Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 88
88 Veiðimaðurinn 89 Graflax Bötlersins
Þessi klassíska …
200 ml majónes
50 ml sýrður rjómi
2 msk Dijon-sinnep
2 msk hunang
1 msk dill
1 tsk púðursykur
1 msk koníak
… salt og pipar eftir smekk
og örlítill sósulitur.
Graflaxsósa Stórlaxins
50 g sætt sinnep (Felix
söt sterk ef mögulegt)
50 g Dijon sinnep
50 g púðursykur
½ glas grænt dill
50 ml olía
350 g salt
250 g púðursykur
1 tsk svartur pipar
3 msk þurrkað dill
1 msk fennelfræ
1 msk sinnepsfræ
1 msk kóríanderfræ
Aðferð
Öllu kryddi blandað vel saman og hluta af
blöndunni stráð á fat eða bakka, nógu djúpan til
vökvi leki ekki út úr bakkanum. Annað laxaflakið
sett ofan á kryddblönduna, roðið látið snúa niður.
Slatta af kryddblöndunni stráð yfir og hitt flakið
lagt ofan á, roðið látið snúa upp. Afganginum af
kryddblöndunni dreift yfir. Pakkið þétt í plastfilmu
og ál–pappír. Létt farg sett ofan á sett inn í kæli í
1-3 daga. Gott er að snúa „pakkanum“ nokkrum
sinnum á þessum tíma. Þegar laxinn er tilbúinn er
gott að skafa kryddblönduna mjög vel af. Þá tekur
maður eitt búnt af fersku dilli og saxar fínt og börk
af 1-2 sítónum og 1 appelsínu og dreifir yfir flökin.
Laxinn svo skorinn niður í þunnar sneiðar. Laxinn
geymist í kæli í 3-4 daga. Ef ekki á að borða hann
innan þess tíma, er gott að setja hann í frysti.
Öllu blandað saman og hrært vel t.d. í hrærivél. Gott er að
láta sósuna standa í kæli yfir nótt og hræra svo aftur vel í.
Seinni sósan geymist sérstaklega vel, þar sem
í henni eru hvorki eggja né mjólkurvörur.
Verði ykkur að góðu.
i
Mjög gott er að saxa niður
einn lauk og blanda með
kryddblöndunni, gefur mjög
skemmtilegt og frískandi
bragð. Amma gerði
þetta alltaf!
ii
Sumum finnst gott að setja
eitt staup af gini, brennivíni
eða jafnvel Sambucca yfir
laxaflökin áður en honum
er pakkað inn til “
marineringar”.
iii
Það er gaman að leika sér
aðeins með grunnupp-
skriftina og skipta út t.d.
kóríanderfræjum og setja
t.d. hvannarfræ, timian,
rósmarín, anís eða jafnvel
kúmen í staðinn.
Grunnuppskrift Graflaxsósa
Verði ykkur að góðu.
Smákrókar Aðferð