AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 49

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 49
vinnuvernd í verki VELLIÐAN VIÐ Forvarnarstarf sjúkraþjá fara í fyrirtœkjum V_V annsóknir á Noröurlöndunum hafa sýnt að álagseinkenni eru aöalástæö- an fyrir fjarvistum frá vinnu og eru sívaxandi vandamái, sem líklega má rekja til meiri einhæfni í vinnu með aukinni vél- og tölvuvæðingu, auk meiri sérhæfingar almennt. Þaö er því til mikils aö vinna ef hægt er að sporna viö þessari þróun og bæta starfsumhverfi þannig aö starfsfólk njóti andlegrar og líkamlegrar vellíöunar viö vinnu. Stjórnendur fyrirtækja gera sér í æ ríkari mæli grein fyrir því aö gott starfsumhverfi skiptir miklu máli varöandi starfsánægju. Áhugi á heilsuvernd starfsmanna er aö aukast og þau fyrirtæki sem vinna markvisst aö því aö bæta vinnuumhverfi starfsmanna sinna uppskera fjárhagslegan ávin- ning sem felst m.a. í minni álagseinkennum, færri veikindadögum.aukinni framleiöslu og betri nýt- ingu hráefnis. En hvaö er gott vinnuumhverfi? Til aö meta vinnu- umhverfi þarf aö skoöa fjölmarga þætti: innrétt- ingar, lýsingu, hávaða, einhæfni, mannleg sam- skipti,vinnutíma,þjálfunarástand hvers og eins o.fl. Mikilvægt er aö sjá heildina og samspilið milli þes- sara ólíku en samtvinnuðu þátta. Samvinna marg- ra ólíkra fagstétta er nauösynleg til aö skapa betri vinnustað.Þáttur sjúkraþjálfara í þessari samvinnu er aö vekja athygli á vinnuumhverfinu, vinnuskipu- lagi og álagseinkennum þeim tengdum. Þetta er hluti af heilsuvernd starfsmanna. Einn starfsvett- vangur sjúkraþjálfara er ráðgjöf viö fyrirtæki og stofnanir á sviöi vinnuverndar sem felst m.a. í aö greina og meta áhættuþætti í vinnuumhverf- inu, aðallega m.t.t. líkamlegra álagseinkenna. Þarna er því um mikilvægt forvarnarstarf aö ræöa þar sem markmiðið er aö hindra þróun álagseinkenna meö því aö bæta starfsum- hverfið. Við slíka ráðgjöf er gerö vinnustaða- úttekt og nauðsynlegt er aö nota gátlista til aö tryggja gæöi þjónustunnar. Gátlistarnir eru sniönir eftir mismunandi starfsemi fyrir- tækjanna. Meö notkun gátlista fæst heildstæö mynd af vinnustaðnum þar sem tryggt er aö sömu þættir eru athugaðir hjá öllum, einnig koma fram sérkenni vinnustaðarins. Hægt er aö semja spurningalista og athuga fylgni milli streitu og fjölbreytni í starfi eöa fylgni milli þjálfunar og álagseinkenna svo dæmi séu nefnd. Fræösla og kennsla um álagseinkenni, líkamsbeitingu, vinnu- tækni, þjálfun og hléæfingar er mikilvægur hluti af störfum sjúkraþjálfara innan fyrirtækja og stofn- ana. Fræöslan er sniðin að eöli vinnunnar og þörf- um starfsmanna þannig aö þeir geti notfært sér upplýsingarnar viö vinnu sína. í úttektinni er starfs- mönnum einnig veitt persónuleg ráögjöf um líkamsbeitingu og álagseinkennavarnir. Hlutverk sjúkraþjálfara er einnig aö aöstoða og veita ráögjöf um val á tækjum, húsbúnaði, stólum, ýmsum hjálpartækjum og öörum fylgihlutum sem stuölaö geta aö bættri vinnuaðstöðu starfsmanna. Eftir samantekt á gátlistum eru gerðar tillögur aö úrbótum og þeim gjarnan forgangsraöaö. í kjölfar- iö er æskilegt aö gera skammtíma- og langtíma- markmiö í samráöi við stjórnendur. Eftirfylgni sjúkraþjálfara viö framkvæmd á úrbótum væri síðan æskilegt framhald þar sem gert yröi endur- mat á vinnuumhverfi, vinnuskipulagi og þeim úrbótum sem gerðar hafa veriö t.d. hálfu eða einu ári eftir úttekt. Slíkt endurmat er aö sjálfsögöu í fullu samráöi við óskir forsvarsmanna fyrirtækisins en þetta gæti verið þáttur í stefnumörkun fyrirtækis varðandi heilsuvernd starfsmanna. Vellíöan viö vinnu á ekki að vera forréttindi heldur sjálfsögö réttindi alls vinnandi fólks og öflugt forvarnarstarf er einn mikilvægasi þátturinn í því sambandi. ■ 47 AUÐUR OLAFSDOTTIR OG SIGPRUÐUR JONSDOTTIR, SJUKRAÞJALFARAR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.