AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1998, Page 40
svo sem fólkvang og náttúruminjasvæði, og fá
stíga sem binda saman svæðin, hvort sem það er
í þéttbýli eða fyrir utan.
ÚTIVISTARSVÆÐI í VATNSLEYSUSTRANDAR-
HREPPI ERU:
- Ströndin. - Vogastapi. - Seltjörn, Snorrastaða-
tjarnir og hluti Hrafnagjár. - Vogatjörn, í Vogum.
- Aragerði, í Vogum. - Síkistjörn og umhverfi. Þar
er hesthúsasvæði. - íþróttasvæði, sundlaug og
tjaldstæði í Vogum. - Grænt svæði við Kirkjugerði
í Vogum, - Leikskólinn og grunnskólinn í Vogum.
LANDSLAGSGREINING
Hugtakið landslag tekur til þess náttúrulega
umhverfis sem umlykur okkur undir berum himni.
Landslag samanstendur af náttúrulegum þáttum:
berggrunni, jarðvegi, vatni og gróðri, einnig atrið-
um þar sem mannshöndin hefur komið inn í og er
yfirráðandi í stórum eða litlum stíl. Vegna nátt-
úrukraftanna og aðgerða mannsins er landslagið
sífellt í breytingu. Við höfum upprunalega nátt-
úrulegt landslag. Maðurinn hefur í gegnum tíðina
sett sitt mark á landslagið í gegnum mismunandi
starfsemi, svo sem landbúnað. Náttúrulega lands-
lagið er orðið að menningarlandslagi. Upphaf á
landslagshugtakinu er samhengið á milli náttúru,
forms og manns.
Greiningaraðferðin sem notuð var í verkefninu er
„sjónræn greiningaraðferð" (n. visuell analyseme-
tode) sem Kevin Lynch þróaði. Tveir norskir
landslagsarkitektar hafa gert skýrslu um hvernig
hægt sé að nota Kevin Lynch-aðferðina til að lýsa
menningarlandslaginu. í heild er svæðið frekar
lárétt opið svæði. Ströndin, Afstapahraunið, fjöllin
í suðri og Skógfellshraunið mynda ramma utan
um svæðið, einskonar kant (e. edges). Nokkur
sérstök svæði finnast (e. districts) eins og
Hrafnagjá, Snorrastaðatjarnir/Háibjalli og leifar
afseljum. Aðalkennileiti hreppsins er Keilir, mó-
bergsfjall sem er 378 m hátt. Það gnæfir hátt og
sést hvaðanæva að.
TILLAGA AÐ STÍGANETI
Eins og að framan greinir er Vatnsleysustrand-
arhreppur stórt sveitarfélag og er aðeins lítill hluti
hans byggður. Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið að
setja sér markmið varðandi útivistarmál í hreppn-
um. í verkefninu er gerð tillaga að stefnumörkun
fyrir Vatnsleysustrandarhrepp í útivistarmálum,
það er til dæmis:
i að gera almenningssvæði aðlaðandi fyrir al-
menning að umgangast,
i að gera ströndina frá Vogum að byggðinni á
ströndinni greiðfæra,
i að gera greiðfæra stíga frá Vogum /Vatnsleysu-
strönd út í „menningarlandslagið“,
i að gera upp gamlar þjóðleiðir og gamla stíga
sem finnast í hreppnum,
i að vernda sérstaka náttúrufegurð og
i að taka tillit til umhverfisins við hönnun og
staðarval fyrir upplýsingaskilti.
Það finnast margar gamlar þjóðleiðir og stígar á
svæðinu. í þessu verkefni er gerð tillaga að gera
upp nokkra af þessum stígum, það eru Skógfells-
vegur, vegur inn Brúnir, Þórustaðastígur, Almenn-
ingsvegur og Stapagata Einnig að tengja saman
seljarústirnar, sem eru syðst í hreppunum, með
stíg. Við ströndina er lagt til að gera alla leiðina
greiðfæra fyrir gangandi vegfarendur.
ÁNINGARSTAÐIR
Lagt er til að gerðir verði tveir aðaláningarstaðir,
þeir eru við Háabjalla/Snorrastaðatjarnir - austast
í hreppnum og við Eldborg/Jónsbrennur - suð-
vestast í hreppnum. ■
GAGNABANKI
BYGGINGAR-
ÞJÓNUSTUNNAR
www.bygging.is
38