Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 23

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Page 23
 22 Veiðimaðurinn 23 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing sjó fram. Á bakkanum þeim megin sem við komum að hylnum er myndarlegur klettur þar sem ágætt er að tylla sér til að kasta mæðinni um stund og horfa út á hylinn. Ekki er ósennilegt að einhver þeirra laxa sem í hylnum bíða, heilsi komumanni með myndarlegu stökki – og kannski fleiri en einn. Hérna rennur áin í léttum og líflegum streng en neðan hans opnast hún í fal- legan og nokkuð langan hyl, uns hún þrengist á ný og hylnum sleppir. Best er að byrja efst í strengnum. Hérna liggur laxinn jafnan mjög ofarlega og örlítið nær hinu landinu. Þar dýpkar aðeins og er laxinn þar gjarnan í kantinum. Gárutúpur eða flugur með slíku bragði fara hér ákaflega vel og það er falleg og æsandi sjón að sjá laxinn koma upp á eftir flugunni og hvolfa sér yfir hana. Margar slíkar minningar á ég frá Grímhólshyl. Ein sú eftirminnilegasta – og þar kom gáruhnúturinn reyndar ekki við sögu – er frá árinu 1972. Þá hafði faðir minn heitinn gleymt flugustönginni sinni við Grímhólshyl og ég var sendur gangandi ofan úr veiðihúsinu Tvísteinum til að sækja hana. Kvöldsett var orðið, en laxar gerðu vart við sig í hylnum. Með von um að einhverjar mínútur lifðu af veiðitím- anum þegar á staðinn væri komið, hafði ég sett flugubox í vasann og hnýtti nú á tauminn tveggja tommu lúru úr smiðju Kristjáns Gíslasonar. Branda hét hún og hafði gefið góða veiði á Iðu sem ég var farinn að reyna mig við á þeim árum, þrátt fyrir ungan aldur. Ég slæmdi þessu veiðarfæri efst í strenginn og það var ekki að sökum að spyrja, stærðar lax var á í fyrsta kasti. Í minningunni var baráttan æsileg. Það var farið að rökkva þegar ég kom loksins heim í veiðihús, dröslaði með mér 14 punda hrygnu sem ég hafði glímt við í góða stund. Mér skildist að foreldrar mínir hefðu verið farnir að hafa áhyggjur af mér, en þegar sást í sjónauka hvers kyns var, var látið kyrrt liggja. Rögnu Aðalsteinsdóttur á Laugabóli mætti ég á leið minni upp í veiðihús. Hún var að líta eftir kindum og hrósaði mér fyrir afrekið. Mér þótti vænt um það. Laxinn liggur einnig um miðbikið í Grím- hólshyl. Það getur verið gaman að þenja köstin á þeim slóðum – og sjálfsagt að reyna sig þar – en sannast sagna er efsti parturinn gjöfulli. Þegar straumurinn er orðinn hægur er neðar dregur, er sjálfsagt er að reyna að draga fluguna inn hratt, eða reyna gáruflugur sem kveikir stundum ærlega í fiskum sem þarna liggja. Sigurjónshylur Þegar áin rennur úr Grímhólshyl sveigir hún til norðurs og rennur til þeirrar áttar nokkurn spöl. Sigurjónshyl er að finna á þeim kafla, en hann dregur nafn sitt af fyrrnefndum Sigurjóni á Hrafnabjörgum. Skammt ofan við Sigurjónshyl getur að líta grunnt sefgróið lón vestanmegin ár sem á sér farveg út í ána. Þegar hves- sir í Laugardal gruggast þetta lón upp og litar ána fyrir neðan. Skammt neðan afrennslis lónsins gengur lítill garður út í ána og stöku sinnum má finna lax þar við. Spottakorn þar fyrir neðan er Sigurjón. Þetta er ekki með gjöfulli hyljum árinnar, þótt stöku sinnum auðnist mönnum að setja þarna í fisk. Þar er vænlegast að standa aðeins frá bakkanum og kasta í straumröstina , en einnig getur fiskur legið út af steini þar neðan við. Hylurinn er smá spöl frá veginum sem liggur fram Laugardalinn og líklegt er að margir telji eftir sér þann göngutúr. En þótt enginn fáist laxinn þar, er oft hægt að lenda í góðri urriðaveiði í Sigurjónshyl. Hagakotsfoss Hagakotsfoss blasir við frá akveginum og auðvelt að leggja bíl á lítið stæði sem þar er að finna. Þetta er nettur foss sem er reyndar frekar brött flúð sem fellur ofan í lítinn en djúpan pott og í framhaldinu í rennu þar neðan við sem grynnist út í átt að stóru grjóti.Venjulega liggur laxinn í rennukantinum fjær og hann getur einnig verið að finna niður undir steininum og í lænunum beggja vegna við hann. Vatnsmagn í ánni ræður hér nokkru um. Straumlagi er þannig háttað í rennunni að laxinn snýr að veiðimanninum og liggur þannig skáhallt á straumstefnuna. Haga- kotsfoss á sinn stað í hjarta mínu, því þar veiddi ég minn fyrsta lax sumarið 1969. Og annan skömmu síðar. Vekja má athygli á tveimur litlum pyttum rétt ofan við Hagakotsfoss þar sem lax getur staldrað stutt við þegar hann er í göngu. Ég hef sjaldan séð lax stökkva í Hagakotsfossi, enda virðist hann renna upp heftir klauf í miðju fossberginu. En þegar vart verður við göngulax í fossinum er sjálfsagt að skoða vel pyttina ofan hans sem áður er um getið. Nokkuð neðan við Hagakotsfoss má segja að Laugarsalsá breyti um stíl. Í stað þess að áin sé umlukt lyngmóum og burkna- grónum ásum þar sem hún rennur kyrrlát út dalinn, þá herðir hún nú nokkuð á sér og taka nú við klettar og klungur sem eru umgjörð árinnar – og er svo langleiðina til sjávar. Laugardalsá er hæglát ásýndum. Frammi í dalnum skiptast á kyrrlátar breiður, kátir strengir, fljót og svolitlir dammar sem þó ná ekki máli í samanburði við vatnsmeiri ár.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.