AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 44

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Side 44
HALLDÓRA BRAGADÓTTIR, ARKITEKT ÞROTTARSVÆÐIÐ Skipulagssvæðið er alls um 2,1 ha og liggur í jaðri íbúðarbyggðar. Það er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. núgild- andi Aðalskipulagi Reykjavíkur, en var áður svæði íþróttafélagsins Þróttar. Gengið var frá samningum Reykjavík- urborgar og íþróttafélagsins Þróttar um flutning í Laugardal, þar sem það hefur fengið aðstöðu. í september 1997 var unnin forsögn að deiliskipu- lagi Þróttarsvæðis á Borgarskipulagi Reykjavíkur. í forsögninni kemur m.a. fram að þar sem svæðið afmarkast af fastmótaðri byggð, sé mikilvægt að stuðla að byggðarmynstri sem viðheldur sérkenn- um aðliggjandi byggðar og undirstrikar einkenni landslags í borginni. Ennfremur að stuðlað skuli að góðri byggingarlist í hvívetna, hvort sem um hefðbundnar eða nýjar húsagerðir sé að ræða. Einnig kemur þar fram að gera skuli ráð fyrir leik- velli og sparkvelli og að núverandi tennisvellir verði áfram næstu fimm ár. Að lokinni gerð for- sagnar fól Borgarskipulag KANON ARKITEKTUM ehf. að gera deiliskipulag að Þróttarsvæði. ÞRÓTTARSVÆÐIÐ - GREINARGERÐ Skipulagssvæðið og umhverfi þess: Skipulagssvæðið er í borgarhluta 4 skv. hverfa- skipulagi. Það afmarkast af Holtavegi að norðan, framtíðarlegu Sæbrautar að austan, Sæviðarsundi að vestan og íbúðarbyggð við Njörvasund að sunnan. Land skipulagssvæðisins er nánast halla-

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.