AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 68
1984-91 reis Chiat/Day skrifstofubyggingin á Main
Street í Venice, Kaliforníu meö óreglulegri röö af
hallandi burðarsúlum úr múrsteinum og margra
metra hárri eftirlíkingu af sjónauka. Áriö 1989
hannaði hann bátalíkneskisbygginguna fyrir Vitra
húsgagna- og safnverksmiöjuna Weil Am Rhein
safniö í Þýskalandi. Af öörum litríkum byggingum
Gehrys má nefna EMR bygginguna og skrifstofu-
byggingu fyrir hollenskt tryggingafélag staösett í
Prag sem gengur undir heitinu „Fred og Ginger”
eins og fræga dansparið. Einnig Weisman lista-
safniö, bandaríska sendiráðið í París og ekki síst
umtalaða Walt Disney tónlistarhöllin í Los
Angeles, heimabækistöö Fíllharmoníusveitar
borgarinnar.
GUGGENHEIMSAFNIÐ
f einni helstu menningarstöð veraldarinnar, New
York, er Guggenheim R. Solomon safniö staðsett
meö aðalsetur sitt, Fifth Avenue þar sem boga-
laga turnbygging bandaríska arkitektsins Franks
Lloyd Wright nýtur sín sem eðalmerki „Modern-
ismans” fyrr á öldinni. Undanfarin ár hafa stjórn-
endur safnsins velt því fyrir sér aö opna einskonar
útibú þess í Evrópu. Eftir nokkurn tíma tókust
samningar meö þeim og yfirvöldum Bilbaoborgar
um aö sérstök bygging yröi reist undir útibú
safnsins. Sveitarsjóður Baskahéraðsins skyldi
fjármagna bygginguna, en gert var ráð fyrir fjár-
magni til þess aö hefja borgina upp úr því
drungalega iðnaðaryfirbragði sem á henni haföi
hvílt.
SAMKEPPNIN
Undir vasklegri stjórn Thomas Krens, fram-
kvæmdarstjóra Guggenheimsafnsins í New York
og héraðsstjórnar Baskahéraösins og spánska
listfrömuöarins Carmen Giménez var samkeppni
um hönnun safnbyggingarinnar sett í gang.
í júní 1991 var aðeins þremur þekktum arkitektum
boöin þátttaka í samkeppni um hönnun nýlista-
safnsins, þeim Coop Himmenblau, Arata Isoaki
og Frank O. Gehry. Allir fengu þeir 3 vikur til þess
aö ferðast til Bilbao og leggja fram tillögur. Eftir
þessa stuttu samkeppni var Gehry falið verkefniö.
Stjórn Baskahéraðsins haföi upphaflega ákveöiö
aö safniö yröi staðsett í stórri 19. aldar byggingu í
miöbænum. En Gehry fékk stjórnina til þess aö
66