll og sjó í kringum mig.
Ég held ég sé líka pínu skrýtin, og
það er maðurinn minn líka. Við
erum að gera upp afar spenn
andi hús frá gömlu fiskeldi við
Hvalfjarðarströnd, hálfgerðan
verksmiðjukubb sem við erum að
breyta, byggja og bæta. Að ganga
út um dyr þess er dásamlegt. Þar
blasa við Botnssúlur og hafið er
aðeins þrjá metra frá húsinu. Þarna
finn ég frið og fegurð. Maðurinn
minn er svo algjör snillingur í að
byggja og með mig sem útlærðan
innanhússarkitekt eru hæg heima
tökin að búa til eitthvað alveg
sérstakt saman,“ segir Frieda sem
talar nær lýtalausa íslensku.
„Maðurinn minn er íslenskur
sem talar enga þýsku og heima
tölum við því miður alltaf saman
á ensku. Mig langar að verða enn
betri í íslenskunni og æfi mig með
því að tala við hundana okkar tvo,
köttinn og hænurnar, og næst vill
maðurinn fá geitur á bæinn.“
Frieda unir hag sínum vel á
Íslandi en segir veðrið hafa verið
erfitt og kalt í vetur.
„Áður en ég kom til Íslands gerði
ég mér ekki grein fyrir því hversu
tré eru mér mikilvæg. Ég elska að
vera í skógi með 100 metra há tré
allt í kring, en það er lítið um slíkt
á Íslandi. Skóglendi hér á landi er
aðeins 0,5 prósent af því sem var
við landnám og ég vil hjálpa til við
að breyta landinu til fyrra horfs.
Þess vegna gróðurset ég tré fyrir
hverjar 5.000 krónur sem ég sel í
samstarfi við skógræktarverkefnið
One tree planted á Norðurlandi og
Austfjörðum. Mér finnst mikil
vægt að gera ekki bara eitthvað
út í loftið og vil leggja mitt af
mörkum,“ segir Frieda sem er líka
búin að gróðursetja 400 tré heima
í Saurbæ.
„Það gefur svo mikið að hafa
tré. Dýralífið verður ríkulegra,
landið meira lifandi og ekki eins
vindasamt, að ógleymdri yndis
legri gróðurangan og sitthverju til
að vinna með,“ segir Frieda, alsæl í
Hvalfirðinum.
„Það er ástin sem heldur mér á
Íslandi. Ég kom upphaflega til að
læra að keyra hundasleða sem ég
og gerði á Suðurlandi. Ég var svo
á leið til Kanada þegar ég hitti
manninn minn, Ómar Hafliðason,
snilling með meiru. Ómar getur
allt, hann er rafeindavirki, pípari,
kafari og kann svo ótalmargt
fleira. Við pössum líka silunga
fyrir mann og Ómar finnur leiðir
til að fá meira súrefni í vatnið.
Saman getum við því gert svo
margt og mikið sjálf, sem gerir allt
einfaldara. Okkur langar að fá leyfi
til að setja silunga í vatn sem er hér
fyrir framan húsið og leyfa fjöl
skyldum að koma og veiða. Eins og
sést er því stundum mikið í gangi
hjá okkur og það er alltaf gaman;
aldrei leiðinlegt.“
Fylgist með Friedu á Instagram
@fri.dafina n
Fyrsti kjóllinn sem Frieda saumaði
með gömlu íslensku munstri.
Slaufa með sægrænum dreka sem er
gamalt íslenskt útsaumsmunstur.
Frieda kom fyrst til Íslands til að læra að keyra hundasleða en svo birtist ástin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
8 kynningarblað A L LT 30. mars 2023 FIMMTUDAGUR