AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 16

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 16
SIGURÐUR BJÖRNSSON, MARKAÐSFULLTRÚI yrir nokkrum árum gerði Valtýr Hreiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, rannsókn á þátttöku Akureyr- arbæjar í atvinnurekstri. Rannsóknin spannaði nær hálfa öld, tók til kaupa bæjarins á hlutafé í atvinnufyrirtækjum og í rannsókninni var lagt mat á fjárhagslegan ávinning eða tap bæjarins af hlutafjárkaupunum. Valtýr athugaði 24 fyrirtæki sem Akureyrarbær hafði átt hlut í á tímabilinu. Hlutafjárkaup bæjarins (framreiknuð) námu 1.224 milljónum króna. Verð- mæti þeirra hlutabréfa sem Akureyrarbær átti þegar rannsóknin var gerð var 1.153 milljónir króna þannig að Akureyrarbær hafði tapað í heild- ina um 71 milljón króna. Arður upp á 214 milljónir króna hafði þó skilað sér í bæjarsjóð á þessari hálfu öld. Niðurstaða rannsóknarinnar er athyglis- verð, því í Ijós kom að fjárfesting í Útgerðarfélagi Akureyringa hafði ein sér skilað bæjarsjóði meira en hálfum milljarði króna í ávinning en bærinn tapað á flestum hinna fyrirtækjanna. ÞUNGAR BYRÐAR Þetta er merkileg rannsókn en svipaða úttekt hefði þurft að gera í fleiri sveitarfélögum. Það eru nefni- lega ekki bara bankar og fjárfestingalánasjóðir sem hafa þurft að taka á sig ómæld fjárhagstöp vegna atvinnulífsins á undangengnum árum. Sveitarfélögin í landinu bera þungar byrðar vegna þátttöku í atvinnulífinu. Hlutafjárkaupareikningur Akureyrarbæjar hefði verið mörg hundruð milljónir króna í mínus ef gjafakvótinn hefði ekki verið sett- ur á fyrir um áratug, en þegar framsal kvóta var leyft fyrir nokkrum árum jókst verðmæti hlutabréfa í Útgerðarfélagi Akureyringa gríðarlega. í rann- sókn sinni fór Valtýr ekki í saumana á ábyrgða- veitingum eða styrkjum, en mörg sveitarfélög hafa tapað miklu með þeim hætti. NÁGVÍGIÐ í HAGKERFINU Á íslandi er návígið meira í hagkerfinu en í fjöl- mennari löndum. Erfiðleikar í efnahagslífinu hafa oft orðið til þess að sveitarstjórnarmenn hafa látið undan þrýstingi að leggja atvinnufyrirtækjum lið. Þetta hefur verið gert með því að veita ábyrgðir, þrátt fyrir að skort- ur á tryggingum bendi skýrt til þess að grundvöll- urinn sé tæpur fyrir viðkomandi rekstri. Hlutafé 14

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.