Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 59

Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 59
allt sitji vel á sínum stað. Dýrmætar og framandi fjaðrir leika svo lykilhlutverk í að búa til rétt mynstur og hlutföll. Að hnýta eina flugu getur tekið allt að þrjá daga og tímakaupið því ekki hátt. Flugur Harðar eru fyrst og fremst sýningargripir og augnakonfekt. Hann vill hafa búkinn þykkan eins og á klassísku flugunum hér áður fyrr þó svo í dag hnýti menn og veiði á mun rennilegri flugur. Uppruninn Á 19. öldinni má segja að stangveiðin hafi tekið stórt stökk fram á við. Nýjar stangir, betri línur og öflugri hjól komu fram á sjónarsviðið. Liprari búnaður létti mönnum lífið, það var hægt að kasta mun lengra en áður og laxaflugurnar urðu litríkari eins og lesa má um í hinni ágætu bók Fluguveiði sem Almenna bókafélagið gaf út árið 1992. „Tengslin milli hinna bosmamiklu laxa- flugna og Viktoríuskeiðsins í breskri sögu eru augljós og athyglisverð. Áhugi kvenna á stórkostlegum búningum og fjaðurskrýddum höttum gerði innflutning framandlegra fjaðra að arðbæru starfi. Hefðarmenn sem stunduðu laxveiði lögðu síðan sitt af mörkum til að stækka notk- unarsviðið. Tilteknar flugugerðir, t.d. Thunder and Lightning, Black Dose, Silver Doctor, Black Doctor og fleiri fullklæddar laxarflugur, urðu til á þessum árum þegar ofskrúð var í tísku.“ Í kjölfarið tóku menn til við að létta flug- urnar og einfalda til að gera þær veiði- legri. Veiðistangir urðu líka meðfærilegri. Í Bandaríkjunum hóf Orvis nokkur að fjöldaframleiða gæðastengur og skömmu síðar kollegi hans Hardy á Englandi. Nöfn þeirra lifa enn í dag. Stangveiði á Bretlandseyjum var langt frá því að vera almenningsíþrótt á 19. öld og segja má að aðalsmaður nokkur, Majór John P. Traherne, hafi breytt leik- reglunum þegar hann mætti með glæsi- legar laxaflugur sínar á stóra fluguveiði- sýningu í Lundúnum árið 1883. „Hann setti allt á annan endann, vann öll verðlaun sem hægt var að vinna og sló í gegn. Þetta var allt öðru vísi en annað sem hafði verið í boði - eins og að koma með kúbisma inn í klassíska málun. Það var alltaf litið svo á að því litríkari fjaðrir sem þú notaðir að því meiri listamaður værir þú. Traherne lagði áherslu á að nota eingöngu náttúrulegar ólitaðar fjaðrir og hann hnýtti listaverk sín úr afgöngum. Úr fjöðrum sem sátu eftir þegar búið var að hnýta hefðbundnar laxaflugur 19. aldar- innar. Úr fjöðrum sem þóttu of litlar eða of stórar fyrir flugur samtímans. Hann hugsaði út fyrir kassann.“ Traherne mætti til leiks með 18 flugur og fleiri bættust í safnið á næstu árum. „Megnið af Traherne seríunni er það sem heillar mig einna mest.“ Traherne hann- aði og hnýtti alls 28 flugur svo vitað sé og þykir hann einn frjóasti fluguhönnuður allra tíma. Hann bjó til sín eigin mynstur og samsetningar - fetaði ótroðnar slóðir. Traherne veiddi á Írlandi, í Skotlandi og Noregi þar sem hann átti sínar drauma- stundir. „Hann var feykilega góður veiði- maður,“ segir Hörður og veiðiskýrslur hans bera þess glöggt vitni. Árið 1865 veiddi hann í ágúst 165 laxa á fimmtán „Ég hnýtti fyrst bara fyrir mig en svo fór ég að hugsa hvort ekki væri skemmtilegt að flugurnar væru upp á vegg einhvers staðar svo fleiri gætu notið.“ Dali stærð 6/0 58 Veiðimaðurinn 59 Litríkar listaverkaflugur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.