Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Blaðsíða 12
Hefði ekki mátt grípa
til mildari aðgerða?
Með hliðsjón af samráði okkar við okkar
færustu vísindamenn má ljóst vera að
raunveruleg hætta hafi verið til staðar
að Elliðaánum hafi hnignað enn frekar.
Félagið skoðaði ýmsar útfærslur en taldi
þær ekki líklegar til árangurs. Minnkun
á kvóta úr 2 löxum á stangarvakt í 1
hefði t.d. engu breytt, þar sem meðal-
veiði á stangarvakt hefur verið undir
1 laxi undanfarin ár og var 0,6 laxar á
stöng síðastliðið sumar. Minnkun maðka-
svæðis eða maðkveiðitíma hefði heldur
ekki dugað, því staða stofnsins er orðin
of veik. Að mati vísindamanna þarf 1.000
hrygnur að hausti í ánum til að nýta fram-
leiðslugetu ánna á hverjum tíma, sem er
langt umfram raunfjölda undanfarin ár.
Eiga maðkveiðimenn
samleið með SVFR?
Allir veiðimenn eiga samleið með
SVFR, svo fremi sem þeir sýna ábyrgð
og umgangast náttúruna af virðingu.
Margir maðkveiðimenn hafa stundað
Elliðaárnar og sótt sér fisk í soðið, t.d. í
Sjávarfossi. Þeim stendur að sjálfsögðu
til boða að veiða á flugu í ánum og njóta
leiðsagnar okkar bestu manna ef þeir
kjósa, en einnig býðst félagsmönnum
maðkveiði í Gljúfurá, Korpu og Leirvogsá,
sem er komin í umsjá SVFR að nýju.
Verður áfram efnt til barna- og
unglingadaga við Elliðáárnar?
Svo sannarlega, enda er barna- og ung-
lingastarf félagsins afar mikilvægt í starf-
semi félagsins. Á barnadögum á liðnu
sumri var stór hluti (og líklega meirihluti)
barnanna eingöngu að veiða á flugu. Sum
voru að kasta flugu í fyrsta sinn, en virt-
ust hafa tæknina í blóðinu. SVFR mun
því áfram leggja rækt við barna- og ung-
lingastarfið, efla það enn frekar og taka
þannig þátt í því að ala upp fluguveiði-
menn framtíðarinnar.
Til áréttingar hefur SVFR tekið saman nokkrar spurn-
ingar og svör, sem kunna að brenna á félagsmönnum.
Hafir þú spurningar þá vinsamlega sendu þær á svfr@svfr.is
og við gerum okkar besta við að veita svör.
Hofsá og Sunnudalsá er enn ein perlan í bókaflokknum um laxveiðiár á Íslandi.
Hérna er í fyrsta sinn fjallað um Hofsá og Sunnudalsá, og veiðisvæðunum lýst
á einstaklega skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Almennt verð 9700 krónur.
SÉRTILBOÐ TIL
FÉLAGSMANNA
SVFR!
Tilboðsverð 5900 krónur og bókin um Langá fylgir með í kaupbæti.
HOFSÁ
OG
SUNNU-
DALSÁ
HOFSÁ OG SUNNUDALSÁ
Langá á Mýrum er ein af bestu laxveiðiám
landsins og er stangaveiðihefðin rík á bökkum
hennar. Laxveiðisaga árinnar er litrík og nær
langt aftur. Þannig eru til skrifaðar veiðiskýrslur
árinnar aftur til ársins 1900. Í þessari bók, sem
er önnur bókin í nýrri ritröð um íslenskar lax
veiði ár, tekur Guðmundur Guðjónsson, ritstjóri
fyrri bókarinnar, um Laxá í Kjós og Bugðu,
saman fjölbreytt efni um ána. Veiðistaðalýsingu
og ágrip af sögunni auk þess að skrá hugleiðingar
og veiðisögur all margra veiðimanna sem komið
hafa við sögu á bökkum Langár.
Bókin er ríkulega skreytt myndum Einars Fals
Ingólfssonar, ljósmyndara á Morgunblaðinu,
sem hefur m.a. sérhæft sig í stangaveiðiljós
myndun. Einnig er að finna í bókinni fjölda eldri
mynda í sérköflum sem tengja bókina fortíð inni
þótt hún komi út í nútíðinni.
Langá á Mýrum
L
angá á M
ýrum
Eftir Guðmund Guðjónsson
Ljósmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson
E
ftir
G
u
ð
m
u
n
d
G
u
ð
jó
n
sso
n
Ljó
sm
y
n
d
ir
eftir
E
in
a
r
Fa
l In
g
ó
lfsso
n
Langá á Mýrum
Litróf
Vatnagörðum Reykjavík
www.litrof.is
+
Hofsá í Vopnafirði er ein þekktasta laxveiðiá landsins
og hliðará hennar Sunnudalsá er einnig góð laxveiðiá
og eru þær oft nefndar í sömu andrá. Hofsá á sér
óvenjulega sögu sem laxveiðiá, en á sjötta áratug síðustu
aldar hófu breskir veiðimenn að venja komur sínar í
Hofsárdal og bundust þeir ánni og sveitinni sterkum
böndum. Stóð viðvera þeirra í áratugi og komu þeir
mörgu þarfaverkinu af stað, eins og til dæmis vegagerð
með ánni og veiðihúsabyggingu í Árhvammi, sem seinna
var endurbætt af öðrum með þeim árangri að húsið er
nú með þeim glæsilegri á landinu. Bændur fóru þó að
nýta ána lítillega uppúr aldamótum tuttugustu aldar
og um 1920 var fyrst reynd stangaveiði í ánni og þá af
heimamanni.
Bók þessi er sú sjötta í ritröð um íslenskar laxveiðiár,
en áður hafa komið út bækur um Laxá í Kjós og Bugðu,
Langá á Mýrum, Grímsá og Tunguá, Þverá og Kjarrá,
Selá og nú Hofsá og Sunnudalsá. Umsjónarmenn eru
hinir sömu og áður, Guðmundur Guðjónsson ritstjóri
votnogveidi.is og veidislod.is sér um ritstjórn ritaðs efnis
og Einar Falur Ingólfsson, myndlistarmaður, ljósmyndari
og blaðamaður á Morgunblaðinu er ljósmyndari allra
nýrri mynda.
Texti bókarinnar er fjölbreyttur og bókin er jafnframt
skreytt fjölda glæsilegra ljósmynda, en eitt af sérsviðum
Einars Fals er einmitt stangaveiðiljósmyndun. Eldri
myndir eru einnig í bókinni, m.a. frá fyrstu árum bresku
veiðimannanna og færa þær söguna nær lesendum og
tengja bókina fortíðinni þótt hún komi út í nútíðinni.
Hofsá og Sunnudalsá
Sími 563 6000 • www.litrof.is
LITRÓF
LITRÓF
Hofsá og
Sun dalsáH
ofsá og S
unnud
alsá
ISBN 978-9935-9220-9-0
G
u
ð
m
u
n
d
u
r G
u
ð
jó
n
sso
n
E
in
a
r Fa
lu
r In
g
ó
lfsso
n
Vatnagörðum 14 • 104 Reykjavík
Sími 563 6000 • www.litrof.is
12 Elliðaárnar fá sjálfar sig í afmælisgjöf