AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Síða 13
leggja grundvöllinn aö lifandl bæjarfélagi. Síðustu
áratugi, þegar Reykjavík leiddi í byggingafram-
kvæmdum á höfuöborgarsvæöinu, má segja aö
byggö hafi byggst upp eftir austur-vesturöxli í
borginni með Miklubrautina sem meginás. Núnaer
þetta aö breytast þannig aö uppbyggingaröxullinn
liggur í noröur-suöur, meö Reykjanesbrautina sem
meginás og tengir saman sveitarfélögin allt frá
Hafnarfirði, Garöabæ, Kópavog, Reykjavík og
Mosfellsbæ. Miöja vegu á þessum nýja öxli er ein-
mitt Kópavogsdalurinn þar sem öll gróskan hefur
verið og er að myndast þar öflug þungamiöja
höfuöborgarsvæöisins. Þessi norður/suður öxull
mun enn frekar styrkjast meö tilkomu Sunda-
brautar í Reykjavík og áframhaldandi tenginga
síöar allt upp í Kollafjörð. Gera má ráö fyrir aö
þungamiðja verslunar á þessum öxli veröi í
Kópavogsdal og teygi sig allt í Mjódd í Breiðholti.
Til suöurs er Garðabær og síöan Hafnarfjörður og
þar má ætla aö iðnaðarfyrirtæki, stór og smá, hasli
sér völl. í kringum þessa nýju miöju í Kópavogs-
dalnum til austurs hafa risiö íbúðahverfi hvert af
ööru: Smárahverfi, Lindahverfi og nú Salahverfi og
síöan mun byggðin halda áfram upp meöfram
Breiðholtinu og síöan niöur aö Elliðavatni.
Fátt bendir til þess aö Kópavogur muni missa þaö
frumkvæði í nýbyggingum sem bærinn hefur náð.
Nóg er af vel staðsettu landssvæöi til bygginga
upp allan Leirdalinn til austurs og síðan niöur á
framtíöarbyggingarsvæöi Kópavogs viö Elliöavatn.
Það er helst aö Garðabær eigi landssvæöi sem
getur keppt viö Kópavogssvæöin, t.d. meö svæö-
inu sunnan í Hnoðraholti og einnig mjög áhuga-
veröar lóöir fyrir atvinnurekstur í Molduhrauni.
Reykjavík er hins vegar komin í þá aðstööu aö þau
svæöi sem borgin hefur eru yfirleitt í útjarðri höfuö-
borgarsvæðisins og umferöarlega afskipt a.m.k.
þar til Sundabrautin veröur aö veruleika.
Framtíðarbyggingarsvæöi Kópavogs liggja inn af
núverandi byggingarsvæði í Leirdal, þar sem Sala-
hverfi er aö rísa, og ná niður aö Elliðavatni.
Raunar má segja að uppbygging þessara svæöa
sé þegar hafin því nokkur ár eru síðan fariö var aö
þétta gamla sumarbústaöabyggö á svæöinu með
varanlegum húsum og nú er útlit fyrir aö sú mikla
uppbyggingarbylgja sem risiö hefur í Kópavogi
muni færast aö náttúruperlunni Elliöavatni á næstu
árum. Þetta svæði er einstaklega skemmtilegt og
allfrábrugöiö öörum byggingarsvæöum sem í boöi
hafa verið því í staö þess að liggja viö sjó mun
byggðin rísa í hálfmána í suður- og vesturhlíðum
Elliöavatns meö útsýn yfir vatniö og upp í Heið-
Loftmyndir Vatnsenda.. Ljósm.Guðmundur ingólfsson.
mörk. Skipulagsyfirvöld í Kópavogi hafa gjarnan
nefnt svæöiö „Sveit í Bæ“ og þarf lítiö aö útskýra
þaö frekar, en ef vel tekst til verður þarna all-
sérstæö byggð nátengd náttúrunni meö mikla
útivistarmöguleika í sambandi við Elliðavatn og
stutt í Heiðmörkina.
1
1