AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Page 39
GERÐARSAFN
Aöalinngangur í safnið er á efri hæð að norðanverðu
frá Hamraborg. Þar er einnig rúmgott anddyri, tveir
sýningarsalir, aðstaða fyrir starfsfólk og snyrtingar.
Sýningarsalirnir eru mismunandi í laginu, annar er
ferhyrningur 210 m2 að grunnfleti, en hinn ferningur
237 m2. Tvenns konar form salanna býður upp á ólíkt
rými og gefur möguleika á mismunandi uppsetningu
sýninga. Sýningarsölunum má skipta í smærri eining-
ar með skilveggjum sem standa á gólfi og myndar
hver eining rými sem er 5,2 x 5,2 m.Vestursal er þann-
ig skipt í í átta einingar, þ.e.tvisvar sinnum fjórar.en í
austursal eru þær níu, þ.e. þrisvar sinnum þrjár. Loft-
brú í glerbyggingu milli salanna tengir þá saman og
gerir gestum kleift að ganga greiðlega í hring um
sýningarsvæðið á efri hæð. Ennfremur er yfirsýn af
loftbrú yfir allt miðsvæði hússins.
í báðum sýningarsölum er ofanlýsing sem fengin er
með bogahvelfingum sem snúa glerflötum mót
norðri. Undir þeim er dreifigler sem hleypir dagsbirtu
ofan í salina, og fellur þannig jöfn birta á útveggi og
skilveggi á miðju gólfi. Að auki er einn hringlaga
gluggi í hvorum sal, sem opnar sýningarrými út á
við og tengir það umhverfinu. Gert er ráð fyrir að
tempra megi Ijósflæði í gegnum hringgluggana með
glertrefjamottum sé þess óskað. Á vesturvegg í
anddyri eru einnig hringlaga gluggar og úr þeim er
útsýni yfir í holtið og til kirkjunnar.
Veggir sýningarsala eru í anddyri klæddir með sömu
granítklæðningu og húsið að utan og með því móti
er lögð áhersla á að um tvö sjálfstæð húsform er að
ræða. Þetta er síðan ítrekað með klassískum dyraum-
búnaði á sýningarsölum.
Á gólfum í sýningarsölum er eikarparkett sem er
sérstaklega meðhöndlað með hvítu lakki. Með því
móti fær trégólfið Ijósan lit og athygli gesta er beint
að veggjum sýningarsala og listaverkum sem á þeim
hanga.
NEÐRI HÆÐ
Á neðri hæðinni er kaffistofa, fjölnotasalur, skrifstofur,
listaverkageymsla, tæknirými, snyrtingar og fleira.
Kaffistofan er í glerhúsi miðsvæðis í húsinu og úr
henni útsýni út í fyrirhugaðan höggmyndagarð sunn-
an við safnið. Hún opnast vel inn að fjölnotasal og
jafnframt að efri hæð með stiga í miðju húsinu og
loftbrú sem gengur yfir hann og tengir sýningarsalina.
Fjölnotasalurinn er um 115 m2 að stærð. Salur þessi
er ætlaður fyrir ýmsa starfsemi, til dæmis minni sýn-
ingar og fyrirlestra. Hann tengist aðliggjandi gangi
og myndar þannig stærri heild. Gangur þessi opnast
til vesturs í fyrirhugað sýningarsvæði utan húss og
tengist þannig áðurnefndum höggmyndagarði sunn-
an við húsið. ■
37