Fréttablaðið - 30.03.2023, Síða 28

Fréttablaðið - 30.03.2023, Síða 28
arnartomas@frettabladid.is Velgengni spunaspilsins Dungeons & Dragons virðist engan enda ætla að taka eftir að pottormarnir í Stranger Things komu nörda­ iðjunni kirfilega fyrir í poppkúlt­ úrnum. Um helgina verður ný kvik­ mynd byggð á spilinu frumsýnd í kvikmyndahúsum landsins og eðli­ lega kraumar í nördaheimum. „Það er mikil stemning fyrir þessu,“ segir Tinna Hallsdóttir, erki­ njörður hjá Hlutkesti, samtökum spunaspilara á Íslandi. „Við verðum hópur sem fer á vegum Hlutkestis saman sem verður mjög gaman.“ Dungeons & Dragons myndin frá árinu 2000 er ekki í hávegum höfð og segist Tinna sjálf hafa forðast eftir fremsta megni að sjá hana. Ráin fyrir nýju myndina er því ekk­ ert sérstaklega há. En hvað e r e rk injörður inn spenntastur að sjá? „Mig langar virkilega mikið að sjá mimic (ísl. gervill),“ segir Tinna og vísar til eins þekktasta skrímslis­ ins úr heimi Dungeons & Dragons, gervilsins sem getur brugðið sér í ham veraldlegra hluta. „Ef ég fengi að sjá þennan klassíska sem breyt­ ist úr fjársjóðskistu í skrímsli þá er ég ánægð. Mér þætti líka gaman að sjá owlbear (ísl. uglubjörn) en ég held ég hafi einmitt séð slíkan í stiklunni fyrir myndina.“ Frumsýning myndarinnar er ákveðinn forsmekkur að spuna­ spilamóti sem Hlutkesti stendur fyrir í apríl. „Það hefur verið rosa mikil gróska í spunaspilum í samfélag­ inu, ekki bara Dungeons & Dra­ gons heldur alls konar,“ segir Tinna. „Við verðum með heilsdagsmót 22. apríl þar sem fólk á öllum aldri getur skráð sig í hóp til að spila. Við hvetjum fólk til að fylgjast með á heimasíðu Hlutkestis!“ n Við verðum með heilsdagsmót 22. apríl þar sem fólk á öllum aldri getur skráð sig í hóp til að spila. Tinna Hallsdóttir, erkinjörður hjá Hlutkesti Í hljóðprufunni kemur einmitt Taylor Hawk- ins inn og spyr hvort það sé einhver séns að leyfa honum og band- inu hans að vera á gestalista kvöldsins. Franz Gunnars- son, skipuleggj- andi messunnar Taylor Hawkins verður minnst á Foo Fighters­messu sem haldin verður á Húrra á laugar­ daginn. Skipuleggjandi mess­ unnar á góða sögu að segja af trommaranum ástsæla. arnartomas@frettabladid.is „Ég hef verið að gera rokkmessur í dágóðan tíma með hinum ýmsu böndum þar sem er verið að heiðra hin og þessi bönd,“ segir Franz Gunnarsson, skipuleggjandi Foo Fighters­messu sem haldin verður á Húrra um helgina. „Foo Fighters hafa auðvitað verið mjög lengi verið á listanum. Trommari Foo Fighters, Taylor Hawkins, féll frá fyrir um ári síðan í ferðalagi sveitarinnar um Suður­ Ameríku. Í kjölfarið var hlaðið í stóra og stjörnum prýdda minningartón­ leika sem haldnir voru á Englandi og í Bandaríkjunum þar sem minning trommarans ástkæra var heiðruð. „Þá fannst okkur kominn tími á að vera með smá tribute hérna fyrir kappann á litla Íslandi,“ segir Franz og bendir á að sveitin hafi verið dugleg að koma hingað til lands í gegnum tíðina. „Ég hef farið á þó nokkra tónleika með þeim sjálfur og þeir hafa alltaf skilað sínu, bæði þegar þeir voru að koma fyrst fram og eftir að þeir urðu stærri. Þeir hafa aldrei gefið neitt eftir og eru alveg frábært tónleikaband.“ Lausir við stæla Franz segir þá í Foo Fighters einkar jarðbundnar stórstjörnur. „Einu sinni þegar ég var með eina af þessum rokkmessum, sem var haldin til heiðurs Nirvana, þá voru Foo Fighters einmitt að spila í Egilshöllinni,“ rifjar hann upp. „Í hljóðprufunni kemur einmitt Tay­ lor Hawkins inn og spyr hvort það sé einhver séns að leyfa honum og bandinu hans að vera á gestalista kvöldsins því að söngvarinn í hans bandi hefði nú verið viðloðandi sveitina sem við værum að heiðra.“ Það þótti ekki tiltökumál að koma sjálfri Foo Fighters á gestalistann en sveitin endaði þó á að koma ekki. Það gerði hins vegar faðir forsprakk­ ans Dave Grohl, James Grohl. „Grohl eldri var þá að flakka með syni sínum út um allan heim og var mjög hress,“ segir Franz um James sem gerði meðal annars mikla lukku í Bláa lóninu. „Hann fékk áritað plak­ at frá okkur fyrir son sinn.“ Þeir hljóma nú eins og ansi hóg- værar rokkstjörnur! „Þarna fékk maður einmitt smjör­ þefinn af því hvað þessir kappar eru Jarðbundnu rokkstjörnurnar heiðraðar á Húrra Taylor Hawkins féll frá í mars í fyrra. Fréttablaðið/ Getty Frá tónleikum Foo Fighters á Secret Solstice. Fréttablaðið/ andri Marinó Erkinjörðurinn spenntastur fyrir gervlum og uglubjörnum jarðbundnir,“ segir Franz. „Það er það sem maður kann svo vel við, að þeir eru lausir við alla stæla. Það var svo mikill húmor í þessu öllu saman að sveit af þeirra stærðargráðu væri að reyna að smygla sér inn á gesta­ listann. Það er því sjálfsagt að við heiðrum mann eins og Hawkins af fullum krafti.“ Rifist um lagavalið Eins og fyrri rokkmessur eru tónleik­ arnir á laugardaginn vel mannaðir. Ásamt Franz koma þar fram Einar Vilberg, Skúli Gíslason, Elvar Bragi Kristjónsson og Hálfdán Árnason. Katalógur Foo Fighters er þó orðinn ansi stór og eiga messumennirnir úr vöndu að velja fyrir settlista laugar­ dagsins. „Þetta verður bara þverskurður af helstu lögum sveitarinnar frá byrjun og fram til dagsins í dag,“ segir Franz. „Við reynum að stikla á stóru en það hefur verið rifist um það innan sveit­ arinnar hvað við ætlum að taka. Það er auðvitað ekki hægt að taka allt því annars værum við þarna í tvo daga samfleytt.“ Hver verður þá lendingin? „Ég get lofað bæði kanónum og einhverju sjaldgæfara fyrir allra hörðustu aðdáendurna,“ segir Franz. „Foo Fighters er með stærri hljómsveitum í heiminum og hún á dyggan aðdáendahóp hérna heima. Við vonumst til að gera þetta sóma­ samlega enda engir aukvisar í band­ inu.“ n Ráin er ekkert sérstaklega há fyrir Chris Pine og félaga. 20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 30. mARs 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.