AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Síða 34
Menningarmiðstöðinni er skipt í tvo áfanga, sá fyrri
sem nú er í byggingu hýsir tónlistarskóla og tón-
listarsal en sá seinni mun hýsa bókasafn og nátt-
úrufræðistofu. Markmiðið var að fyrri áfangi gæti
staðið sjálfstæður og óháður öðrum áfanga en þeir
munu tengjast þegar þar að kemur um tengibrú.
Tónlistarskóli umlykur tónlistarsalinn og ertveggja
hæða að götu. Lengst til vesturs er alrými tónlis-
tarsalar sem dempar niður hina miklu hæð tónlis-
tarsalarins sem rís upp milli skóla og alrýmis. Hin
mikla hæð salarins kemur til vegna óskar um
ákveðinn ómtíma, en það er einmitt rúmmál sem
gefur hámarks ómtíma og er það miðað við
áheyrendafjölda. í þessu tilfelli var miðað við ca.
10 m3 á hvern áheyranda miðað við ómtíma 1.8
sek. Þetta þýðir að hæst rís salurinn í 14 m hæð
yfir salargólfi. Byggingin víkur fyrir listasafni og
kirkju til norðurs og með því að slíta fyrsta og
annan áfanga í tvo sjálfstæða hluta eins og fyrr
segir tekst að halda sjónvinkli frá götu að kirkju á
milli áfanganna. Hið bogadregna form byggingar-
innar til vesturs er einnig liður í aðlögun hennar að
umhverfi sínu á eins látlausan og náttúrlegan hátt
og okkur var unnt, með sérstaka áherslu á nálægð
við kirkju og listasafn.
Hvað efnisval varðar höfum við reynt eftir fremsta
megni að velja íslenskan efnivið. Steinflísar utan á
skóla eru steyptar, sólskermur á alrými er rekavið-
ur, listar inni í tónlistarsal eru úr íslensku greni og
á gólfi alrýmis verður terrazzo með muldu grágrýti
úr holtinu sem fékkst við uppgröft úr grunni húss-
ins. Þar sem við vildum „spariklæða'1 salinn sjálfan
eðalmálmi sem liti eins út hvort sem hann væri
utan dyra eða innan, þurftum við að leita út fyrir
landsteinana að hentugu efni og enduðum með
forveðraðan kopar. Hann verður lagður niður með
salnum í gegnum alrýmið svo að gestir munu
ganga í gegnum koparinn inn í salinn.
Eitt af meginmarkmiðum verkefnis þessa hefur
verið að ná sem bestum hljómburði í salnum.
Salurinn er nánast hannaður utan um hljóm-
burðinn. Náin samvinna við Stefán Einarsson sér-
fræðing í hljómburði og Steindór Guðmundsson
sérfræðing í hljóðeinangrun hefur verið í gangi allt
frá því ákveðið var að breyta úr fjölnotasal í full-
burða hljómleikasal. Samvinna við þá tvo tók einn-
ig til tónlistarskólans hvað varðar hljóðeinangrun,
hljómburð, tækjakost og fleira. Verkefni þetta hef-
ur verið afar spennandi viðureignar þar sem tekið
hefur verið á ótal framandi hlutum. Það hversu lítil
byggingin er í sjálfu sér miðað við allt sem hún á
að innihalda hefur gert vinnsluna þunga. Þar hefur
á móti komið til góð samvinna við aðra hönnuði
hússins, því auk Stefáns og Steindórs komu að
verkinu Verkfræðistofan Hamraborg, Lagnatækni
ehf. og Rafteikning hf. Einnig skal nefna góð sam-
skipti við byggingarnefnd hússins og örugga
verkefnisstjórn Steingríms Haukssonar á tækni-
deild bæjarins. Síðast en ekki síst skal nefna þátt
byggingaverktakanna Ágústs Friðgeirssonar og
RIS ehf., en sá síðarnefndi skilar húsinu upp-
steyptu og frágengnu að utan, en þeim þætti
verður lokið í byrjun sumars og hefst þá frágangur
hússins að innan. Þegar þessar línur eru skrifaðar
er útboð þess áfanga verksins í gangi. Gert er ráð
fyrir að tónleikasalur auk fylgirýma verði tekinn í
notkun um næstu áramót en skólinn verði tilbúinn
til notkunar haustið 1999. ■
Waync
Dalton
GLÓFAXI hf.
SIMI
553 4236
FAX
588 8336
ELDVARNARHURÐIR,
BÍLSKÚRS, IÐNAÐAR-
OG ÖRYGGISHURÐIR
• MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
• HRINGDU OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
m
HORMANN
ELDVARNARHURÐIR
m
EININGAHURÐIR
mt i I
HLIÐARFELLIHURÐIR i I I ;
SVEIFLUHURÐIR
32