AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Blaðsíða 27

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Blaðsíða 27
Undirrituðum er ókunnugt um hvort að baki liggi hagkvæmisútreikningar eða ekki. Þá er að finna önnur dæmi þar sem steinuð hús eru klædd með steindum plötum og jafnaðarmerki sett á milli. Hérlendis er hefð fyrir tvenns konar klæðningu eða veðurhlíf- um utanhúss, annars vegar bárujárn á timburhús og hins vegar múrhúðun með ýmsum tilbrigðum. Sú klæðningaralda sem nú ríður yfir er án reynslu og rannsókna þar sem íslensk hefð hefur verið að einangra hús að innan. Með flutningi einangrunar á ytri byrði húsa verða til ýmis hönnunaratriði sem leysa þarf á nýjan hátt. Má þar nefna frágang hita- og hreinlætislagna sem áður lágu í einangrun er síðar var múrhúðuð eða klædd af og fengu göt gegnum burðarvirki þar ákveðna hljóðeinangrun. Sama á við um glugga sem gjarnan eru settir í á eftir þegar hús er klætt að utan. Það er alkunna að fúi sótti helst að gömlu timbur- húsunum undir glugga. Á sama hátt eru deililausnir við glugga á klæddu hús erfiðar úrlausnar og má reikna með að sagan endurtaki sig og bæði einangr- un og burðargrind verði hætt við skemmdum.sé ekki vandað til frágangs við glugga. Eins og áður segir er svo til engin reynsla fengin á þær klæðningar sem nú eru helst í tísku, því má sþyrja: ■ Hver er ending á burðargrind úr timbri undir plötuklæðningum? ■ Hver er útloftunarþörf slíkra klæðninga? ■ Hvert er veðrunarþol og litfesta í íslenskri veðráttu? ■ Hvernig eldast og hrörna festingar? ■ Hvernig er samleitni efnis þegar kemur að ótíma- bærri endurnýjun vegna tjóna? ■ Hver má ætla að verði mismunur milli nýrra og gamalla aðferða á stofnkosnaði og viðhaldskostnaði? Þá má einnig spyrja: Ætla fslendingar að víkja sér undan eðlilegu viðhaldi á steinsteyptum húsum og klæða þau öll utan um leið og byggingarhefðum er breytt með því að flytja einangrun á ytra byrði út- veggja? Undirritaður telur að löngu tímabært sé að fram fari ítarleg rannsókn á gæðum steinsteypu á íslandi frá upphafi, þátt járnalagaí steypuskemmdum.gildi múr- húðunar sem veðurhlífar, samband einangrunar og steypuskemmda, byggingartímaog aðhlúun steypu ásamt ýmsum fleiri þáttum. Niðurstaða slíkra alhliða rannsókna ásamt saman- burði á kostnaði gæti orðið grundvöllur að breyttri byggingarhefð í landinu og komið í stað þeirra tilrauna sem nú er víða unnið að, jafnframt því sem lagður yrði grunnur að „viðgerðarhefð" á steinsteypt- um húsum á sama hátt og „viðgerðarhefð" er að verða til á bárujárnsklæddum timburhúsum. ■ 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.