Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 52
50 Veiðimaðurinn 51 Norsarinn í Elliðaánum
sem ég lærði í Noregi hjá pabba þegar
við vorum með að veiða með bambus-
stönginni og ekkert hjól. Hann veitti mér
ráð og gott betur, hann mætti á barna-
daginn og sá til þess að bæði Eydís og
Davíð fengu lax á innan við klukkutíma.
Ég man ennþá nákvæmlega hvernig þetta
gekk fyrir sig.
Ásgeir mætti síðan
aftur daginn eftir
þegar Davíð átti
veiðileyfi, eins og
hann var búinn
að lofa. Þá aðstoð-
aði hann börnin
við að setja aftur
í sitthvorn laxinn
og var þeim landað
innan við klukku-
tíma eftir að veiði
hófst. Eftir þetta
sagði Eydís dóttir
m í n v ið m ig ,
‘pabbi, ég vildi
óska að þú værir
eins duglegur að
veiða og Ásgeir
Heiðar’.” Odd var
ekki búinn að búa
lengi á Íslandi
þegar hann var
kominn í árnefnd
Elliðaánna. Odd
sótti ekki um heldur var hringt í hann
og hann beðinn að ganga í nefndina.
„Ástæðan var sú að ég var sá eini sem
hafði mætt á hreinsunardag Elliðánna
tvö ár í röð. Þetta kunnu menn greini-
lega að meta og buðu mér því að ganga
í nefndina sem ég þáði. Þetta var lík-
lega árið 2009, ég man það ekki alveg.
Ég hef mjög gaman að þessu enda með
brennandi áhuga á veiði.
Það er forréttindi að vera í árnefnd með
Ásgeiri Heiðari, Jóni Þ. Einarssyni, Ólafi
E. Jóhannssyni og Viktori Guðmyndssyni.
Þetta eru allt frábærir veiðimenn og ég
hef lært mikið af þeim og sérstaklega
Ásgeiri.“
Elliðaárnar
vanmetnar.
Odd segir að Ellið-
áarnar séu mjög
merkilegar og að
mörgu leyti van-
metnar.
„Ég hef það á
t i l f i n n i n g u n n i
stundum að margir
geri of lítið úr
Elliðaánum - tengi
þær bara við Sjáv-
arfossinn og bíla-
umferðina á Vest-
urlandsveginum.
Elliðaárnar eru
svo miklu meira en
bara staðirnir við
Vesturlandsveg-
inn. Það kom mér
gríðarlega á óvart
þegar ég byrjaði að veiða í Elliðaánum
hvað þær eru skemmtilegar. Þegar maður
veiðir ofar í ánni þá hefur maður það á
tilfinningunni að maður sé kominn út úr
borginni. Það þarf ekki að fara lengra en
bara upp að svæðinu við félagsheimilið
til að upplifa þetta.
Ég lít fyrst og síðast á sjálfan mig sem
fluguveiðimenn en viðurkenni að mér
finnst alveg ofsalega gaman að veiða
stundum á maðk. Þetta er tvennt ólíkt
og allt önnur tækni sem þarf að beita í
maðkveiðinni en fluguveiðinni. Sumir
halda að maðkveiðin sé einföld en ég er
ekki sammála því. Ásgeir Heiðar sagði
einhvern tímann að allir gætu veitt á
flugu en að veiða á maðk væri list. Ég er
svolítið sammála þessu.“
Dauðir laxar á Facebook
„Mér finnst fyrirkomulagið í Elliðaánum
skemmtilegt, þá meina ég að leyft sé
að veiða á maðk á ákveðnum tíma og
á ákveðnum stöðum. Það er ekki allir
sammála þessu en mér finnst þetta
virka vel. Það eru töluverðir fordómar
út í maðkveiðina og það tengist svolítið
veiða og sleppa umræðunni allri saman.
Sú umræða hefur gengið út í öfgar. Menn
mega varla birta mynd af dauðum laxi á
Facebook öðruvísi en að eiga á hættu að
drullað sé yfir þá. Í mínum huga skiptir
mestu máli að veiðimenn virði veiði-
reglur.“
Eins og áður sagði birtir Odd oft fróð-
lega tölfræði á Facebook síðu Elliða-
ánna.„Ég er þannig að þegar ég er að
fara að veiða þá vil ég undirbúa mig
„Þá aðstoðaði hann
börnin við að setja aftur
í sitthvorn laxinn og
var þeim landað innan
við klukkutíma eftir að
veiði hófst. Eftir þetta
sagði Eydís dóttir mín
við mig, ‘pabbi, ég vildi
óska að þú værir eins
duglegur að veiða og
Ásgeir Heiðar’.”