Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Qupperneq 23
Fyrir veiðimenn sem vilja bæta tækni
sína og verða öflugri er bókin mikill
fengur. Áratugareynsla Sigga sem veiði-
manns og leiðsögumanns er hér borin á
borð. Lesendur Veiðimannsins þekkja
Sigga vel en flugur hans hafa verið til
umfjöllunar í blaðinu á undanförnum
misserum enda duglegur við að hanna
og hnýta veiðnar flugur. Haugurinn er
sennilega sú frægasta en hún er þekkt um
allan heim. Siggi hnýtti líka Stangó, 80
ára afmælisflugu SVFR, sem mun koma
sterk inn næsta sumar að mati fróðra
veiðimanna og kvenna.
Af flugum, löxum og mönnum er falleg
bók sem fer vel í hendi. Þar er farið yfir
sviðið, búnað, umhirðu, hvaða flugur
er gott að nota, atferli fiska og mismun-
andi veiðiaðferðir svo fátt eitt sé nefnt.
Stór kostur bókarinnar er að textinn er
knappur en lýsandi. Hugsunin er skýr
og þegar á þarf að halda geta veiðimenn
sótt sér áratugareynslu Sigga með því að
grípa niður í valda kafla, til dæmis þegar á
að gára upp lax, hvetja hann til töku með
því að strippa fluguna, veiða í rólegum
bakkahyl undir moldarbarði þar sem sá
silfraði leynist eða í straumhörðum foss-
hyl þar sem ótrúlegt magn laxa er undir
freyðandi yfirborðinu.
Sigurður Héðinn hefur verið óspar á ráð
til veiðimanna í gegnum árin. „Það eru
engin leyndarmál í veiðinni,“ sagði hann
í viðtali við Veiðimanninn um árið og
undir það skal tekið. Hér er sagt opinskátt
frá og húmorinn aldrei langt undan. Í
inngangi vísar Siggi í orð Dame Juliana
Berners, höfundar fyrstu þekktu bókar-
innar um sportveiðar árið 1496, sem hélt
því fram að góður veiðimaður þyrfti að
hafa þrjá kosti til að bera. Hann þyrfti að
vera heimspekingur, náttúrufræðingur
og mannvinur. Hverju orði sannara.
Veiðimanninum hefur ekki alltaf gengið
vel að lesa vatn og átta sig á því hvar laxar
geta legið. Hvar vænlegast er að kasta á
þá og hvernig mismunandi vatnshæð
getur breytt öllu. Frábær veiðistaður í
dag getur verið horfinn á morgun ef það
rignir duglega yfir nótt. Í bókinni er sér-
stakur kafli um að lesa vatn og er hann
kærkominn lesning fyrir veiðimenn.
Hvernig væri að sjá fleiri laxa í veiði-
ferðum næsta sumars?
Höfundur og útgefandi voru svo vin-
samlegir að leyfa Veiðimanninum að
birta kaflann í heild sinni sem fylgir hér
á eftir en fleiri skýringarmyndir er að
finna í bókinni.
Veiðimaðurinn fagnar því þegar nýjar bækur um
stangveiði eru gefnar út. Sigurður Héðinn eða Siggi
Haugur eins og flestir þekkja hann í veiðiheimum hef-
ur ásamt Drápu gefið út eigulega veiðibók þar sem far-
ið er yfir allt sem þú þarft að vita til að geta orðið góður
laxveiðimaður.
Af flugum,
löxum og
mönnum
22 Veiðimaðurinn 23 Ný veiðibók