AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 71
Nærliggjandi er 350 sæta áhorfendastúka. Undir
hæsta turni byggingarinnar í austri, sem snýr aö
vatninu, eru kaffihús, safnbúð og skrifstofur, sem
eru aðgengileg frá megintorgi borgarinnar. Þetta
gefur möguleika á að vera með opnunartíma
óháða opnunartímum listasafnsins.
HLUTVERK SAFNSINS
Þetta hof nútímalistar í Bilbao mun að mestu hafa
á boðstólum evrópska og bandaríska nútímalist,
og verða þá listaverkin fengin að láni frá Guggen-
heimsafninu í New York. Thomas Krens segir að
vöntun sé á stórum rýmum fyrir nútíma innsetning-
arverk og margmiðlunarverk sem listamenn í dag
hafa mestan áhuga á að sýna. Listamenn eins og
Richard Serra, Francesco Clemente, Jenny Holtz-
er og aðrir núlifandi listamenn munu njóta þess að
fylla upp í bátalagað sýningarými sem er 450 fet á
lengd og 80 fet á breidd (þó með engum sjáan-
legum burðarstólpum). Rúmlega helmingur þeirra
nítján sýningarýma sem safnið hefur er með hefð-
bundinni lögun langhyrnings. Þeir salir sem eru
með hallandi veggjum eru flestir með breytanlegu
kerfi, þar sem hægt er að rétta upp veggi ef þörf
krefur.
UPPFYLLING TÍMANS
Þhyllip Johnson, einn af stórhöfðingjum í arkitekt-
úrheiminum,álítur Bilbaosafnið án efa „merkileg-
ustu byggingu okkar tíma”. Arkitektinn Henry
Gobb segir: „Jafnvel þó byggingin standi svona
stórfenglega undir sjálfstæðu formi sínu er hún alls
ekki svo krefjandi að það sjái ekki fyrir annars-
konar þróun í byggingarlistinni.
Þetta er heldur jákvæð tilraun sem tókst vel og
svona eins og heimurinn ætti að vera: Athugum
hvað hægt er að gera, gerum skissu og sjáum
hvað gerist”.
Minnisvarðarstefna arkitektúrsins er þar með að
líða undir lok og vegir ruddir til framtíðar á vænt-
anlega frjósömu samstarfi milli lista og vísinda.
Ný öld er framundan og sveiflan er önnur í bygg-
ingartækninni. Frank O. Gehry hefur sannað að
byggingar geta verið sem rísandi blóm, fiskar og
annarskonar fljótandi form sem samræmast
umferðarflæði og fegurðarmati fólksins. Maðurinn
er meistari tækninnar og það er á hans valdi að
samræma þarfir mannsins í lífvænt en viðkvæmt
umhverfi ájörðinni.
(Birt meö leyfi © FMGB,Guggenheim Bilbao Museoa,Bilbao,1998.
Ljósm.: Erika Barahona Ede. Öll réttindi áskilin. Eftirprentun bönn-
uð).
GLÆSILBGJ
ÚíiVAL
AFHEUm
OG j íEh IUM.
Ei IDAIAUSIR
MÖGULEIKAR.
Hyrjarhöfði 8
sími: 577 1700
S taðgreiðs luverð:
9.800 kr.
m húsgögn
i
Armúla 44 • sími 553 2035
SANYLÞAKRENNUR
Fást í flestum byggingavöruverslunum landsins.
4 AiFABORG ?
KNARRARVOGI 4 • 8 568 6755
69