Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 13

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 13
 12 Veiðimaðurinn 13 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing Laugardalsá, sem nú er komin í fóstur hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur næstu árin, er lítið vatnsfall, en heldur þó vatnsmagni sínu allvel, jafnvel á þurrkasumrum. Hún er dragá, á upptök sín í vötnunum á Skötufjarðarheiði upp undir Glámu sem er einhver mesta fjallaprýði á sunnanverðum Vestfjörðum. Ofan af heiðinni fellur áin til norðurs, í átt til sjávar í Ísafjarðardjúpi um Efstadal sem er framan við Laugardal. Þar er Efstadalsvatn, fallegt veiðivatn og ríkt af silungi. Það er nokkru minna umfangs en Laugabólsvatn sem er nokkru neðar, en fóstrar einnig býsn af urriða – og laxi reyndar líka Á milli vatnanna rennur efri hluti Laugardalsár og stundum má finna þar lax á stangli, þótt enginn sé þar veiðistaður merktur. Lax gengur vísast alla leið upp í Efstadalsvatn og sjást þar laxar þegar áliðið er sumars. Aðal laxveiðisvæðið er þó neðan Lauga- bólsvatns sem hefst í Affallinu sem er veiðistaður sem sagt er frá hér að neðan. Laugardalsá er hæglát ásýndum. Frammi í dalnum skiptast á kyrrlátar breiður, kátir strengir, fljót og svolitlir dammar sem þó ná ekki máli í samanburði við vatnsmeiri ár. Þegar áin nálgast Djúpið breytir hún um stíl, hraðar sinni för og breytir um háttu, verður æstari og ákafari, rétt eins og hún geti ekki beðið eftir faðmlagi sjávarins sem bíður í Djúpinu. Rétt undir hið síðasta verður hún feimin og kyrrlát á ný og fellur svo í fang hafsins sem tekur á móti henni mildilega, eins og við er að búast. Hér eftir mun ég lýsa Laugardalsánni eins og ég þekki hana, en auðvitað kann að vera að einhverjir hafi aðra sögu að segja. Ég hef þó veitt í ánni oftsinnis síðustu hálfa öld, venjulega miðsumars og hafa allar þessar ferðir skilið eftir minningar og þekkingu sem ég reyni að miðla í text- anum sem á eftir fylgir. Í mínum huga er Laugardalsáin drottning Vestfjarða og ber henni virðing og nærgætni sem slíkri. 700 600 500 400 300 200 100 0 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2015 2016 2017 2018 Veiði í Laugardalsá 2008 – 2018 Meðalveiði: 336 Greinarhöfundur með fallega veiði úr Blámýrarfljóti. Ljósmynd úr safni höfundar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.