AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Qupperneq 63
verið lifandi starfsemi í Epalhúsinu í Faxafeni frá því
það var tekið í notkun og heimsókn í húsið ævinlega
líkust heimsókn á listsýningu.
Vegna hins vandaða úrvals hönnunarvara af ýmsu
tagi, sem Epal býður viðskiptavinum sínum upp á,
hefur viljað brenna við að menn telji að einungis dýrar
vörur séu þar á boðstólum. Vörurnar eru hins vegar
hvað verð snertir fullkomlega samkeppnisfærar við
vörur annarra í sama gæðaflokki og við verðsaman-
burð hefur meira að segja komið í Ijós að sumar vörur
Epals eru ódýrari hér en þær eru í Danmörku, svo
dæmi sé tekið. Ennfremur má geta þess að Epal tók
þátt í útboði á stólum fyrir Þjóðarbókhlöðuna. Niður-
staðan varð sú að stór hluti stóla, sem keyptir voru,
er frá Epal. Stólarnir voru meðal annars frá Kusch
Co. í Þýskalandi og nokkrum dönskum fyrirtækjum.
Á hverju ári veita Danir erlendum fyrirtækjum sem
kynna og selja danskar vörur viðurkenningu - Lands-
foreningens dansk arbejds diploma og Prins
Hendriks æresmedalje. Árið 1986 hlaut Eyjólfur
Pálsson forstjóri Epals þessa viðurkenningu og
afhenti Hinrik prins honum heiðurspeninginn í eigin
persónu í danska sendiráðinu í Reykjavík. Er þetta
mikil viðurkenning á gildi samvinnu Eyjólfs við danska
hönnuði, listamenn og framleiðendur undanfarin
tuttugu ár.
Fullyrða má að draumur hins unga innanhússarki-
tekts sem stofnaði fyrirtækið Epal fyrir tuttugu árum
um að skapa ungum hönnuðum tækifæri og aðstöðu
til þess að koma sjálfum sér og verkum sínum á fram-
færi hefur ræst og um leið hefur starfsemi Epals orðið
til þess að vekja áhuga almennings á góðri hönnun
og vönduðum vörum. ■
Múrkerfið frá Islenskum múrvörum hf.
N I Ð URSTAÐAN í DAG :
Þol - veðurálag:
„...álag sem kemur á kápuna dreifist alljafnt á
festingar þar sem kápan er um 25 mm þykkt
netbent múrlag. Ekki á að vera neinum vand-
kvæðum bundið að hanna frágang kerfisins
þannig að það þoli allt veðurlag sem til greina
kemur hérlendis...“ D... , •
Bjorn Martemsson,
Rannsóknastofnun
Byggingariðnaðarins
Yfirborðsmeðhöndlun:
„Yfirborðsmeðhöndlun með málningu endist
ágætlega á kerfinu. Sum af fyrstu húsunum þar
sem múrkerfið er nú 6-8 ára gamalt hafa aðeins
verið máluð einu sinni án þess að málningarlagið
hafi gefið sig. Björn Marteinsson,
Rannsóknastofnun
Steypu S ke m m d í r: Byggingariðnaðarins
„Steypuskemmdir eru algengar í steyptum
útveggjum og þá einkum húsum sem eru byggð
frá 1970-1985...Þegar kostnaður við steypuvið-
gerðir er orðin þetta mikill, þá er hagkvæmara
að einangra húsið að utan og klæða [m. IMUR
múrkerfi |.“ Oddur Hjaltason, Línuhönnun hf.
Viðhaldskostnaður og árangur
viðgerða á ÍMÚR múrkerfi:
„Árangur viðgerðanna lofar góðu og lítil eða
engin ummerki sjást um að viðgerðirnar séu að
bila. Kostnaður við slíkar viðgerðir er lítill borið
saman við miklar steypuviðgerðir."
Oddur Hjaltason, Línuhönnun hf.
í dag hefur ÍMÚR múrkerfi
verið sett á um 70.000 m
Ráðgjafar IMUR veita frekari
upplýsingar í afgreiðslunni
eða í síma 567 35 55.
Verið velkomin til ÍMÚR.
ÍSLENSKAR MÚRVÖRUR HF.
VIÐARHÖFÐI1, 112 REYKJAVÍK. SÍMI: 567 35 55. MYNDSENDIR: 567 35 42