Fréttablaðið - 30.03.2023, Page 22

Fréttablaðið - 30.03.2023, Page 22
Besta deild karla fer af stað þann 10. apríl en þetta er í annað sinn sem deildin er með þessu fyrirkomulagi. Spilaðir verða 22 leikir og að þeim umferðum loknum er deildinni skipt upp í tvo hluta, eru þá spilaðir fimm leikir. Fréttablaðið mun á næstu dögum spá í spilin. hordur@frettabladid.is Félögin sem berjast munu við falldrauginn Spá FréttablaðSinS – Besta deildin | 9. Keflavík n Lykilmaður: Nacho Heras n Þjálfari: Sigurður Ragnar Eyjólfsson n Heimavöllur: HS Orku-völlurinn n Íslandsmeistarar: 4 sinnum Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálf- ari Keflavíkur, stimplaði sig inn á síðustu leiktíð sem einn færasti þjálfari deildarinnar. Sigurður setti þá saman nýtt lið og gerði það frábærlega, sama vinna er fyrir höndum í ár en samheldni virðist vera í Keflavík og Sigurður leiðir hjörðina áfram. Gríðarlegar mannabreytingar eru á milli ára og allir bestu leik- menn Keflavíkur eru farnir á braut, nægir þar að nefna Patrik Johannesen, Adam Ægi Pálsson og Sindra Kristin Ólafsson. Það verður þrautin þyngri fyrir Sigurð Ragnar að setja saman nýtt lið en það hefur verið ágætis uppgangur í leik liðsins í vetur. Allt þarf að smella svo Keflavík nái þessu níunda sæti en það er vel gerlegt miðað við liðin sem eru að keppa við Keflavík um að halda sér í deildinni. Komnir Jordan Smylie Marley Blair Mathias Rosenörn Sami Kamel Daníel Gylfason Gunnlaugur Fannar Guðmundsson Viktor Andri Hafþórsson Farnir Adam Ægir Pálsson Dani Hatakka Joey Gibbs Kian Williams Patrik Johannesen Rúnar Þór Sigurgeirsson Sindri Kristinn Ólafsson Adam Árni Róbertsson 10. HK n Lykilmaður: Leifur Andri Leifsson n Þjálfari: Ómar Ingi Guðmundsson n Heimavöllur: Kórinn n Íslandsmeistarar: Aldrei HK er komið aftur upp í deild þeirra bestu og mun mikið mæða á hinum unga þjálfara, Ómari Inga Guðmundssyni. Þessi spennandi þjálfari tók við þjálfun HK í upp- hafi síðasta tímabils þegar Brynjar Björn Gunnarsson sagði starfi sínu lausu. Ómar stýrði HK upp í Bestu deildina og lét liðið spila skemmti- legan fótbolta. HK er með sterkan kjarna sem hefur verið styrktur lítillega í vetur, liðið sárvantar framherja sem tryggir 10–15 mörk og mögu- leiki er á að HK sæki slíkan mann áður en tímabilið byrjar. HK hefur sótt tvo spennandi erlenda leikmenn en miðju- maðurinn Marciano Aziz raðaði inn mörkum fyrir Aftureldingu í Lengjudeildinni í fyrra og varnar- maðurinn Ahmad Faqa kom á láni frá AIK í Svíþjóð og er ætlað að binda varnarleikinn saman. Harðir HK-ingar hafa áhyggjur af mark- varðarstöðunni en Arnar Freyr Ólafsson hefur varið mark liðsins undanfarin ár. Komnir Marciano Aziz Ahmad Faqa (á láni) Atli Hrafn Andrason Atli Þór Jónasson Brynjar Snær Pálsson Farnir Stefán Ingi Sigurðarson Ásgeir Marteinsson Bjarni Gunnarsson Bjarni Páll Linnet Runólfsson Bruno Soares til Þýskalands 11. Fram n Lykilmaður: Guðmundur Magnússon n Þjálfari: Jón Sveinsson n Heimavöllur: Framvöllur, Úlfarsárdal n Íslandsmeistarar: 18 sinnum Framarar þurfa að óttast fall- drauginn í sumar en eftir frábært tímabil í fyrra er hætt við því að heilkennið sem fylgir oft öðru tímabili í efstu deild banki upp á. Fram hefur misst meira en liðið hefur sótt og gæti það verið áhyggjuefni. Varnarleikur liðsins var ansi slakur á síðustu leiktíð og fékk liðið á sig 63 mörk í 27 leikjum, aðeins liðin sem féllu úr deildinni fengu fleiri mörk á sig. Fram hefur fengið þrjá leikmenn til sín í vetur en allir eiga það sam- eiginlegt að vera óskrifað blað í efstu deild, Adam Örn Arnarson hefur reynslu úr atvinnumennsku en hann lék með Breiðabliki og Leikni á síðustu leiktíð og fann ekki sitt besta form. Fram hefur misst mikilvæga leikmenn og nægir þar að nefna Alex Frey Elísson og Almar Ormarsson sem áttu stóran þátt í því að Fram vegnaði vel á síðustu leiktíð. Guðmundur Magnússon skoraði sautján mörk á síðustu leiktíð og óvíst er hvort hann geti haldið uppteknum hætti. Komnir Adam Örn Arnarson Aron Jóhannsson Orri Sigurjónsson Farnir Almarr Ormarsson Gunnar Gunnarsson Indriði Áki Þorláksson Jesús Yendis Alex Freyr Elísson 12. Fylkir n Lykilmaður: Ólafur Kristófer Helgason n Þjálfari: Rúnar Páll Sigmundsson n Heimavöllur: Fylkisvöllur n Íslandsmeistarar: Aldrei Appelsínugula liðið í Árbænum er aftur mætt í deild þeirra bestu en liðið vann Lengjudeildina á sannfærandi hátt á síðustu leiktíð. Í vetur hefur hins vegar Fylkir ekki styrkst mikið. Nokkrir leikmenn hafa bæst í hópinn en erfitt er að sjá einhvern þeirra breyta miklu. Emil Ásmundsson sem var á láni hjá Fylki á síðustu leiktíð gekk endanlega í raðir félagsins og gæti orðið lykilmaður. Stærsti hausverkur Fylkis gæti orðið að skora mörk en þrátt fyrir markaveislu í næstefstu deild er Fylkir ekki með neinn framherja sem hefur sannað ágæti sitt í efstu deild á undanförnum árum. Rúnar Páll Sigmundsson er reyndur í deildinni og það gæti hjálpað Fylki en allt þarf að smella svo liðið fari ekki beint niður á nýjan leik. Rúnar er þekktastur fyrir afrek sín sem þjálfari Stjörnunnar en hann er nú á leið inn í sitt annað heila tímabil sem þjálfari liðsins. Sterkur kjarni af heimamönnum er í Fylki sem gæti orðið styrkur liðsins í sumar en það getur orðið á brattann að sækja þar sem breiddin er lítil. Komnir Elís Rafn Björnsson Emil Ásmundsson Jón Ívan Rivine Ólafur Karl Finsen Pétur Bjarnason Farinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson Eftir gott gengi í fyrra spáir Fréttablaðið því að Fram falli úr Bestu deildinni í sumar. FréttaBLaðið/Ernir 14 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 30. mARs 2023 FiMMtUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.