AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1995, Blaðsíða 78
>'
30
z
o-
I
>
z
|hönnunar
Klappstóll, hönnuður: Sigurður Gústafsson
önnunardagar voru haldnir 23. febrúar
til 5. mars s.l. Undanfari Hönnunardaga
er Hönnunardagar húsgagna og inn-
réttinga sem haldinn hefur verið fimm
sinnum á undanförnum árum.
f þetta sinn var ákveðið að útvíkka viðfangsefnið og
virkja fleiri greinar hönnunar. Efnt var til samstarfs
Hönnunarmiðstöðvár og hönnunarfélaga og ákveðið
var að efna til fimm sjálfstæðra sýninga. Ennfremur
var ákveðið að fá til landsins nokkra valinkunna
norræna fyrirlesara. Hönnunardagar hófust síðdegis
fimmtudaginn 23. febrúar með hefðbundinni sýningu
seljenda íslenskra húsgagna- og innréttinga. Alls
voru sjö fyrirtæki með opið hús og skörtuðu sínu
fegursta. Að kvöldi var móttaka í Sýningarsal
Hafnarhússins og afhenti iðnaðarráðherra þar
hönnunarverðlaun og setti jafnframt Hönnunardaga
1995.
SÝNINGAR
( Hafnarhúsinu var sýning húsgagnahönnuða og
framleiðenda. Þar vru 8 framleiðendur með sýnishorn
76
af framleiðslu á húsbúnaði, hönnuðum af íslenskum
hönnuðum. Ennfremur voru 14 fremstu húsgagna-
hönnuðir landsins þar með sín nýjustu verk.
í Geysishúsi voru leirlistarmenn, textílhönnuðir og
gullsmiðir með sameiginlega sýningu. Alls áttu um
30 manns verk á sýningunni. Á sýningunni var sýndur
ýmiss áhugaverður íslenskur listiðnaður s.s.
skartgripir, borðbúnaður, veggteppi og veggflísar. í
Geysihúsi var leitast við að gefa góða mynd af ferskri
og framsækinni hönnun innan þessara þriggja starfs-
/ listgreina.
í gamla Morgunblaðshúsinu var Félag íslenskra >
iðnhönnuða, með sýningu. Þessi yngsta grein hönn-
unar hér á landi gerði þar grein fyrir hlutverki sínu og
verksviði.
í Iðnó voru landslagsarkitektar, arkitektar og svo-
nefndar fataiðnir með sameiginlega sýningu. Iðnó
er ekki ennþá full frágengið og völdu arkitektar
þennan stað ekki síst vegna þeirrar umræðu sem
breytingar á húsinu hafa valdið.
í Kringlunni voru grafískir hönnuðir með veggmyndir.
Sturla Már Jónsson fyrir Seríu nett skrifstofuhúsgögn.