AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Síða 69
fara meö sér í nærliggjandi fjallshlíðar meö útsýni
yfir borgina. Þar benti hann þeim á að svæöiö
meðfram árbökkunum væri mun fýsilegra fyrir
safnbygginguna heldur en yfirgefna iönaöarhverf-
iö.
FRUMHÖNNUN OG TÆKNI
Þegar Frank O. Gehry vann frumhugmyndir sínar
notaöi hann pappaspjöld sem hann klippti niður,
mátaöi og límdi saman ásamt krumpuðum papp-
írsræmum og léttum viöarbútum. Arkitektinn vinn-
ur á þennan hátt á svipaöan máta og myndhöggv-
ari enda segir hann sjálfur aö byggingarlistin sé
nátengd höggmyndalistinni. „Þaö hefur í rauninni
samskonar umhverfislegt gildi”.
Þegar Gehry telur sig nokkurn veginn ánægöan
meö verkiö er módelið tekiö og staösett undir
pendúluborðum. í þeim hanga lesmælar sem lesa
úr forminu og teikna jafnóöum bygginguna í heild
sinni í þrívídd. Tölvuforritiö reiknar síðan út burö-
arþoliö liö fyrir liö og afneitar því sem er ekki hægt
aö framkvæma. Hver einasti buröarþolsbiti, allar
uppistöður, hvert stakt veggþil og allar klæöningar
fá sitt númer og staðsetning og efni þeirra eru
auðkennd.
Þetta tölvukerfi heitir Catia, en þaö er reikni- og
teikniforrit ætlað til hönnunar á flugvélum.
Franska fyrirtækið Dassault Systems markaös-
setti forritiö fyrir tólf árum. Þaö er ólíkt öörum arki-
tektúrforritum aö því leyti aö þaö vinnur út frá ytri
lögun en ekki staðbundnum hornlínum.
Krens framkvæmdarstjóri Guggenheimsafnsins
og Gehry unnu mjög náið saman. Hann sagöi
m.a. að Gehry ætti mjög auðvelt meö aö henda
hugmynd og byrja alveg upp á nýtt. Heföi upphaf-
leg tillaga arkitektsins veriö gjörólík endanlegu út-
liti safnsins. A.m.k. um 100 tillögur voru unnar
meöan á hönnun safnsins var í fæðingu.
Allir þeir arkitektar, verkfræöingar, iönaöarmenn
og aörir sem komu að byggingunni eru sammála
um aö vinnsluaöferð Gehrys hafi sparað óhemju
tíma og fé. Þeir sem þekkja til í byggingariðnað-
inum vita hversu oft þarf aö vísa úrlausnum verk-
efna frá manni til manns, en í þessu tilviki var allt-
af hægt aö sækja upplýsingar til tölvunnar - sem
ætíö haföi lausnina.
Framkvæmd byggingarinnar tók mun skemmri
tíma en áætlað var, og þakkar Gehry tækninni
fyrir.
67