AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Side 30
EFNISVAL
Á allra síðustu árum hafa komið fram athyglisverðar
íslenskar nýjungar inn á markað loftræstra útveggja-
klæðninga. Nefna má steinklæðningarnar sem t.d.
prýða Vesturgötu 7 og Seðlabankann (sjá mynd 1).
I , :
Mynd I: Frá Seðlabanka Islands, klæðning úr íslensku
gabbrói frá Hornafirði.
Nýjasta framtakið á þessu sviði er 2 - 3 mm þykk
slétt stálklæðning sem framleidd er á Akureyri. Þar
eru plöturnar tilsniðnar, boraðar, sinkhúðaðarog jafn-
vel sprautaðar í öllum regnbogans litum eftir óskum
viðkomandi arkitekts. Ekki verður annað sagt en að
þessi íslenska þróunarvinna hafi tekist nokkuð vel,
ef hún er metin eftir t.d. Húsaskóla í Grafarvogs-
hverfinu sem verður að teljast eftirtektarverður skóli
(sjá mynd 2).
Auk þessara íslensku nýjunga er gífurlegt framboð á
Mynd 2: Húsaskóli (Teiknað: Arkitektaþjónustan sf.)
innfluttum klæðningarefnum.
Við val þeirra verður þó að fara með gát því sumar
efnisgerðir eru vandmeðfarnar við erfiðar íslenskar
aðstæður.
VERKLÝSINGAR
Eins og eðlilegt er þegar nýjar aðferðir eru að mótast
eru gerð mörg og margvísleg mistök í efnismeðferð
og frágangi. Allt of algengt hefurverið að klæðningar
hafi verið óhannaðar og settar upp án nægilegs
undirbúnings. Þetta er þó að breytast með auknum
skilningi á mikilvægi góðs og rétts frágangs og hert-
um kröfum frá byggingaryfirvöldum.
Aðkallandi er því að góðar verklýsingar og deililausnir
séu fyrir hendi og aðgengilegar fyrir notendur þess-
ara klæðninga. Rétt er þó í hverju tilfelli að sérhanna
klæðninguna fyrir húsin af hæfum aðilum til að lág-
marka mistakahættuna og til þess að klæðningarnar
skapi húsunum það eftirsóknarverða útlit sem að er
stefnt og veðurhlíf.
Enn er alltof algengt að rekast á slæm mistök, t.d.
varðandi loftun, frágang í kringum glugga og jafnvel
ranga efnismeðferð.
VANDAMÁL
Ýmsar gryfjur verða á vegi þess, sem hannar klæðn-
ingu og hefur ekki kynnt sér málið til hlítar fyrst.
Nefna má:
■ Festingar geta verið vanmetnar eða jafnvel
ofmetnar verulega.
■ Tengsl mismunandi efna eru viðkvæm og nokkuð
flókin. Dæmi um þetta eru festingar í gegnvarið
timbur og snertingar mismunandi málma.
■ Loftræstiþörf er oft vanmetin.
■ Taka þarf tillit til starfsemi á því húsi sem klæða
skal. Skólar eru t.d. dæmi um hús þar sem gæta
verður vel að styrk klæðningarefnisins og frágangi,
svo að uppátektarsamir unglingar hvorki skemmi
klæðninguna né meiði sig.
■ Efniseiginleikar klæðningarefna koma stundum á
óvart.
■ Hita- og rakaþensla veldur í einstöku tilfellum
óvæntum vandræðum.
■ Vanda þarf frágang kringum glugga og dyr, sem
þegar upp er staðið gefa klæðningunni lokaútlit.
Mistök við frágang yfir, við glugga og á vatnsbrettum
geta auðveldlega skemmt annars áferðarfallega
klæðningu.
28