AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Side 32
I
isins að virka rétt saman, þ.e. einangrun, festingar,
bending og múr. Ýmsir eiginleikar þessara þátta
skipta því verulega meira máli heldur en í loftræstu
klæðningunum og verður því hér á eftir fjallað lítillega
um hvern þátt fyrir sig.
UNDIRLAG
múreinangrunarkerfis er mikilvægt þó ekki sé það
talið með sem kerfishluti. Undirlag hérlendis eroftast
steyptur veggur en einnig er hægt að nota múrein-
angrunarkerfi á t.d. múraða hlaðna veggi og timbur-
klædda burðargrind úr timbri eða stáli. Kröfur sem
gerðar eru til undirlags er að það sé hreint (ef einangr-
un er límd á vegg) og að það hafi nægjanlegt burðar-
þol þannig að tryggt sé að líming einangrunarplatn-
anna og festingar fái nægjanlegt hald. Rétt er að
benda á að óæskilegt er að hefja uppsetningu múr-
einangrunarkerfis á undirlag sem inniheldur mikinn
raka.
EINANGRUN
er annaðhvort plasteinangrun (þanið polystyren) eða
steinullareinangrun (einangrunargildi svipað). Helstu
eiginleikar einangrunarinnar sem máli skipta fyrir
múreinangrunarkerfi eru: skerþol, þrýstiþol og stífleiki
(fjaðurstuðull). í múreinangrunarkerfum er því eðli-
legra að greina á milli stífrar og eftirgefanlegrar ein-
angrunar fremur en plast- og steinullareinangrunar.
Brunaþol getur einnig haft áhrif á val einangrunar
og ef notuð er plasteinangrun er yfirleitt gerð krafa
um að hún sé tregtendranleg. Ef notuð er plast-
einangrun er mikilvægt að nota staðið frauðplast,
a.m.k. 8 vikna gamalt, þar sem þanin polystyren-
einangrun rýrnar mest fyrstu 6-8 vikurnar eftir þenslu.
Ef vatn kemst á bak við múreinangrunarkerfi drener-
ar steinull sig betur en plasteinangrunin. Fylla þarf
vel í samskeyti plasteinangrunarplatna áður en
múrað er til að vatn nái ekki að safnast þar fyrir og
valda frostskemmdum á kerfinu. í akrýlmúrkerfum
næst sterkari binding milli plasts og múrs en milli
steinullar og múrs.
FESTINGAR - KRAFTYFIRFÆRSLUR
í meginatriðum eru festingar kerfanna við vegg eftir-
farandi:
■ Lím: Einangrun er límd á vegg og múr síðan límdur
á einangrun. Gæta þarf vel að viðloðun við undirlag.
Einum til tveimur dögum eftir að einangrun er límd á
vegginn má draga undirmúr á hana.
■ Lím og dýflur (festinaglar, sjá mynd 4): Öruggasta
og algengasta aðferðin. Einangrun er límd á vegg
og einnig fest með dýflum. Álag sem múreinangrun-
arkerfið verður fyrir er yfirfært í vegg með einangrun
eða með einangruninni og dýflunum.
■ Dýflur: Einangrun er fest á vegg með dýflum. í sem-
entsbundnum kerfum eru oftast notaðar dýflur með
fjarlægðarklossa og festingu fyrir bendinet á dýflu-
haus. Dýflurnar yfirfæra síðan álag sem múreinangr-
unarkerfið verður fyrir yfir í vegginn.
MÚRSKELIN EÐA MÚRKÁPAN
er alltaf byggð upp í tveim lögum, annars vegar net-
bentum undirmúr og hins vegar veðurþolnari yfirmúr.
Bindiefni múrlögunar segir til um gerð kerfisins, þ.e.
hvort það flokkast sem sements- eða akrýlbundið
múreinangrunarkerfi. Bindiefni akrýl-múreinangrun-
arkerfanna eru plastefni, stundum með sements-
íblöndun, en sementsbundin múreinangrunarkerfi
hafa sement, oft með plastþeytum sem bindiefni.
Fylliefni í akrýl-múreinangrunarkerfum eru ýmist
steinefni eða plastefni eða blanda af þessu tvennu.
Fylliefni sementsbundnu múrkerfanna eru oftast
steinefni. Ef bindiefni akrýlmúrsins er sementsbland-
að þornar múrinn fyrr og er ekki eins viðkvæmur fyrir
raka. Plastbindiefnið gerir það aftur að verkum að
múrinn hefur meiri teygjanleika. Þornunartími múrs-
ins er mjög breytilegur og getur verið einn dagur
eða jafnvel vikur, háð veðurfari og eiginleikum múrs.
Verulegur munur er á þykkt kerfanna, þ.e. akrýlbund-
inna og sementsbundinna. Kerfi sem samanstendur
af steinull og þykkum, sementsbundnum múr er oft-
ast þungt og gróft, á meðan kerfi sem samanstendur
af plasteinangrun og þunnum múr eru léttari og þá
jafnframt oft viðkvæmari fyrir höggálagi. Algengustu
þykktir þessara múreinangrunarkerfa eru gefnar upp
í töflu 1
Akrý múr mm Sementsbundinn múr mm
Undirmúr 1 V2-4 10-15
Yfirmúr 2-4 5-10
Heildarþykkt 4-8 20-25
Taflal: Algengustu þykktir múrkápu. (ATH! til eru
þynnri sementsb. kerfi.)
30